Ritskoðun og bannfæring ekki svarið við áróðursmiðlum Rússa

Evr­ópu­sam­tök blaða­manna segja að rétta leiðin til þess að mæta upp­lýs­inga­fölsun og áróðri Rússa sé að styðja við sterka og sjálf­stæða fjöl­miðla í álf­unni, fremur en að banna útsend­ingar rúss­neskra miðla eins og áformað er.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, tilkynnti á blaðamannafundi á sunnudag að bannfæring ákveðinna rússneskra fjölmiðla yrði á meðal aðgerða sem ESB ætlaði að grípa til.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, til­kynnti á blaða­manna­fundi á sunnu­dag að bann­fær­ing ákveð­inna rúss­neskra fjöl­miðla yrði á meðal aðgerða sem ESB ætl­aði að grípa til. Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­tök blaða­manna (EFJ) ótt­ast að rit­skoðun og bann­fær­ing rúss­neskra rík­is­fjöl­miðla innan Evr­ópu­sam­bands­ins gæti verið ógn við tján­ing­ar­frelsið í álf­unni og að aðgerðum í þá átt að banna rúss­neska fjöl­miðla eins og RT og Sputnik í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins gæti verið svarað með sam­svar­andi banni á evr­ópska fjöl­miðla í Rúss­landi.

Ursula von der Leyen for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB til­kynnti á sunnu­dag­inn að Evr­ópu­sam­bandið ætl­aði sér að banna fjöl­miðlama­sk­ínu rúss­neskra yfir­valda í Evrópu og sagði að RT og Sputnik og tengdir miðlar myndu ekki lengur fá að „spúa lygum til að rétt­læta stríð Pútíns“ í Úkraínu. Hún sagði fram­kvæmda­stjórn­ina vera að þróa tól til þess að banna „eitr­andi og skað­lega upp­lýs­inga­fölsun“ þess­ara miðla í Evrópu.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu á vef Evr­ópu­sam­taka blaða­manna var Ricardo Gutiérrez fram­kvæmda­stjóri EFJ undr­andi á þess­ari yfir­lýs­ingu von der Leyen. „Í fyrsta lagi þarf að hafa í huga að fjöl­miðlar falla ekki undir vald­svið Evr­ópu­sam­bands­ins. Frú von der Leyen hefur til­kynnt um aðgerðir sem hún getur ekki gripið til. ESB hefur engan rétt til að veita eða aft­ur­kalla útsend­ing­ar­leyfi. Þetta er algjör­lega á for­ræði aðild­ar­ríkj­anna,“ er haft eftir Gutiérrez á vef EFJ.

Betra að benda á áróðurinn en að banna hann

Gutiérrez sagði einnig að hann teldi algjöra bann­fær­ingu fjöl­miðla­veitna ekki bestu leið­ina til þess að takast á við upp­lýs­inga­fölsun og áróður.

„Þessir rit­skoð­un­ar­til­burðir geta haft öfug­virk­andi áhrif á þá borg­ara sem fylgj­ast með bönn­uðu miðl­unum. Að okkar mati er alltaf betra að takast á við upp­lýs­inga­fölsun áróð­ur­miðla eða meintra áróð­ursmiðla með því að fletta ofan af stað­reynda­villum þeirra eða slæmri blaða­mennsku, með því að sýna fram á skort á fjár­hags­legu eða rekstr­ar­legu sjálf­stæði þeirra eða með því að benda á tryggð þeirra við hags­muni rík­is­stjórna og skeyt­ing­ar­leysi þeirra gagn­vart almanna­hags­munum,“ er haft eftir Gutiérrez, sem telur áskorun lýð­ræð­is­ríkja vera þá að berj­ast gegn upp­lýs­inga­fölsun en standa á sama tíma með tján­ing­ar­frels­inu.

[adspot]

Í umfjöllun á vef EFJ er bent á að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi bent á í dómum sínum að það að banna starf­semi fjöl­miðla­fyr­ir­tækis sé alvar­leg gjörð, sem byggja þurfi á að sterkum laga­grund­velli.

EFJ telur að í stað bann­fær­ingar og rit­skoð­unar ætti Evr­ópu­sam­bandið að horfa til ann­arra lausna eins og auk­ins stuðn­ings við sjálf­stæða fjöl­miðlun, aðgerða til þess að auka sjálf­stæði rit­stjórna, aðgerða sem styrkja sjálfs­mynd og stöðu blaða- og frétta­manna í sam­fé­lag­inu, þess að veita fag­legt aðhald með sjálf­stæðum fjöl­miðla­nefndum, aðgerða sem stuðla að fjöl­ræði á fjöl­miðla­mörk­uðum, því að auka fjöl­miðla­læsi almenn­ings og aðgerða sem miða að auknu gagn­sæi um störf valda­fólks.

„Hættan við rit­skoð­un­ar­stefn­una er einnig sú að henni verði svarað í sömu mynt, eins og við höfum séð með bann­fær­ingu DW í Rúss­landi í kjöl­farið á því að RT var bannað í Þýska­landi. Nið­ur­staðan af þessum átökum hefur orðið sú að fjöl­miðlaum­hverfið í Rúss­landi er orðið fátækara. Borgarar þar hafa misst rétt­inn til þess að nálg­ast upp­lýs­ingar í gegnum útsend­ingar DW. Þetta er miður,“ er haft eftir Gutiérrez.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár