Sjö ný innanlandssmit í gær

Alls eru 58 ein­stak­lingar í ein­angrun. Í sótt­kví eru nú 454 ein­stak­lingar en þeir voru 287 í gær.

Samkvæmt upp­lýs­ingum af covid.is eru nú 58 ein­stak­lingar í ein­angrun vegna kór­ónu­veirunnar. Af þeim 489 sýnum sem greind voru á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans í gær reynd­ust 7 þeirra vera jákvæð. Ekkert þeirra 835 sýna sem greind voru af Íslenskri erfða­grein­ingu reynd­ist jákvætt. Einn ein­stak­lingur bíður eftir mótefna­mæl­ingu eftir skimun á landa­mærum í gær. Í sótt­kví eru 454 ein­stak­lingar en til sam­an­burðar voru 287 í sótt­kví í gær. Einn sjúk­lingur með COVID-19 liggur á Land­spít­al­anum.

Boðað hefur verið til upp­lýs­inga­fundar Almanna­varna klukkan 14 í dag þar sem þau Alma D. Möller, land­læknir, Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn og Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, fara yfir stöðu mála varð­andi fram­gang kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér á landi.

Tvö smituð á Vestfjörðum

Á Facebooksíðu Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða er greint frá því að tvö eru smituð af COVID-19 á Vest­fjörðum. Annað er erlendur rík­is­borg­ari með ísfir­skt lög­heim­ili sem var að koma heim frá Evrópu. Þegar hann var kom­inn heim hafði hann fengið bæði ein­kenni og jákvæða nið­ur­stöðu úr sýna­töku sem tekin var við landa­mærin. Hinn ein­stak­ling­ur­inn er ferða­maður á hús­bíl sem greind­ist smit­aður við kom­una til lands­ins. Ferða­mað­ur­inn bíður nú í far­sótta­húsi eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu.

„Þessi smit und­ir­strika mik­il­vægi þess að bæði Íslend­ingar og erlendir rík­is­borg­arar sýni var­kárni, líka við hér vestur á fjörðum sem höfum kannski vonað að við gætum sloppið vel þetta skiptið,“ er haft eftir Súsönnu Björgu Ást­valds­dóttur, umdæm­is­lækni sótt­varna á Vest­fjörðum, í Facebookfærslu á síðu Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár