Landsframleiðsla Íslands skreppur saman

Árs­tíð­ar­leið­rétt lands­fram­leiðsla dróst saman um 3% á öðrum árs­fjórð­ungi.

Mannfjöldi
Mann­fjöldi Mynd: Golli

Sam­dráttur varð í lands­fram­leiðslu Íslands sem nemur 1,1% á öðrum árs­fjórð­ungi að raun­virði, sam­kvæmt fyrsta mati Hag­stof­unnar. Engu að síður jókst sam­neysla um 1,2% á sama tíma­bili.

„Framlag vöru­við­skipta vegur þyngst í sam­drætt­inum en auk­inn halli á vöru­við­skiptum sam­an­borið við fyrra ár veldur því að fram­lag þeirra til hag­vaxtar er nei­kvætt um 2,9 pró­sentu­stig á öðrum árs­fjórð­ungi,“ segir Hag­stofan. Þjóð­ar­út­gjöld juk­ust að raun­virði um 1,6% á sama tíma og sam­dráttur var í lands­fram­leiðslu.

Á móti jókst lands­fram­leiðslan í heild fyrri helm­ing 2026 um 1,3%. Ekki er tekið til­lit til mann­fjölda­þró­unar og þar með lands­fram­leiðslu á mann. Hægt hefur á mann­fjölgun á árinu, sam­hliða auknu atvinnu­leysi.

Hag­stofan segir að áætlað sé að vöru- og þjón­ustu­við­skipti við útlönd hafi verið nei­kvæð um 87,8 millj­arða króna á öðrum árs­fjórð­ungi. Það sé tölu­vert meiri halli en á sama árs­fjórð­ungi síð­asta árs þegar hall­inn nam 66,2 millj­örðum króna.

Í tölum Hag­stof­unnar er einnig horft til árs­tíð­ar­leið­réttrar lands­fram­leiðslu. Hún dróst saman meira, eða um 3% á öðrum árs­fjórð­ungi miðað við fyrsta árs­fjórð­ung.

Einka­neysla jókst um 0,1% á árs­tíða­leið­réttum mæli­kvarða, sam­neysla jókst um 0,4%, og fjár­muna­myndun hækk­aði um 18,5%. Á sama tíma­bili minnk­aði árs­tíða­leið­réttur útflutn­ingur um 6,7% en inn­flutn­ingur jókst um 13,1%.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Gott að sjá þennan lága hagvöxt. Hagvöxtur er svo óumhverfisvænn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár