Mikilvægt að Íslendingar nýti landið svo allir geti notið þess

For­sæt­is­ráð­herra segir það stórt verk­efni að allir hafi jan góð tæki­færi til að njóta auð­æfa Íslands. Sigurður Ingi Jóhanns­son flutti hátíð­ar­ræðu á Aust­ur­velli í dag.

Sigurður Ingi Jóhannsson flutti hátíðarræðu á Austurvelli í dag.
Sigurður Ingi Jóhanns­son flutti hátíð­ar­ræðu á Aust­ur­velli í dag. Mynd: Skjáskot/RÚV

Mik­il­vægt er að Íslend­ingar nýti landið sitt þannig að sem flestir geti notið þess. Þetta var inn­tak hátíð­ar­ræðu Sigurðar Inga Jóhans­sonar, for­sæt­is­ráð­herra, á Aust­ur­velli í dag. Þar fór fram hátíð­ar­dag­skrá eins og venja er á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum 17. júní. Í ár er 72 ára afmæli lýð­veld­is­ins fagnað.

Sigurður Ingi sagði í nútím­anum væri hins vegar til fólk sem liti á heim­inn sem sína fóst­ur­jörð. „Landar okkar dreifast nú líka enn meira um jarð­ar­kringl­una en áður. Svo virð­ist sem sífellt fleiri líti á heim­inn allan sem sína fóst­ur­jörð. Og mögu­leikar til starfa og góðrar fram­tíðar liggja að sjálf­sögðu víðar en hér á Íslandi. Það er sú sam­keppni sem blasir við og þeirri sam­keppni eigum við að fagna – en einnig að taka alvar­lega.“

Dag­skráin hófst á því að Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, lagði blómsveig að styttu Jóns Sig­urðs­sonar á Aust­ur­velli. Sigurður Ingi steig í pontu eftir að Karla­kór­inn Fóst­bræður höfðu flutt Lof­söng­inn.

„Samfélag er sam­vinnu­verk­efni,“ sagði Sigurður Ingi og minnti á að í góðu sam­fé­lagi þurfi sam­tal á milli kyn­slóða að vera til staðar. Þeir sem yngri eru geti lært af þeim eldri og að þeir eldri geti heilmargt lært af þeim yngri. „[…] best nið­ur­staða fæst þegar hver og einn leggur til reynslu sína, hug­myndir og vinnu.“

Linda Ásgeirs­dóttir í hlut­verki fjall­kon­unnar flutti hluta Söngva helg­aða þjóð­há­tíð­ar­degi Íslands 17. júní 1944 eftir skáld­kon­una Huldu. Að lok­inni dag­skrá á Aust­ur­velli var gengið í Hóla­valla­kirkju­garð þar sem Sóley Tóm­as­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur, lagði blómsveig að leiði Jóns Sig­urðs­sonar.

Auðlindir og mannauður virkjaður

Sigurður Ingi sagði Ísland vera auð­ugt land og að það væri stórt verk­efni að allir hafi jafn góð tæki­færi til að njóta þess­ara auð­æfa. „Það er því mik­il­vægt þegar við nýtum það sem landið hefur upp á að bjóða að sem flestir njóti með einum eða öðrum hætti. Ísland er auð­ugt land, land sem býr við gnægð auð­linda og mannauð mik­inn. Þann auð eigum við að nýta til að tryggja sem best að á Íslandi þurfi eng­inn að líða skort. Það er stórt verk­efni sem ekki verður leyst í einu vet­fangi, og það verður aðeins leyst þannig að við leggj­umst öll á árar - saman.“

Sigurður Ingi minnt­ist á afrek íslensks íþrótta­fólks á alþjóð­legum vett­vangi. „Það er sann­ar­lega eitt mesta stolt lít­illar þjóðar að eiga svo gott íþrótta­fólk, lista­menn og vís­inda­menn í fremstu röð í heim­inum. […]Betri hvatn­ingu fyrir litla þjóð sem við ysta haf unir við hátign jökla og bláan sæ, hvatn­ingu til að vinna að enn betri árangri á grunni þess sem þegar er unnið, er vart hægt að hugsa sér.“

For­sæt­is­ráð­herra lauk svo ræðu sinni á að fara með síð­asta erindi Vormanna, ljóðs Guðmunds Guð­munds­sonar, sem höf­und­ur­inn til­eink­aði Ung­menna­fé­lögum Íslands.

Vormenn Íslands, vorsins boðar,
vel sé yður, frjálsu menn!
Morgun skóga’ og rósir roðar,
rækt og tryggð er græðir senn.
Notið, vinir, vorsins stundir,
verjið tíma’ og kröftum rétt,
búið sólskært sumar undir
sérhvern hug og gróðrarblett!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár