Þýðir ekki að við getum lifað „hinu villta góða lífi“

Þó að slakað verði á tak­mörk­unum inn­an­lands á næstu dögum þýðir það ekki að við getum farið að lifa „hinu villta góða lífi,“ segir sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Skapast hafa góðar aðstæður til að slaka enn meira á sótt­varna­að­gerðum inn­an­lands og hefur sótt­varna­læknir sent heil­brigð­is­ráð­herra til­lögur að til­sök­unum. Búast má við nýrri reglu­gerð á næstu dögum.

Til að hægt sé að slaka á þarf far­ald­ur­inn í fyrsta lagi að vera í lág­marki inn­an­lands og einnig þarf að vera búið að ná nokkuð góðum tökum á landa­mær­unum. Báðar þessar for­sendur eru nú til staðar að mati Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. Hann leggur til ýmsar til­slak­anir á öllum þeim aðgerðum sem verið hafa í gangi en á upp­lýs­inga­fundi dags­ins vildi hann ekki fara nákvæm­lega ofan í til­lög­urnar þar sem stjórn­völd eigi enn eftir að fjalla um þær. „Eins og áður mun örugg­lega ein­hverjum þykja of bratt farið á meðan öðrum allt of hægt,“ sagði Þórólfur. Hann var spurður hvort að til standi að lengja opn­un­ar­tíma skemmti­staða og kráa og minnti hann þá á að þriðja bylgjan hafi haf­ist þar svo að mjög var­lega verði að fara í slíkt.

Þó að nú sé hægt að feta sig í frek­ari til­slak­anir, eins og Þórólfur orð­aði það, þarf að gera það var­lega og enn er brýnt að fólk sinni áfram ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum. „Við viljum ekki fá bakslag núna á þess­ari stundu.“

Bólu­setn­ing­ar­daga­talið sem stjórn­völd gáfu út fyrir helgi er svar við ákalli um ein­hvern fyr­ir­sjá­an­leika, sagði sótt­varna­læknir. Það er þó óvissu háð. Þó að von­ast sé til að bólu­efnin verði afhent hraðar á næsta árs­fjórð­ungi en hingað til hefur verið búist við er það alls ekki víst „og við þurfum að vera við öllu búin, líka því að dreif­ingin verði hæg­ari en við vildum.“

Mögulega hægt að blása til stórra viðburða

Spurður hvort að hægt verði að halda stóra við­burði næsta sumar en allir slíkir voru blásnir af í fyrra, sagð­ist hann ekki telja það ólík­legt að því gefnu að megin þorri þjóð­ar­innar verði bólu­settur fyrir júní­lok og að ekki komi fram ný afbrigði veirunnar sem bólu­efnin virki ekki á.

Nú er hafið þekk­ing­ar­söfnun á landa­mær­unum, með því að skylda far­þega til að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi og ef sú reynsla bendir til að óhætt sé með þeim hætti að afnema seinni skimun og jafn­vel sótt­kví verði það reynt 1. maí. „Ef það verður hægt og allt gengur vel þá ætti ekk­ert að vera því til fyr­ir­stöðu að við höfum aðeins laus­ari taum­inn næsta sumar. Hvernig það verður nákvæm­lega veit ég ekki. Það sem skiptir öllu máli er hvernig við hegðum okkur sem ein­stak­lingar. Ekki hvaða tak­mark­anir stjórn­völd setja. Þannig að þó að það sé verið að slaka á þá er mik­il­vægt að fólk haldi áfram að passa sig. Þetta þýðir ekki það að við getum lifað hinu villta góða lífi.“

Ekkert virkt smit hefur greinst utan sótt­kvíar inn­an­lands frá fyrsta febr­úar. Þórólfur segir að auð­vitað séu ákveðnar áhyggjur fyrir hendi um að þegar slakað verði á aðgerðum ger­ist eitt­hvað. Aðstæður séu hins vegar mun betri á landa­mærum nú en áður. „Staða okkar er allt öðru­vísi núna,“ sagði hann um sam­an­burð við síð­asta sumar. „En vissu­lega er hættan alltaf fyrir hendi að far­ald­ur­inn blossi upp aftur. En við þurfum alltaf að lifa við þá hættu sama hvað við gerum.“

58 ekki með vottorð á landamærunum

Síðustu vikur hafa um 170-180 far­þegar komið lands­ins dag­lega. Á föstu­dag tóku gildi nýjar reglur á landa­mær­unum og er öllum far­þegum nú skylt að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi, sem ekki má vera eldra en 72 stunda gam­alt, við kom­una til lands­ins. Þeir sem hafa gilt vott­orð um bólu­setn­ingu eða að hafa náð bata af COVID-19 eru und­an­þegnir því.

Um helg­ina komu 706 far­þegar til lands­ins og 503 fram­vís­uðu nei­kvæðu PCR-prófi. 51 fram­vís­aði vott­orði um fyrri sýk­ingu og 54 vott­orði um bólu­setn­ingu. 58 voru ekki með vott­orð. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði að í vik­unni yrði farið að sekta þá sem ekki fram­vísa gildu vott­orði. Sekt­ar­upp­hæð hefur enn ekki verið ákveðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár