Logi biður Guðlaug Þór um nánari útskýringar á heimsókn Pence

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir utan­rík­is­ráð­herra hafa sleppt því að nefna að ástæða heim­sóknar Mike Pence til Íslands sé land­fræði­legt mik­il­vægi Íslands á norð­ur­slóðum og aðgerðir NATO til að bregð­ast við auknum umsvifum Rúss­lands.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, haldi því fram að til­efni heim­sóknar Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, til Íslands sé sam­starf á sviði efna­hags- og við­skipta­mála. Guð­laugur Þór hafi þó sleppt því að nefna að ástæða heim­sókn­ar­innar sé að und­ir­strika land­fræði­legt mik­il­vægi Íslands á norð­ur­slóðum og aðgerðir NATÓ til að bregð­ast við auknum umsvifum Rúss­lands.

„Mörgum brá eðli­lega í brún snemm­sum­ars þegar rík­is­stjórnin færði 300 millj­ónir af fyr­ir­hug­uðum fram­lögum til þró­un­ar­að­stoðar í við­hald mann­virkja NATÓ á Kefla­vík­ur­flug­velli. Enn frekar þegar í ljós kom að umfang fram­kvæmda virð­ist marg­falt það sem kynnt var,“ segir í færsl­unni.

[adspot]Logi segir að þann 23. júlí síð­ast­lið­inn hafi hann óskað eftir því að utan­rík­is­ráð­herra, eða að minnsta kosti full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, kæmi á fund utan­rík­is­mála­nefndar og gerði betur grein fyrir þeirri upp­bygg­ingu sem nú er fyr­ir­huguð á varn­ar­svæð­inu í Keflavík. „Ég bað einnig um að gerð verði betri grein fyrir hvaða áform eru um við­veru her­manna þar. Mér hefur ekki borist svar en hef ítrekað beiðni mína og í leið­inni beðið um munn­lega skýrslu vegna heim­sóknar Pence til lands­ins.“

NATO og norðurslóðir helsta umræðuefnið

[links]Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, mun koma í opin­bera heim­sókn til Íslands 4. sept­em­ber næst­kom­andi. Pence mun einnig heim­sækja Bret­land og Írland í þess­ari ferð þar sem hann kemur fram fyrir hönd Don­ald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Hvíta hús­inu sem birt var í gær­kvöldi. Þar segir að í ferð sinni til Íslands muni Pence und­ir­strika mik­il­vægi Íslands á Norð­ur­slóðum og ræða aðgerðir NATO til að vinna gegn auknum yfir­gangi Rússa á því svæði. Þá muni hann ræða tæki­færi til að ræða aukn­ingu á við­skiptum og fjár­fest­ingum milli land­anna, en eng­inn frí­versl­un­ar­samn­ingur er í gildi sem stendur milli Íslands og Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár