Sjálfstæðisflokkurinn afgerandi stærstur - Flokkur fólksins kemur á óvart

Sögu­legar nið­ur­stöður sjást í fyrstu tölum úr öllum kjör­dæmum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með afger­andi mesta fylgið sam­an­lagt.

Fyrstu tölur úr öllum kjör­dæmum sýna góða útkomu Flokks fólks­ins, með Ingu Sæland í broddi fylk­ingar, og Mið­flokks­ins, þar sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, er for­maður.

Samtals fá þessir flokkar 11 þing­menn, sam­kvæmt fyrstu, tölum. Flokkur fólks­ins með fjóra þing­menn, og 6,8 pró­sent fylgi, og Mið­flokk­ur­inn með 7 þing­menn, og 10,8 pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 26 pró­sent - og er afger­andi stærstur - Vinstri græn mæl­ast með 17 pró­sent, Sam­fylk­ingin 12,7 pró­sent, Píratar 8,9 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 10,1 pró­sent og Viðreisn 6,6 pró­sent. Aðrir ná ekki sæti á þingi, það er 5 pró­sent mark­inu. Björt fram­tíð er að þurrkast út, eða svo gott sem, og mælist með 1,1 pró­sent.

Útlit er fyrir flókna stöðu við stjórn­ar­myndun, ef loka­nið­ur­stöður verða eitt­hvað nálægt þessum tölum.

Flokkur fólks­ins er sá flokkur sem er að mæl­ast tölu­vert mikið frá því sem kann­anir gáfu til kynna í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár