Gera ráð fyrir að 45 fm íbúð geti kostað 69 þúsund á mánuði

Stjórn­völd gera ráð fyrir því að um 2.300 íbúðir verði byggðar á næstu fjórum árum í nýju almennu íbúða­kerfi, sem mun kall­ast Leigu­heim­ili. Leigu­heim­ilin byggja á nýjum lögum um almennar íbúðir, og er kerfið gert að danskri fyr­ir­mynd. Kerfið var kynnt fyrir bygg­ing­ar­að­ilum á Grand hótel í morgun, og segir í til­kynn­ingu að fullt hafi verið út úr dyrum.

Gert er ráð fyrir því að þessar ódýru leigu­í­búðir verði 20 til 30 pró­sentum ódýr­ari en mark­aðs­verð á leigu­mark­aði er í dag. Skilyrði er fyrir því að íbúð­irnar séu leigðar til fólks með með­al­tekjur og undir, en það má ekki segja íbúum upp leig­unni þó að tekjur heim­il­is­ins fari yfir hámarkið á meðan þeir eru íbúar þar. Tekju­mörkin fyrir ein­stak­ling eru ríf­lega 395 þús­und krónur á mán­uði, en 554 þús­und fyrir pör. Fyrir hvert barn hækka mörkin um tæp­lega hund­rað þús­und krónur.

Íbúða­lána­sjóður á að halda utan um þetta nýja kerfi, sem er ekki hluti af félags­lega hús­næð­is­kerf­inu. Sjálfs­eigna­stofn­anir, sveit­ar­fé­lög og lög­að­ilar munu geta reist ódýrar leigu­í­búðir í þessum til­gangi og fengið 30% stofn­fram­lag frá ríki og sveit­ar­fé­lögum til þess. Ríkið mun styðja um 18% og sveit­ar­fé­lög 12%, og skil­yrði fyrir stuðn­ingnum verður að leigt sé út til fólks með með­al­tekjur eða lægri tekjur.

ASÍ og BSRB hafa þegar stofnað Almenna íbúða­fé­lagið, sem ætlar að byggja slíkar íbúðir. Samkvæmt því sem fram kemur í upp­lýs­ingum frá Íbúða­lána­sjóði þá mun 45 fer­metra íbúð á vegum ASÍ kosta um 100 þús­und krónur á mán­uði, eða 69 þús­und krónur eftir greiðslu hús­næð­is­bóta. Þetta verði bylt­ing fyrir fólk á leigu­mark­aði.

Íbúða­lána­sjóður hefur þegar aug­lýst og fengið umsóknir frá sveit­ar­fé­lögum og hús­næð­is­sjálfs­eign­ar­stofn­unum, en verja á einum og hálfum millj­arði króna í stofn­fram­lög rík­is­ins vegna þessa máls á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár