Tæknifyrirtæki orðin verðmætari en bankar í Evrópu

Lána­af­skriftir og vaxta­lækk­anir sam­hliða auk­inni eft­irpurn eftir tækni­lausnum hafa leitt til þess að mark­aðsvirði evr­ópskra tækni­fyr­ir­tækja er meira en hjá bönkum í álf­unni.

Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt
Höf­uð­stöðvar Deutsche Bank í Frank­furt Mynd: EPA

Virði evr­ópskra tækni­fyr­ir­tækja varð meira en virði evr­ópskra banka í sept­em­ber, í fyrsta skiptið í sög­unni. Grein­ing­ar­að­ilar benda á þrengri útlána­skil­yrði í bönkum, auk meiri afskrifta á lánum í kjöl­far efna­hags­á­falls­ins vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Svipaða þróun má sjá í Kaup­höll­inni hér á landi.

Breska blaðið Financial Times greindi fyrst frá mál­inu, en not­aði gögn fra grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Ref­ini­tiv sér til stuðn­ings. Samkvæmt umfjöllun blaðs­ins sést gott gengi tækni­fyr­ir­tækja best Vest­an­hafs, þar sem Nasdaq 100-vísi­talan, sem inni­heldur mörg banda­rísk tækni­fyr­ir­tæki, hefur hækkað um 27 pró­sent á árinu.

Vöxtur tækni­fyr­ir­tækja í Evrópu hefur verið hóf­legri, eða um 11 pró­sent á árinu. Sú þróun er þó mun jákvæð­ari en hjá bönkum í álf­unni, en vísi­tala þeirra hefur lækkað um þriðj­ung á sama tíma­bili. Nú er mark­aðsvirði skráðra tækni­fyr­ir­tækja metið á 842 millj­arða evra, sem sam­svara um 136 billjónum íslenskra króna, á meðan mark­aðsvirði bank­anna nær 822 millj­örðum evra, eða um 133 billjónum króna.

Stærsta evr­ópska tækni­fyr­ir­tækið er þýski hug­bún­að­ar­ris­inn SAP, en virði þess fyr­ir­tækis hefur hækkað um 14 pró­sent frá árs­byrjun. Gengið var þó enn betra hjá örflögu­fyr­ir­tæk­inu ASML og hálf­leið­ar­a­fram­leið­and­anum Infineon, en hluta­bréfa­verð beggja fyr­ir­tækj­anna hækk­aði um 19 pró­sent á sama tíma­bili. 

Vaxtalækkanir „lykilatriði“

Samhliða góðu gengi evr­ópsku tækni­fyr­ir­tækj­anna hafa skila­boð stjórn­valda í álf­unni um að halda vöxtum lágum til að bregð­ast við kór­ónu­krepp­unni haft nei­kvæð áhrif á fram­tíð­ar­horfur banka og ann­arra útlána­stofn­ana. Kian Abouhossein, grein­ing­ar­að­ili hjá JPMorgan, sagði í við­tali við Financial Times að ákvörðun Evrópska seðla­bank­ans um að lán­veit­endur greiði ekki arð út árið væri einn af lyk­il­þátt­unum að baki þess­arar þró­unar. 

Svipuð þróun á Íslandi

Svipaða þróun má sjá í Kauphöll Íslands ef gengi banka og tækni­fyr­ir­tækja er borið saman. Frá árs­byrjun hefur virði bréfa í Arion banka lækkað um 13 pró­sent, auk þess sem virði hluta­bréfa í Kviku banka hefur lækkað um 2 pró­sent. Gengi tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Origo hefur hins vegar batnað, en hluta­bréf þess eru nú um 12 pró­sent dýr­ari en þau voru við byrjun árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár