Spurt um formlega aðkomu forsætisráðherra að samningum við kröfuhafa

Lögð hefur verið fram fyr­ir­spurn á Alþingi um aðkomu Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar að samn­ingum við kröfu­hafa, hvaða upp­lýs­ingar hann hafi fengið og að hvaða stjórn­sýslu­á­kvörð­unum hann kom.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sagt af sér sem forsætisráðherra. Máli hans er hins vegar fjarri því að vera lokið.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra. Máli hans er hins vegar fjarri því að vera lokið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um aðkomu ýmissa aðila að samn­ingum við kröfu­hafa og að með­ferð slita­búa föllnu bank­anna. Þar spyr hann meðal ann­ars um form­lega aðkomu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, að þeim samn­ingum sem gerðir voru við kröfu­hafa, hvaða trún­að­ar­upp­lýs­ingar hann hafi fengið vegna máls­ins og með hvaða skil­málum Sig­mundur Davíð hafi fengið þær upp­lýs­ingar. Þá er einnig spurt að hvaða stjórn­sýslu­á­kvörð­unum Sig­mundur Davíð kom og á hvaða tíma, hver bein aðkoma beinna und­ir­manna hans og hvernig þeir eru bundnir trún­aði eða látnir fylgja reglum um inn­herj­a­skrán­ingu.

Í fyr­ir­spurn­inni er líka spurt um aðkomu ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál að samn­ingum við kröfu­hafa, en Sig­mundur Davíð sat í henni ásamt Bjarna. Árni Páll vill fá að vita hvaða ákvarð­anir voru teknar á fundum hennar og hvað af því sem nefndin ræddi snéri að samn­ingum við kröfu­hafa. Sömu spurn­ingar eru til­greindar vegna stýri­hóps um afnám hafta og spurt er hvort Sig­mundur Davíð, sem átti ekki sæti í stýri­hópnum, hafi setið ein­hverja fundi hans.

Árni Páll spyr líka almennt um hvaða reglur hafi gilt um þá sem komu að samn­ingum við kröfu­hafa og með­ferð slita­búa föllnu bank­anna, greint eftir hópum og reglum. Hann vill einnig fá að vita hvernig þess var gætt að þeir sem komu að mál­inu af háldu stjórn­valda væri ekki fjár­hags­lega tengdir eða hags­muna­tengdir kröfu­höfum, bæði sjálfir og í gegnum maka eða vensla­menn.

Hægt er að lesa fyr­ir­spurn­ina í held sinni hér.

Ekki bundinn af innherjareglum

Kjarninn greindi frá því 23. mars að Sig­mundur Davíð hafi ekki verið bund­inn af inn­herja­reglum sem stað­festar voru af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, 7. októ­ber 2014 og tóku gildi 1. nóv­em­ber 2014. Þetta stað­festi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Fyr­ir­spurnin var send í kjöl­far þess að opin­berað var að Sig­mundur Davíð og eig­in­kona hans hefðu átt aflands­fé­lagið Wintris sem á kröfur upp á 523 millj­ónir króna í bú bank­anna. Félagið, sem á eignir upp á rúm­lega millj­arð króna, er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum.

[adspot]

Regl­urnar voru settar vegna vinnu við losun hafta. Bjarni sjálfur, aðstoð­ar­menn hans, ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, skrif­stofur­stjórar þess og aðrir starfs­menn sem komu að vinn­unni um losun hafta féllu hins vegar undir regl­urnar. Þær náðu einnig til allra þeirra sér­fræð­inga sem unnu að áætlun um losun hafta, meðal ann­ars í fram­kvæmda­hópi stjórn­valda, sem und­ir­rit­uðu trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu vegna starfa sinna. Brot gegn við­kom­andi reglum gat þýtt að sá sem framdi það brot ætti yfir höfði sér fang­els­is­vist.

Þær inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem um var að ræða, og bannað var að miðla til ann­arra eða hag­nýta sér, eru til dæmis efni fyr­ir­hug­aðra laga­frum­varpa og vit­neskja um aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum.

Ástæða þess að umræddar inn­herja­reglur voru settar var sú að þeir sem störf­uðu að áætl­ana­gerð um losun hafta bjuggu yfir mjög verð­mætum upp­lýs­ingum sem gætu nýst á mark­aði til að hagn­ast veru­lega. Í trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu sem allir sem unnu með hafta­hópnum voru látnir skrifa undir kom fram hversu við­kvæmar upp­lýs­ing­arnar voru og hversu mik­il­vægt það var fyrir sér­fræð­ing­anna að halda trúnað um þær. Brot gegn þeim trún­aði, eða ein­hvers konar mis­notkun á upp­lýs­ing­unum gat talist sak­næmt athæfi, og við­kom­andi gat í kjöl­farið verið ákærður.

Kom að málinu á ýmsum stigum

Yfir­stjórn hafta­los­un­ar­á­ætl­un­ar­innar var í höndum stýrinefndar um losun fjár­magns­hafta. Bjarni Bene­dikts­son leiddi þá nefnd. Auk þess sátu í henni Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, ráðu­neyt­is­stjórar for­sætis- og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyta og Benedikt Árnason, efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Sig­mundur Davíð sat því ekki í þeirri nefnd þótt að sér­legur ráð­gjafi hans, Benedikt Árnason, hafi gert það.

En hann sat hins vegar, líkt og áður sagði, í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál ásamt Bjarna Bene­dikts­syni. Þegar Seðla­banki Íslands hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að veita ætti slita­búum föllnu bank­anna und­an­þágur frá fjár­magns­höftum til að klára nauða­samn­inga sína, sem gerð­ist 28. októ­ber 2015, var fjallað um málið í ráð­herra­nefnd­inni. Þá var einnig fjallað um málið í rík­is­stjórn Íslands. Sig­mundur Davíð sat báða þá fundi.

Sig­mundur Davíð hefur einnig greitt atkvæði í þeim atkvæða­greiðslum sem farið hafa fram um laga­setn­ingar og –breyt­ingar vegna áætl­unar um losun fjár­magns­hafta og fram­kvæmd hennar.

Segir Sigmund Davíð mögulega hafa verið vanhæfan

Í Frétta­blað­inu þann 23. mars var rætt við Eirík Elís Þor­láks­son, lektor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, um mögu­legt van­hæfi Sig­mundar Davíðs til að koma að losun fjár­magns­hafta vegna hags­muna­tengsla sinna.

Eiríkur sagði þar að Sig­mundur Davíð væri bund­inn af hæf­is­reglur stjórn­sýslu­réttar þegar hann fer með fram­kvæmd­ar­vald. Ef hann hafi tekið ákvarð­anir um málið sem for­sæt­is­ráð­herra, til dæmis skipað í ráð­gjafa­hóp og eftir atvikum fleiri nefndir sem áttu að vinna að und­ir­bún­ingi laga­setn­ingar um losun hafta, stöð­ug­leika­skatt og fleira, þá kunni það að vera í and­stöðu við stjórn­sýslu­lög. Lyk­il­at­riði sé hins vegar að hags­mun­irnir sem um ræði séu slíkir að það valdi van­hæfi til með­ferðar máls­ins.

Í stjórn­sýslu­lögum segir að starfs­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann á sjálfur sér­stakra og veru­legra hags­muna að gæta, vensla­menn hans (maki, skyldur eða mægður aðili) eða sjálfs­eign­ar­stofn­anir eða fyr­ir­tæki sem hann er í fyr­ir­svari fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár