Mynd: Bára Huld Beck

Pólitískur ómöguleiki að Sigríður hefði getað setið áfram

Það var bæði póli­tískt og praktískt ómögu­legt að Sigríður Á. Andersen sæti áfram sem dóms­mála­ráð­herra. Vinstri græn hefðu ekki getað sætt sig við það póli­tískt og ómögu­legt hefði verið fyrir Sigríði að leiða flókna vinnu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Ég mun ekki gera það. Ég hef ekki ástæðu til þess.“ Þetta sagði Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í hádeg­is­fréttum RÚV á þriðju­dag þegar hún var spurð hvort hún myndi segja af sér vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Rúmum sól­ar­hring síðar, klukkan 13:49 síð­degis á mið­viku­dag, var boðað til blaða­manna­fundar í dóms­mála­ráðu­neyti sem skyldi hefj­ast 41 mín­útu síðar. Á þeim fundi lýsti Sigríður afstöðu sinni til Lands­rétt­ar­máls­ins í löngu máli, sagði að nið­ur­staðan hefði komið henni „veru­lega á óvart“ og að hún ætl­aði að stíga til hliðar sem ráð­herra á meðan að verið væri að fjalla meira um Lands­rétt­ar­málið og vinna úr þeirri stöðu sem upp var komin. Hún hefði skynjað að hennar per­sóna kynni að hafa trufl­andi áhrif á frek­ari með­ferð máls­ins.

Það er hins vegar ekki hægt að stíga til hliðar tíma­bundið sem ráð­herra. Stjórn­skipun lands­ins gerir ein­fald­lega ekki ráð fyrir því. Sigríður var að segja af sér emb­ætti og nýr ráð­herra myndi taka við dóms­mála­ráðu­neyt­inu á rík­is­ráðs­fundi sem boð­aður var á Bessa­stöðum klukkan 16 á fimmtu­dag.

Viðvörunarbjöllur hringdu hátt og skýrt

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu kom flestum við­mæl­endum Kjarnans úr íslenskum stjórn­málum á óvart. Ekki endi­lega hver nið­ur­staðan var heldur hversu harð­orður hann var í garð íslenskrar stjórn­sýslu. Bæði Sigríður og Alþingi fengu á sig áfell­is­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Sigríður fyrir að hafa brotið stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­anum um til­nefnda dóm­ara frá þeim lista sem hæf­is­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­styðja þá ákvörðun með nægj­an­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig.

Nið­ur­staðan var skýr. Í dómnum var fall­ist á það dóm­ar­arnir fjórir sem bætt var á list­ann væru ólög­lega skip­aðir og gætu þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, þar sem ólög­lega skip­aðir dóm­arar gætu ekki tryggt rétt­láta máls­með­ferð. Ferlið sem beitt var við skipun dóm­ar­anna við Lands­rétt hafi orðið „til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­stóll í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­ar­at­riði að dóm­stóll sé lög­leg­ur, eina af meg­in­reglum rétt­ar­rík­is­ins.“

Við­vör­un­ar­bjöll­urnar höfðu reyndar ómað hátt áður en kosn­ingin var fram­kvæmd. Í umsögn sem hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Jóhannes Karl Sveins­son sendi inn til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar 30. maí 2017 sagð­ist hann hafa verið í áfalli þegar hann las rök­­stuðn­­ing dóms­­mála­ráð­herra. Þar var­aði hann við því að til­laga dóms­mála­ráð­herra yrði dýr fyrir ríkið vegna mögu­legs bóta­réttar nokk­urra umsækj­enda en „ennþá fremur vegna þess að í upp­sigl­ingu er hneyksli sem á eftir að valda langvar­andi vanda­málum í rétt­ar­kerf­inu sjálfu“.

Alþingi væri skylt að taka málið til gaum­­gæfi­­legrar skoð­unar og mætti „ekki taka að sér hlut­verk stimp­ilpúða fyrir fram­­kvæmda­­valdið í þetta sinn. Það er allt of mikið í húfi!“

Að Alþingi eigi ekki að stjórnar af aflsmunum

En málið var samt sem áður lagt fram. Þáver­andi minni­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar lagði til að mál­inu yrði vísað frá. Þeirri til­lögu var hafnað með 31 atkvæði gegn 30. Tveir þing­menn kusu ekki vegna tengsla við umsækj­endur um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt.

Í kjöl­farið var kosið um til­lögu Sigríðar um hverja ætti að skipa sem dóm­ara. Þegar for­svars­maður minni­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar gerði grein fyrir atkvæði sínu sagði hún: „Minni hlut­inn á Alþingi lagði fram mál­efna­leg rök fyrir því að mála­til­bún­aður hefði þurft að vera vand­aðri og máls­með­ferð þings­ins hefði þurft lengri tíma. Þessi rök voru studd af þeim sér­fræð­ingum sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd kall­aði sér til aðstoðar til að meta þennan mála­til­búnað. En á rök minni hlut­ans og sér­fræð­ing­anna kaus meiri hlut­inn að hlusta ekki. Ég tel, frú for­seti, að Alþingi eigi að stjórn­ast af vits­munum en ekki afls­munum. Það er ekki mín til­finn­ing að Alþingi hafi stjórn­ast af vits­munum hér í dag. Þess vegna segi ég nei við þess­ari til­lögu.“

En til­lagan var samt sem áður sam­þykkt með greiddum atkvæðum þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, sem þá mynd­uðu rík­is­stjórn. Rök þing­manna Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fyrir því að sam­þykkja skip­an­ina voru marg­háttuð. Björt Ólafs­dóttir, þáver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sagði: „Gamla Ísland og nýja Ísland. Faglegt mat hæfn­is­nefndar um tíu karla og fimm konur. Sann­ar­lega í takt við gamla Ísland. Dóms­mála­ráð­herra leggur til sjö konur, átta karla og ég fagna því og ég furða mig á því að aðrir geri það ekki hér, stjórn­ar­and­staðan gerir það ekki hér. Rétt kynja­hlut­föll í Lands­rétti kostar okkur ekki traust. Það ávinnur okkur traust.“ Óttarr Proppé, þáver­andi for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagð­ist ánægður með rök­stuðn­ing Sigríðar.

Pawel Bartoszek, þá þing­maður Við­reisnar, sagði að hann teldi að „þetta vald og þessi ábyrgð liggi hjá ráð­herra og sé eðli­legt að henni sé komið fyrir þar. Ég tel ekki eðli­legt að þingið eigi að hafa afskipti af þess­ari ákvörðun ráð­herra. Ég mun því greiða atkvæði í sam­ræmi við það.“ Þor­steinn Víglunds­son, sam­flokks­maður hans og þá félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, tók undir með Pawel og sagði: „Ég vona að þetta verði í síð­asta skiptið sem þingið hlut­ast til um það með þessum hætti. Ég tel dóms­mála­ráð­herra bera hina end­an­legu ábyrgð í mál­inu og tel að sú til­laga sem liggur fyrir þing­inu sé vel ígrunduð og rök­studd.“ Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, þáver­andi vara­for­maður Við­reisnar, sagði að breyt­ing­arnar sem Sigríður hafði gert á list­anum hafi orðið „til þess að list­inn mætir hvoru tveggja, skil­yrðum um jafn­ræði kynj­anna og sjón­ar­miðum um dóm­ara­reynslu auk þess sem allir dóm­ar­arnir hafa verið metnir hæfir. Þetta eru góð vinnu­brögð. Sá rök­stuðn­ingur sem hæst­virtur ráð­herra hefur lagt fram er góður og ég fellst á hann. Samkvæmt minni bestu sann­fær­ingu og sam­visku.“

Samþykktu að verja Sigríði gegn vantrausti

Þegar ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum í lok nóv­em­ber 2017, með Sigríði Á. Andersen áfram í stól dóms­mála­ráð­herra, var lá fyrir nið­ur­staða hér­aðs­dóms um að Sigríður hefði brotið lög með skipan dóm­ara og nið­ur­staða Hæsta­réttar í mál­inu var vænt­an­leg. Sú staða var rædd sér­stak­lega við stjórn­ar­mynd­un­ina. Ljóst var að það yrði erf­ið­ast fyrir Vinstri græn að verja veru Sigríðar í rík­is­stjórn, sér­stak­lega vegna þess að for­sæt­is­ráð­herr­ann Katrín og Svandís Svav­ars­dóttir, einn áhrifa­mesti þing­maður flokks­ins og nýr heil­brigð­is­ráð­herra, höfðu skrifað grein nokkrum dögum eftir að skipun dóm­ara í Lands­rétt var sam­þykkt á Alþingi þar sem þær gagn­rýndu máls­með­ferð­ina harð­lega. Í grein­inni sagði: „Upp­­­­­­­nám milli­­­­­­­dóm­­­­stigs­ins er nú algjört, á ábyrgð dóms­­­­mála­ráð­herr­ans og rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­innar all­r­­­­ar. Enn er ekki séð fyrir end­ann á mála­­­­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­­­­réttur yrði að glíma við van­­­­traust og skort á trú­verð­ug­­­­leika um ára­bil.“

Þegar Hæsti­réttur birti sína nið­ur­stöðu í Lands­rétt­ar­mál­inu, þann 19. des­em­ber 2017, um að Sigríður hefði brotið gegn ákvæði stjórn­sýslu­laga með ákvörðun sinni þá varði Katrín setu hennar í rík­is­stjórn.

Katrín Jakobsdóttir fundaði með formönnum hinna stjórnarflokkanna skömmu eftir að hún lenti á Íslandi í gærmorgun.
Katrín Jak­obs­dóttir fund­aði með for­mönnum hinna stjórn­ar­flokk­anna skömmu eftir að hún lenti á Íslandi í gær­morgun.

Þegar stjórn­ar­and­staðan setti fram van­traust­til­lögu á Sigríði í mars 2018 þá kusu allir þing­menn Vinstri grænna utan tveggja, Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur og Andrésar Inga Jóns­sonar, á móti henni og vörðu þar með dóms­mála­ráð­herra gegn van­trausti. Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, sagði til að mynda í ræðu sinni að hann hafi verið mót­fall­inn þeim ákvörð­unum og emb­ætt­is­verkum Sig­ríðar sem van­traust­s­til­lagan sner­ist um, en að hann styddi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Þess vegna segði hann nei.

Lilja Raf­ney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sagði í ræðu sinni að van­traust­s­til­lagan sner­ist ekki um dóms­mála­ráð­herra heldur rík­is­stjórn­ina í heild. „Það er alveg ljóst að skað­inn er skeð­ur. Þegar er búið að vinna þau emb­ætt­is­verk sem eru ástæða þess­arar umræðu. Það var gert í síð­ustu rík­is­stjórn lands­ins, fyrir síð­ustu kosn­ing­ar. Ef van­traust­s­til­lagan verður sam­þykkt getur tvennt ger­st; ann­að­hvort að ráð­herr­ann fari og nýr dóms­mála­ráð­herra taki við[...]Hitt sem gæti gerst væri að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yfir­gæfi rík­is­stjórn­ina og þar með væri hún úr sög­unni. Vil ég aðra rík­is­stjórn án Alþing­is­kosn­inga, aðra en rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur? Mitt svar er nei.“

Mörg erfið mál á skömmum tíma

Fátt hefur gengið jafn mikið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og Vinstri grænna hjá þeirra eigin stuðn­ings­mönnum og sú ákvörðun að verja Sigríði fyrir van­trausti. En flokk­ur­inn vissi að hann þyrfti að gera það til að halda rík­is­stjórn­inni saman og lét sig því hafa það.

Síðustu vikur hefur svo reynt umtals­vert á styrk saumanna í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Harðar kjara­deilur eru að reyn­ast stjórn­inni erf­iðar, sér­stak­lega vegna þess að gagn­rýni verka­lýðs­hreyf­ing­anna á þær til­lögur sem rík­is­stjórnin hefur komið með að borð­inu í þeim deilum hefur verið hörð. Ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra um að stuðn­ing Íslands við leið­­toga stjórn­­­ar­and­­stöð­unnar í Venes­ú­ela fóru illa í ýmsa innan Vinstri grænna og ákvörðun Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, að heim­ila áfram­hald­andi hval­veiðar ekki síður. Þá hefur ríkt óop­in­bert stríð um sam­göngu­mál, og sér­stak­lega veggjöld, innan rík­is­stjórn­ar­innar frá því í des­em­ber þar sem takast á Sigurður Ingi Jóhanns­son, ráð­herra mála­flokks­ins, og Jón Gunn­ars­son, for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar sem oft er kall­aður skugga­sam­göngu­ráð­herra í tali milli þing­manna.

Ofan á allt er efna­hags­kerfið að kólna, enn ríkir tölu­verð óvissa um fram­tíð flug­fé­laga lands­ins og engin loðna verður veidd á þessu fisk­veiði­ári, vegna þess að hún finnst ekki í íslenskri lög­sögu. Og traust á stjórn­mál hríð­féll á milli ára. Það hefur stuðn­ingur almenn­ings við rík­is­stjórn­ina líka gert frá því að hún tók við.

Rík­is­stjórnin mátti illa við því að fá nýja sprengju í fangið síð­ast­lið­inn þriðju­dag. En hún fékk slíka frá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Pólitískur ómöguleiki

Þótt Sigríður Á. Andersen hefði verið boru­brött í við­tali við fjöl­miðla á þriðju­dag og sagt að hún væri ekki að víkja var ljóst að innan raða Vinstri grænna væri sú skoðun ráð­andi að áfram­hald­andi seta hennar væri ekki póli­tískt ger­leg. Stjórn­ar­and­staðan var þegar búin að boða aðra van­traust­s­til­lögu og Vinstri græn gætu ekki varið Sigríði aftur gegn slíkri.

Katrín Jak­obs­dóttir ræddi stöð­una við Sigríði á þriðju­dag, en for­sæt­is­ráð­herr­ann var þá stödd í New York. Katrín lenti svo á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær­morgun og fór á fund með for­mönnum hinna stjórn­ar­flokk­anna, Bjarna Bene­dikts­syni og Sigurði Inga Jóhanns­syni, klukkan hálf níu þar sem staðan var rædd. Þar kom Katrín sjón­ar­miðum sínum um að dóms­mála­ráð­herra yrði að axla ábyrgð á stöð­unni á fram­færi við hina for­menn­ina.

Við­mæl­endum Kjarnans innan Vinstri grænna ber ekki að öllu leyti saman um hversu tæpt rík­is­stjórn­ar­sam­starfið hafi staðið og hvort því hefði verið slitið ef Sigríður hefði ekki sagt af sér. En ljóst er að það er upp­lifun sumra lyk­il­manna innan þeirra raða að ef Sigríður hefði ekki sagt af sér þá hefði sam­starf­inu verið slitið.

Þegar þing­flokks­fundur Vinstri grænna hófst klukkan um klukkan eitt síð­degis í gær þá lá ekki enn fyrir hvað Sigríður myndi gera, né hvað for­sæt­is­ráð­herra myndi segja við fjöl­miðla þegar hún myndi tjá sig efn­is­lega um málið í fyrsta sinn þegar fund­inum lyki.

Ríkisstjórnin hefur glímt við mörg erfið viðfangsefni undanfarið.
Rík­is­stjórnin hefur glímt við mörg erfið við­fangs­efni und­an­farið.

Áður en fund­inum lauk barst hins vegar til­kynn­ing um blaða­manna­fund dóms­mála­ráð­herra til fjöl­miðla og öllum varð ljóst hvað væri í upp­sigl­ingu. Katrín gat því farið út af þing­flokks­fund­inum í gær og sagt við fjöl­miðla að hún styddi ein­fald­lega ákvörðun Sigríðar um að stíga til hliðar.

Gat ekki leitt viðgerð á eigin mistökum

Praktískt séð var einnig ómögu­legt fyrir Sigríði að sitja áfram. Nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins leiddi af sér að starf­semi Lands­réttar er í full­komnu upp­námi. Nær sam­stundis var öllum málum sem dóm­ar­arnir fjórir sem voru skip­aðir með ólög­mætum hætti; Arn­­­­­fríður Ein­­­­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­­­­son og Jón Finn­­­­­björns­­­­­son, áttu að koma að í þess­ari viku frestað og síðar sama dag var til­kynnt að Lands­réttur myndi ekki fella neina dóma út vik­una.

Algjör óvissa er uppi í íslensku rétt­ar­kerfi og lög­menn sem Kjarninn hefur rætt við segja borð­leggj­andi að mögu­legt sé að taka upp öll mál sem dóm­ar­arnir fjórir hafa komið að. Þá sé einnig vand­séð, og í raun ómögu­legt, að þeir geti setið áfram í rétt­inum. Það þurfi að skipa nýja dóm­ara í þeirra stað.

Ferlið allt mun að öllum lík­indum einnig verða íslenska rík­inu dýrt í pen­ingum talið. Þeir fjórir sem teknir voru af list­anum hafa fengið eða munu fá miska- og/eða skaða­bætur, dóm­ar­arnir fjórir sem skip­aðir voru án þess að hafa verið taldir á meðal 15 hæf­ustu eiga lík­ast til háa skaða­bóta­kröfu á ríkið verði þeir að víkja og kostn­aður við end­ur­upp­töku mála sem þeir hafa komið að mun verða umtals­verður.

Flókið verk­efni er framundan fyrir dóms­mála­ráðu­neytið við að finna út úr þeirri réttaró­vissu sem er til staðar og við blasti að Sigríður gat ekki leitt þá vinnu í ljósi þess að það voru hennar ákvarð­anir sem skópu ástandið. Á þessu virð­ist hún hafa áttað sig sjálf. Í yfir­lýs­ingu hennar í gær sagði Sigríður að hún hefði skynjað það að hennar per­sóna kynni að hafa trufl­andi áhrif á frek­ari með­ferð máls­ins.

En hvar stendur málið nú? Stjórn­völd virð­ast ekki hafa verið með neina við­brags­á­ætlun til að bregð­ast við þeirri stöðu sem nú er uppi vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. For­sæt­is­ráð­herra sagði við fjöl­miðla í gær að stærsta for­gangs­mál stjórn­valda nú væri að tryggja réttar­ör­yggi. Til þess hefur hún kallað til sér­fræð­inga til að rýna í dóm­inn og nú bíður stjórn­valda það verk­efni að skýra stöðu Lands­réttar.

Það verður hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra, verk­stjór­ans í rík­is­stjórn­inni, og nýs ráð­herra dóms­mála, sem skip­aður var tíma­bundið á fimmtu­dag, að leiða það verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár