Mike Pence kemur til Íslands 4. september

Vara­for­seti Banda­ríkj­anna mun koma í opin­bera heim­sókn til Íslands í næsta mán­uði, sem full­trúi Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Hann mun meðal ann­ars ræða mögu­leik­ann á auknum við­skiptum milli Íslands og Banda­ríkj­anna.

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, mun koma í opin­bera heim­sókn til Íslands 4. sept­em­ber næst­kom­andi. Pence mun einnig heim­sækja Bretland og Írland í þess­ari ferð þar sem hann kemur fram fyrir hönd Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Hvíta hús­inu sem birt var í gær­kvöldi. Upp­haf­lega stóð þar að Pence myndi koma 3. sept­em­ber en í leið­réttri til­kynn­ingu var heim­sóknin færð um einn dag. Fréttin hefur verið leið­rétt í sam­ræmi við þetta. Þar segir að í ferð sinni til Íslands muni Pence und­ir­strika mik­il­vægi Íslands á Norð­ur­slóðum og ræða aðgerðir NATO til að vinna gegn auknum yfir­gangi Rússa á því svæði. Þá muni hann ræða tæki­færi til að ræða aukn­ingu á við­skiptum og fjár­fest­ingum milli land­anna, en eng­inn frí­versl­un­ar­samn­ingur er í gildi sem stendur milli Íslands og Banda­ríkj­anna.

Í kjöl­far Íslands­heim­sóknar Pence mun hann halda til Bret­lands þar sem meg­in­til­gangur heim­sókn­ar­innar verður að ræða styrk­ingu efna­hags­legra sam­skipta Banda­ríkj­anna og Bret­lands í kjöl­far Brexit, sem fyr­ir­hugað er að verði 31. októ­ber næst­kom­andi. Þá mun Pence ræða aðgerðir til að vinna gegn auk­inni fyr­ir­ferð Íran í Mið­aust­ur­löndum og víðar og aukin áhrif Kínverja, meðal ann­ars á þróun 5G fjar­skipta­kerfa.

Pence fer þaðan til Írlands til að hitta Leo Varadkar, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, til að koma á fram­færi skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna við frið, vel­sæld og stöð­ug­leika á Írlandi með því að við­halda frið­ar­sam­komu­lag­inu á Norður- Írlandi sem gert var í kringum síð­ustu ald­ar­mót. Vara­for­set­inn ætlar einnig að ræða mögu­lega styrk­ingu á efna­hags­sam­skiptum Banda­ríkj­anna við Írland.

Hvíta húsið hefur sagst vera til­búin að gera stóran frí­versl­un­ar­samn­ing við Breta gangi þeir út úr Evr­ópu­sam­band­inu. Slíkan samn­ing þyrfti hins vegar að sam­þykkja í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings, þar sem demókratar eru í meiri­hluta. Nancy Peloci, for­seti full­trúa­deild­ar­innar, sagði í gær að slíkur samn­ingur myndi ekki verða sam­þykktur í deild­inni ef hann setti frið­ar­sam­komu­lagið á Norður-Írlandi í hættu, en eitt helsta bit­beinið í deilum Breta við Evr­ópu­sam­bandið um útgöngu þeirra snýr að því hvort að landamæra­eft­ir­lit verði tekið upp á landa­mær­unum milli Írlands og Norður-Írlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár