Banksy málaði mynd af Steve Jobs í Calais

Í bænum Calais er stærstu flótta­manna­búðir Frakk­lands. Þar haf­ast við um 4.500 flótta­menn í tjald­búðum og freista þess að kom­ast yfir Erma­sundið til Bret­lands. Flestir þeirra eru frá Sýrlandi. Á þessu svæði, sem er kallað frum­skóg­ur­inn, hefur mynd­ast neyð­ar­á­stand und­an­farna mán­uði: kuldi, hungur og mikil örvænt­ing hefur gripið um sig þegar fólk hefur reynt að ryðj­ast inn í Erma­sunds­göngin.

Borg­ar­yf­ir­völd og ýmis félaga­sam­tök hafa reynt sitt besta til þess að veita flótta­mönnum ein­hverja lág­marks­þjón­ustu og hjálp. Margir hafa fært þeim föt, teppi, mat og lyf í vetr­ar­kuld­anum. Einn þeirra sem nú leggur þeim lið er lista­mað­ur­inn og huldu­mað­ur­inn Bansky. Hann hefur málað fjórar mynd á veggi í Calais; ein af þeim sýnir sýr­lenska flótta­mann­inn Steve Jobs.

Arfleið flóttamanna

Með þess­ari mynd vill Bansky minna á að flótta­menn eru ekki vanda­mál heldur auð­lind. Flótta­mað­ur­inn Steve Jobs stofn­aði eitt verð­mætasta fyr­ir­tæki heims, Apple, sem skilar meira en sjö millj­örðum doll­ara árlega í banda­ríska rík­is­kass­ann. Lista­verkið er því áminn­ing til Donald Trump, Marine le Pen og

því­líkra stjórn­mála­manna sem vilja herða inn­flytj­enda­lög­gjöf og landamæra­eft­ir­lit.

Bansky er einn þekkt­asti lista­maður heims þótt hann fari ávalt huldu höfði, þekktur fyrir póli­tísk og rót­tæk götu­lista­verk Flótta­menn í Calais hafa séð sér leik á borði við þetta upp­á­tæki hans og eru farnir að rukka inn aðgangs­eyri.

Verk Bansky eru millj­óna virði þótt hann skilji þau eftir úti á götu. Borg­ar­yf­ir­völd ætl­uðu sér því að skella plast­ramma eða ein­hverju yfir þessi mál­verk til þess að vernda þau, en flótta­menn­irnir, sem hafa tek­ið­miklu ást­fóstri við þau, hafa alveg séð um að gæta þeirra og rukka nú inn sjö pund til þess að fá að berja þau augum með góð­fús­legu leyfi lista­manns­ins. Verkið er þeirra. Hann hefur söm­leiðis til­kynnt að allt það efni sem notað var í sýn­ing­unni Dismaland, sem var eins­konar stíl­fær­ing á Dis­neylandi, verði flutt til Calais og end­ur­unnið til þess að byggja skýli.

Grafalvarlegt ástand

Stöðugur straumur flótta­manna til Calais hefur skapað mörg vanda­mál. Þeir telja grasið grænna hinum megin við sundið. Kannski ekki að ósekju. Margir franskir stjórn­mála­menn, eins og Marine le Pen, hafa lýst yfir mik­illi andúð sinni á flótta­mönnum. Flótta­menn finna sig ekki, af ein­hverjum ástæðum, vel­komna í Frakk­landi lengur.

Margir íbúar Calais eru orðnir lang­þreyttir á ástand­inu. Uppþot eru tíð, fólk hefur kastað grjóti og öðru laus­legu í átt að bílum. Gremja og spenna hefur verið vax­andi. Bíla­um­ferð og lest­ar­sam­göngur hafa margoft taf­ist vegna ýmissa vanda­mála sem fylgja flótta­manna­búð­unum. Fólk hefur lát­ist í átroðn­ingi þegar það hefur ruðst inn í Erma­sunds­göngin þar sem gang­andi far­þegum er ávalt mein­aður aðgangur. Þeir hafa rutt niður girð­ingum og oft hefur komið til átaka við landamæra­verði.

Hér­aðs­kosn­ing­arnar í norð­ur­hluta lands­ins sner­ust að mestu leyti um flótta­menn­ina í Calais. Marine le Pen var sjálf í fram­boði sem hér­aðs­stjóri og boð­aði harða stefnu í garð inn­flytj­enda. Hún hik­aði ekki við að tengja saman hryðju­verkin í París við flótta­menn og hlaut ríf­lega 40% atvæða í fyrri umferð kosn­ing­anna. Skugga­legar nið­ur­stöður sem sýna að stór hluti almenn­ings á þessu svæði vill flótta­menn­ina burt. Í seinni umferð kosn­ing­anna drógu Sós­í­alistar sig frá og hvöttu alla til þess að kjósa frekar hægri banda­lag Sarkozy og halda þar með Þjóð­fylk­ing­unni frá völdum. Það tókst og Marine le Pen hafði ekki erindi sem erf­iði.

En vanda­málið er enn óleyst. Hvað á að gera við alla þessa flótta­menn í Calais. Sem vilja ekki búa í Frakk­landi en fá heldur ekki fara til Bret­lands? Ráða­leysi yfir­valda er algjört.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár