„Stærsta augnablik Íslandssögunnar síðan á 13. öld“

Íslenska karla­lands­liðið er til umfjöll­unar í öllum stærstu fjöl­miðlum heims í dag eftir frá­bært jafn­tefli gegn Portúgal á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu karla í gær­kvöldi. Birkir Bjarna­son skor­aði jöfn­un­ar­mark Íslands en fyr­ir­fram spáðu spark­spek­ingar Íslandi erf­iðum leik gegn stjörnu­prýddu liði Portúgal.

Skærasta stjarna þeirra Portú­gal­anna, Cristiano Ronaldo leik­maður Real Madrid á Spáni, var veru­lega von­svik­inn eftir leik­inn gegn Íslandi. Sögur segja að hann hafi neitað að taka í hönd­ina á íslensku leik­mönn­unum eftir leik eins og venja er eftir kapp­leiki af þessu tagi. Þegar fjöl­miðla­fólk náði tali af honum á leið frá leik­vang­inum í Saint Étienne lét hann svo smán­ar­leg orð falla um Ísland. Ísland hafi ekki spilað leik­inn heldur bara varist. „Að mínu viti er smá­menna­bragur á þessu og þeir eru ekki að fara gera neitt í keppn­inni,“ sagði Ronaldo.

Vef­út­gáfa breska götu­blaðs­ins The Mirror gerir Ronaldo einna best skil eftir leik­inn í gær. Þar veltir blaða­mað­ur­inn fyrir sér hvað einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar var að hugsa eftir því sem leið á leik­inn, útfrá svip­brigðum kappans.

Víð­lesn­asta dag­blaðið í Portúgal, Correio da Manhã, birtir stóra mynd af Kára Árnasyni og Cristiano Ronaldo á for­síðu sinni í dag með fyr­ir­sögn­inni „Ískaldur fót­bolti – sælu­víman fryst“.

Í sam­tali við sama blað við­ur­kennir Ronaldo að smá tauga­veiklun hafi ein­kennt þennan fyrsta leik liðs­ins á EM 2016. Hann er iðu­lega kall­aður CR7 í portú­gölskum miðlum. „Þetta er byrjað og nú höfum við engu að tapa. Við erum búnir að ná einum punkti á töfl­una og við verðum að vera jákvæðir. Við getum ekki séð eftir þessu,“ er haft eftir CR7 áður en vand­læt­ingu hans á leikstíl Íslands er lýst.

Bresku blöðin eru flest upp­tekn­ari af leik Englands og Wales á morgun en sum blöðin gefa leik Íslands pláss og leika sér, eins og von var á, með ís, frost og snjó. Íþrótta­út­gáfa götu­blaðs­ins i birtir stóra mynd af Birki Bjarna­syni undir fyr­ir­sögn­inni „The ice men cometh“.

The Guardian var með beina texta­lýs­ingu frá leiknum á vef sínum. Í lok leiks er haft eftir Patrick Sullivan, les­anda Guardian, að þetta jafn­tefli sé stærsta augna­blik Íslands­sög­unnar síðan á 13. öld, eða þegar Íslend­ingar hófu að rita Íslend­inga­sög­urnar í fyrsta sinn. „Þangað til voru það sögu­ljóð, þjóð­sögur og sagnir sem voru lagðar á minnið. Ég velti fyrir mér hvað verður skrifað um þetta!“

Í Aust­ur­ríki fjallar Kronen Zeitung, eitt víð­lesn­asta blað þar í landi, einnig um Ronaldo og ummæli hans eftir leik­inn. Leikur Aust­ur­ríkis og Ung­verja­lands er þó í fyrr­i­rúmi en þau lönd leika einnig í F-riðli móts­ins eins og Ísland og Portúgal.

Venju­legur fót­bolti er alltaf að verða vin­sælli og vin­sælli í Banda­ríkj­unum, þó hinn amer­íski sé alltaf jafn vin­sæll. USA Today fjallar um jafn­tefli Íslands undir fyr­ir­sögn­inni: „Iceland earns stunn­ing draw aga­inst Portugal at Euro 2016“. Það er ekki oft sem fréttir af fót­bolta fjalli um slá­andi jafn­tefli enda eru slík úrslit yfir­leitt akkúrat ekki slá­andi.

Í Danmörku hefur Politi­ken breytt haus vefs­ins og málað merki sitt í íslensku fána­lit­unum og til hliðar ritað „Áfram Ísland! Tillykke med det første point, Island!“. Takk fyrir það, Danir. Vonandi fáið þið líka að vera með næst. Í gær hafði for­síða prent­uðu útgáfu Politi­ken prýtt íslenska fán­ann og skila­boðum beint til Íslend­inga: „Skrúfið aðeins niður í vænt­ing­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár