Algjörlega tilbúinn í hið pólitíska at sem fylgir því að stýra RÚV

Stefán Eiríks­son seg­ist að sjálf­sögðu hafa sínar póli­tísku skoð­anir og lífs­við­horf, en sé ekki tengdur neinum stjórn­mála­flokkum og með góða reynslu af því að takast á við stjórn­mála­menn.

Nýr útvarps­stjóri hefur verið skip­aður. Þar til fjórum dögum áður en til­kynnt var um hver myndi hreppa starfið hafði nafn hans vart verið nefnt í sam­hengi við það. Enda fáum sem datt í hug að lög­fræð­ingur sem starf­aði síð­ast á fjöl­miðlum árið 1996, tveimur árum áður en mbl.is fór í loftið, væri að sækj­ast eftir því að stýra stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Aðspurður segir Stefán Eiríks­son enda sjálfur að það sé ágætis spurn­ing af hverju fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og borg­ar­rit­ari vilji verða útvarps­stjóri RÚV.

„Ég hef haft þá trú og skoðun eftir að ég fór að vinna í stjórn­un­ar­stöðum innan stjórn­sýsl­unnar að því ætti að vera afmark­aður tími. Að stjórn­endur ættu að vera í til­tek­inn tíma, fimm til tíu ár, á hverjum stað. Ég gaf það skýrt til kynna þegar ég tók við sem lög­reglu­stjóri að þannig horfði ég á þetta og þannig er það enn. Ég er búinn að vera núna rúm fimm ár hjá Reykja­vík­ur­borg. Það hefur verið frá­bær tími.

En svo opn­að­ist þarna tæki­færi þegar ég las aug­lýs­ing­una um starf útvarps­stjóra RÚV og ég ákvað að láta á þetta reyna. Ég hef mik­inn áhuga á fjöl­miðlum og þróun á því sviði, fyrir utan að vera sér­stakur aðdá­andi Rík­is­út­varps­ins.“

Það voru ekki allir sáttir með valið á Stefáni í stöð­una. Að minnsta kosti tveir hinna rúm­lega 40 umsækj­end­anna hafa kallað eftir rök­stuðn­ingi fyrir val­inu, þær Kristín Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, og Kolbrún Hall­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sem var ásamt Stefáni sú síð­asta úr hópi umsækj­enda sem stóð eftir. Stjórn RÚV kaus svo á milli þeirra. Kolbrún sagði nýlega í sam­tali við Stundina að hún teldi líkur á því að hún væri órétti beitt og að hennar per­sónu­lega mat væri „að þarna hafi minna hæfur karl­maður verið tek­inn fram yfir hæf­ari konu“.

Í þessu sam­hengi hefur mikið verið bent á ætlað reynslu­leysi Stefáns af fjöl­miðla­störfum. Hann kippir sér þó ekk­ert upp við að vera beð­inn um að rök­styðja hvað það sé sem geri það að verkum að það hafi verið rétt­læt­an­legt að taka hann fram yfir aðra umsækj­endur. „Ég horfði á þær kröfur sem stjórn RÚV gerði í sinni aug­lýs­ingu og sá að þar var verið að kalla eftir ein­stak­lingi sem hefði mikla stjórn­un­ar­reynslu. Hefði reynslu af mótun og inn­leið­ingu stefnu og hefði sýn á það hvernig væri hægt að takast á við þá þróun sem er framundan. En það var auð­vitað líka verið að kalla eftir þekk­ingu og reynslu á sviði fjöl­miðl­unar, menn­ing­ar­mála og fleiri atriða.

Ég taldi ein­fald­lega að ég hefði eitt og annað fram að færa. Minn styrk­leiki felst auð­vitað í því að ég hef verið stjórn­andi hjá opin­berum stofn­unum, stjórn­ar­for­maður í opin­beru hluta­fé­lagi, verið í eig­anda­hlut­verki fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar gagn­vart hluta­fé­lögum í eigu borg­ar­innar og svo fram­vegis. Þetta greini­lega vóg þungt í mati stjórnar RÚV, myndi ég halda. Þó svo að fólk með mjög mikla reynslu af fjöl­miðlum hafi auð­vitað mjög margt fram að færa þá skor­uðu þau kannski ekki jafnt hátt þegar kom að þess­ari stjórn­un­ar­reynslu.“

Stefán hefur verið var­fær­inn á yfir­lýs­ingar um þær áherslu­breyt­ingar sem kunni að fylgja honum þegar hann hefur störf á RÚV 1. mars næst­kom­andi. Þegar hann er spurður hvort að RÚV hafi aðlag­ast þeim breyt­ingum í neyslu­hegðun og miðlun efnis sem kúvent hefur fjöl­miðla­heim­inum á örfáum árum, og hvort hann sé þegar búinn að sjá tæki­færi fyrir rík­is­fjöl­mið­il­inn að gera betur í þeim efnum. þá seg­ist hann telja að RÚV hafi staðið sig nokkuð vel í aðlög­un­inni hingað til. „En ég held að við þurfum að gera okkur grein fyrir því að RÚV er, í sam­an­burði við þessar erlendu streym­isveitur, pínu­lít­ill aðili. Þetta er örmið­ill í sam­an­burði við þessa stóru. Ef að RÚV á ekki að týn­ast þá er klárt mál í mínum huga að það þarf að hlúa mjög vel að þessu. Að öllum þessum málum sem snúa að hug­bún­aði og hvernig efn­inu er miðlað og vera á tánum hvað það varðar.“

Ef það á að draga saman hjá RÚV þurfa stjórnmálamenn að segja hvernig

Tekjur RÚV á árinu 2018 voru 6,7 millj­arðar króna. Þar af komu 4,3 millj­arðar króna úr opin­berum sjóðum vegna inn­heimtu á útvarps­gjaldi og tæpir 2,4 millj­arðar króna vegna sam­keppn­i­s­tekna, sem eru að uppi­stöðu sala á aug­lýs­ingum í sjón­varpi og útvarpi.

Sú fram­þróun sem átt hefur sér stað í fjöl­miðlum hefur að mestu átt sér stað í ólínu­legri dag­skrá þar sem neyt­endur geta valið sér hvað þeir horfa eða hlusta á þegar þá langar til. Sú miðlun á sér að stóru leyti stað í gegnum efn­isveitur og á inter­net­inu, á sviðum sem RÚV má ekki afla sér tekna sam­kvæmt lögum.

Stefán telur að línu­leg dag­skrá sé ekki á und­an­haldi þótt RÚV verði að mæta ofan­greindri þróun eins og aðrir fjöl­miðlar. Hann gerir sér grein fyrir því að það séu tölu­verðar tak­mark­anir á því hvernig RÚV getur aflað sér sam­keppn­i­s­tekna en finnst hins vegar engin ástæða til að víkka út þann ramma sem RÚV hefur á því sviði. „ Þetta er auð­vitað ein af þeim áskor­unum sem Rík­is­út­varpið mun standa frammi fyrir á næstu fimm til tíu árum. Það er alveg fyr­ir­sjá­an­legt að tekjur af aug­lýs­ingum munu í meira mæli fara í gegnum nýja miðla og nýjar leiðir til miðl­unar þar sem RÚV hefur ekki heim­ild, sam­kvæmt lögum, að afla sér tekna, heldur verður að halda sig við, eins og ramm­inn er í dag, þessa hefð­bundnu línu­lega dag­skrá í þeim efnum.

RÚV er stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins og þrátt fyrir mikið traust almennings til þess þá er RÚV einnig afar umdeilt í mörgum kreðsum.
RÚV er stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins og þrátt fyrir mikið traust almenn­ings til þess þá er RÚV einnig afar umdeilt í mörgum kreðsum.

Í mínum huga er það áskorun og ef að tekjur RÚV munu drag­ast umtals­vert saman, af hvaða ástæðu svo sem sem það er, þá er það eitt­hvað sem þarf að mæta með minna umfangi eða færri tæki­færum til að koma efn­inu á fram­færi. Það segir sig bara sjálft. Þetta snýst um hvaða rammi er settur utan um RÚV og það eru stjórn­mála­menn sem gera það á hverjum tíma.“

Hann segir að sú þróun sem orðið hefur á fjöl­miðlaum­hverf­inu á síð­ustu tíu árum sé sér­lega áhuga­verð. Hvernig miðl­un­ar­mögu­leikar hafi breyst, hvernig eigi að koma fréttum og öðru efni sem fjöl­miðlar séu að fram­leiða til þeirra sem nota þjón­ust­una. „Svipað og þegar að Kjarninn var að hefja sína starf­semi og gaf út sín fyrstu tölu­blöð á spjald­tölvu. Mér fannst það vera áhuga­verð nýj­ung inn í ansi staðnað fjöl­miðlaum­hverfi. Ég skrif­aði pistla í þessi fyrstu tölu­blöð sem lög­reglu­stjóri og nýtti mér þann vett­vang til að koma ýmsum málum á fram­færi og inn í umræð­una.“

Algjörlega tilbúinn í atið

RÚV er sjá fjöl­mið­ill á land­inu sem nýtur mest trausts. Og það hefur vaxið frekar en hitt á und­an­förnum árum. Þótt staða fyr­ir­tæk­is­ins sé sterk á meðal þjóð­ar­innar sem heildar þá velk­ist heldur eng­inn í vafa um að RÚV er umdeilt fyr­ir­tæki. Fram­ganga frétta­stof­unnar og ein­stakra dag­skrár­gerð­ar­manna er oft til almennrar umræðu og ratar jafn­vel inn á hið póli­tíska svið.

Það liggur ein­fald­lega fyrir að til staðar eru margir stjórn­mála­menn sem vilja leggja RÚV niður eða hið minnsta tak­marka starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins veru­lega, þó þeir séu lík­ast til sem stendur fjarri því að vera í meiri­hluta. Nánast dag­lega má sjá umræður á sam­fé­lags­miðlum þar sem þekktir álits­gjafar, fólk tengt stjórn­mála­flokkum eða aðrir sem halda á gjall­ar­horn­inu hverju sinni, opin­bera mein­ingar um ætl­aða slag­síðu RÚV í hinum og þessum málum. Fólk til vinstri ætlar frétta­stof­unni að vera mál­pípa íhalds­ins og skil­greindir hægri­menn segja hana margir hverjir vera óop­in­bera deild félags­hyggju­flokka.

Hvort sem Stefáni Eiríks­syni líkar betur eða verr þá var hann að ráða sig í stöðu sem fylgir mikið póli­tískt at. Er hann til­bú­inn í það?

„Ég er algjör­lega til­bú­inn í það. Ég hef starfað í þessu umhverfi innan stjórn­sýsl­unnar þar sem það hefur verið mikið nálægð við póli­tík­ina. Kannski fyrst og síð­ast í ráðu­neyt­inu og í Reykja­vík­ur­borg þar sem ég hef unnið mjög náið með kjörnum full­trúum að ýmsum málum. Ég held að sumu leyti sé meiri fjar­lægð frá póli­tík­inni hjá Rík­is­út­varp­inu þótt það sé oft í umræð­unni. Þetta jafn­vægi, að gagn­rýnin kemur úr öllum áttum, frá hægri til vinstri, frá frjáls­lyndum og íhalds­sömum og svo fram­vegis, held ég að sýni að RÚV gangi, og hefur gengið, nokkuð vel á liðnum árum og ára­tugum að finna jafn­vægi þarna á milli.“

Með sínar skoðanir og lífsviðhorf

Stefán er ekki reynslu­laus þegar kemur að átökum við kjörna full­trúa. Hann var lög­reglu­stjóri þegar leka­málið stóð yfir og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, hót­aði honum að þegar mál­inu yrði lokið þyrfti „að rann­saka rann­sókn lög­reglu og rík­is­sak­sókn­ara“. Hanna Birna baðst síðar afsök­unar á þeim ummælum en þurfti samt sem áður að segja af sér emb­ætti vegna máls­ins í lok árs 2014.

Sem borg­ar­rit­ari skrif­aði Stefán stöð­u­­upp­­­færslu í lok­aðan Facebook-hóp ­starfs­­manna Reykja­vík­­­ur­­borgar þann 21. febr­­úar 2019 þar sem hann sagði fáeina borg­­ar­­full­­trúa ítrekað hafa vænt starfs­­fólk borg­­ar­innar um óheið­­ar­­leika og vegið með ýmsum öðrum hætti að starfs­heiðri þeirra, bæði beint og óbeint. Sagði hann þessa hegð­un, atferli og fram­komu vera til skammar og um leið til mik­ils tjóns fyrir Reykja­vík­­­ur­­borg, starfs­­fólk hennar og íbúa alla. Stefán nefndi hins vegar engan borg­­ar­­full­­trúa í færslu sinn­i, en nokkuð víst er að hann átti þar við full­trúa úr minni­hluta borg­ar­stjórn­ar, sem höfðu gagn­rýnt starfs­menn borg­ar­innar opin­ber­lega. Þar fór fremst í flokki Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, sem brást við ráðn­ingu Stefáns í stól útvarps­stjóra með því að segja á Facebook: „Eru allir búnir að gleyma því að hann kall­aði okkur í minni­hlut­anum „tudda á skóla­lóð“. Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir okkur verð ég að segja – hlut­leysi hvað?“.

Stefán Eiríksson hefur verið bæði lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og borgarritari.
Stefán Eiríks­son hefur verið bæði lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og borg­ar­rit­ari.

Það fór enda mik­ill sam­kvæm­is­leikur í gang strax og til­kynnt var um ráðn­ingu Stefáns þar sem reynt var að setja á hann ákveð­inn póli­tískan hatt og sá hattur rök­studdur með ein­hverri vísun í fyrri störf hans.

Hann segir að það skipti örugg­lega máli, nú þegar hann sest í stól útvarps­stjóra, að hafa þá reynslu sem hann hefur af sam­skiptum við stjórn­mála­menn, og rakin er hér að ofan. „En þetta er ekk­ert sem truflar mig eða ég ótt­ast eða er kvíð­inn fyrir því að að takast á við þetta sam­tal. Það góða við þetta, eins og með Rík­is­út­varpið, er að ég hef verið stað­settur á öllum stöðum á hinum póli­tíska kvarða. Ég hef að sjálf­sögðu mínar póli­tísku skoð­anir og mín lífs­við­horf þó að ég hafi ekki verið í flokkspóli­tísku starfi eða komið nálægt því, nema á síð­ustu árum í ein­staka próf­kjörum til að styðja vini mína, á ung­lings­árum og í háskóla og eitt­hvað slíkt. Ég hef engar sér­stakar áhyggjur af þessu póli­tíska umhverfi og það er bara hluti af Rík­is­út­varp­inu, eðli máls­ins sam­kvæmt, að þar er mikil póli­tík og miklar bolla­leng­ingar um ýmsa hluti.“

RÚV ekki of stórt

Rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hefur verið ansi skraut­legt á und­an­förnum árum. Síðustu tíu ár sér­stak­lega, sam­hliða því að helstu hefð­bundnu tekju­stoðir þeirra, aug­lýs­inga- og áskrift­ar­sala, hafa gefið veru­lega undan. Margir stærstu miðl­arnir hafa til að mynda verið reknir í botn­lausu tapi árum saman.

Á meðan má færa rök fyrir því að starf­semi RÚV hafi verið að styrkj­ast umtals­vert. Þar skiptir mestu máli að fyr­ir­tækið seldi bygg­inga­lóðir í kringum höf­uð­stöðvar sínar í Efsta­leiti fyrir hátt í tvo millj­arða króna og samdi síðan um að ýta ógreiddum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum inn í fram­tíð­ina með því að lengja í greiðslu­ferli þeirra til árs­ins 2057. Með þessu var skapað mun skap­legra rekstr­ar­um­hverfi fyrir stjórn­endur RÚV á síð­ustu árum. Og það rekstr­ar­um­hverfi mun Stefán, að ein­hverju leyti, ganga inn í. Að minnsta kosti að óbreyttu.

Hann seg­ist ekki hafa neinar áhyggjur af því að RÚV sé í betri rekstr­ar­stöðu en sam­keppn­is­að­ilar þess. „Ég upp­lifi það ekki þannig að RÚV sé of stórt í vissum skiln­ingi, en það er vissu­lega stórt. Hlut­verkið sem að Rík­is­út­varp­inu er ætlað lögum sam­kvæmt og sam­kvæmt þjón­ustu­samn­ingi hefur mjög víð­tæku og fjöl­breyttu hlut­verki í sam­fé­lag­inu að gegna. Ég held satt best að segja að það sé mik­ill meiri­hluti almenn­ings og stjórn­mála­manna sem vilja að Rík­is­út­varpið haldi áfram að sinna því hlut­verki en að sama skapi er mik­il­vægt að það séu starf­andi sjálf­stæðir aðrir óháðir fjöl­miðlar og að þeir fái stuðn­ing, eins og mennta­mála­ráð­herra er búin að teikna upp með ákveðnum hætti í sínu frum­varpi, til þess að sinna sínum störfum með góðum hætti.

En að saman skapi verða allir fjöl­miðlar, Rík­is­út­varpið, sem er á aug­lýs­inga­mark­aði að hluta, og síðan aðrir fjöl­miðlar að aðlaga sig að þessu breytta sam­fé­lagi. Og aðlaga sig að breyttu umhverfi um miðlun og sölu aug­lýs­inga og slíks efnis. Ef að við­kom­andi er ekki á tánum hvað það varðar þá verður hann hratt og örugg­lega undir. Og við höfum séð alveg gríð­ar­legar svipt­ingar á þessum mark­aði.“

Stefán minnt­ist á frum­varp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla, sem mælt var fyrir í des­em­ber í fyrra og situr nú fast inni í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Staða RÚV, og sér­stak­lega þátt­taka þess á aug­lýs­inga­mark­aði, er ítrekað tengd við umræðu um það frum­varp og jafn­vel því að það fái fram að ganga.

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að ef að til stendur að gera einhverjar takmarkanir á því hvernig RÚV vinnur á auglýsingamarkaði þá verði að fylgja með mjög skýr skilaboð um úr hverju eigi að draga, segir Stefán Eiríksson.
„Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að ef að til stendur að gera ein­hverjar tak­mark­anir á því hvernig RÚV vinnur á aug­lýs­inga­mark­aði þá verði að fylgja með mjög skýr skila­boð um úr hverju eigi að draga, segir Stefán Eiríks­son.

Stefán seg­ist ekki hafa sett sig neitt inn í það póli­tíska umhverfi sem fylgi frum­varp­inu né umræð­unni sem því fylgir um RÚV umfram það sem hann hafi lesið í fjöl­miðlum. „Ég er ekki tek­inn við sem útvarps­stjóri og hef ekki fengið inn­sýn í þau mál frá þeim sjón­ar­hóli. En ég held að það sé mjög mik­il­vægt að ef að til stendur að gera ein­hverjar tak­mark­anir á því hvernig RÚV vinnur á aug­lýs­inga­mark­aði þá verði að fylgja með mjög skýr skila­boð um úr hverju eigi að draga. Hvað eigi þá að láta undan í rekstri RÚV. Það hlýtur þá að kalla á breyt­ingar á lög­unum sem um Rík­is­út­varpið gilda því þú getur ekki á sama tíma sett kröfu um það að þú sinnir ein­hverju hlut­verki en dregið svo úr tekj­unum án þess að taka stefnu­mark­andi ákvörðun um það hvað eigi að gera. Það er í höndum stjórn­mála­manna.“

Hefur mikinn áhuga á að auka sérhæfingu

RÚV, og sér­stak­lega frétta­stofu fyr­ir­tæk­is­ins, er gert að vera með frétta­þjón­ustu allan sól­ar­hring­inn. Þar eru því gengnar vaktir. Annað veifið hafa yfir­menn frétta­deildar, þar með talin núver­andi frétta­stjóri Rakel Þor­bergs­dóttir, greint frá því opin­ber­lega að það sé tak­markað hvað frétta­menn sem „séu í mokstri allan dag­inn“, eins og hún orð­aði það í bók­inni Þján­ing­ar­frelsið sem kom út árið 2018, geti sér­hæft sig.

Aðspurður hvort það sé eitt­hvað sem hann muni leggja áherslu á, að auka tæki­færi starfs­manna RÚV, sér­stak­lega innan frétta­stof­unnar, til að sér­hæfa sig, svarar Stefán því ját­andi. „Alveg tví­mæla­laust. Ég held að það sé eitt af þessum mik­il­vægu hlut­verkum sem RÚV sinnir í sam­bandi við fréttir og miðlun þeirra að sinna dýpri frétta­mennsku. Að gefa þeim sem að starfa á frétta­stof­unni og í sér­hæfðum þáttum tæki­færi til að helga sig til­teknum málum, eða mála­flokkum jafn­vel. Eins og hefur raunar verið gert á und­an­förnum árum, með nokkrum góðum árangri myndi ég segja. Ég held að það sé alveg klárt mál að sér­staða Rík­is­út­varps­ins hlýtur að liggja þarna. Þess vegna hef ég mik­inn áhuga á því að leggja mikla áherslu á þetta.“

RÚV er auð­vitað ekki venju­legt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki. Það hefur til að mynda víð­tækum örygg­is­skyldum að gegna sam­kvæmt sér­lögum þess, þar sem stendur m.a.: Rík­is­út­varpið skal í sam­vinnu við til þess bær stjórn­völd tryggja nauð­syn­lega örygg­is­þjón­ustu með upp­lýs­inga­miðlun um útvarp og þegar við á eftir öðrum boð­leiðum. Rík­is­út­varpið skal í því skyni setja sér örygg­is­stefnu um órof­inn rekstur hljóð­varps­þjón­ustu um land allt og á næstu miðum.“

Stefán þekkir almanna­varna­hlut­verki vel úr annarri átt, frá því að hann var lög­reglu­stjóri. Þegar hann er spurður hvort að RÚV sé að beita réttum miðl­un­ar­leiðum til að full­nægja þessu örygg­is­hlut­verki sem fyr­ir­tæk­inu er ætlað sam­kvæmt lögum segir að það sé hlutur sem hann hafi velt tölu­vert fyrir sér. „Sér­stak­lega þegar ég var hinum megin við borðið hjá lög­regl­unni og var þar í ákveðnu hlut­verki í almanna­varnar­á­standi til dæmis. Mér þótti það á þessum tíma að RÚV héldi sig á þessum tíma, kannski af til­lit­semi við aðra fjöl­miðla, örlítið til baka, þrátt fyrir mjög skýrt hlut­verk sam­kvæmt lögum þegar að slíkt ástand er uppi.

Ég held að RÚV eigi ekk­ert að vera feimið við það að sinna þessu hlut­verki og sinna því í þágu alls almenn­ings í land­inu og í raun­inni í þágu allra fjöl­miðla í land­inu. Ég held að það sé atriði sem ég myndi vilja skoða og ræða innan veggja Rík­is­út­varps­ins hvernig við getum nálg­ast örygg­is­hlut­verkið og fleiri hlut­verk með það fyrir augum að við séum ekki að búa alltaf til ein­hver mis­mun­andi lið, við og þið, heldur að Rík­is­út­varpið hafi það hlut­verk að vera í sam­starfi með öðrum fjöl­miðlum og eftir atvikum fleiri, í slíkum verkum.“

Vill opna safn RÚV fyrir öllum til afnota

Stefán sér líka tæki­færi í að breyta og þróa þegar kemur að öllu því efni sem er fram­leitt hjá RÚV, og er til staðar í safni fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég vil að þetta sé opið og aðgengi­legt öllum almenn­ingi og öðrum fjöl­miðlum til frjálsra nota. Í raun­inni eru einu tak­mark­anir þá rétt­hafa­tak­mark­anir sem tengj­ast þá samn­ingum við lista­menn og eitt­hvað slíkt. En svo­leiðis opnun held ég að geti skipt mjög miklu máli. Þannig að mið­ill eins og til dæmis Kjarninn geti nýtt sé efni sem er aðgengi­legt hjá RÚV og hafi í raun­inni fulla heim­ild til að gera það.“

Hann við­ur­kennir að búa ekki per­sónu­lega yfir tækni­legu þekk­ing­unni til að fram­kvæma þessa hug­mynd né átta sig, eins og stendur, almenni­lega á umfangi þess að gera allt þetta efni aðgengi­legt. Stefán er hins vegar sann­færður um að ríkið geti fundið leiðir til að sinna þessu hlut­verki sínu með hag­kvæmum hætti, að geyma og miðla efni. „Það er auð­vitað gríð­ar­lega mikið efni sem er verið að fram­leiða á vegum rík­is­ins. Ef þú horfir bara á lög­regl­una, þar sem að allar yfir­heyrslur eru teknar upp og vistaðar á ein­hverjum ákveðnum stað og aðgengi­legar fyrir lög­reglu, ákæru­vald og dóm­stóla ef svo ber undir. Allt sem ger­ist inni hjá dóm­stól­unum er tekið upp. Og ýmsir fleiri opin­berir aðilar sem eru í þessu svo ég tali ekki um opin­ber söfn eins og Þjóð­skjala­safnið, Borg­ar­skjala­safnið, bóka­söfnin í land­inu og allt það.

Af hverju búum við ekki til ein­hvern einn stað þar sem við getum vistað þetta efni? Og gert það aðgengi­legt að teknu til­liti til að það þarf auð­vitað að tak­marka aðgang að ýmsu af þessu efni með ýmsum hætti, en þetta ætti að vera hægt að gera með ákveðnum hætti.

Rík­is­út­varpið er auð­vitað að starfa í þágu allra lands­manna. Það efni sem þar hefur orðið til á að vera aðgengi­legt öllum lands­mönnum. Ég held að það væri rétt og eðli­legt að stiga það skref að aðrir fjöl­miðlar geti nýtt sér þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár