Veruleg styrking rannsókna á kynferðisbrotum

Sjö nýjar stöður við rann­sóknir á kyn­ferð­is­brotum eru nú aug­lýstar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Leit, söfnun og rann­sóknir líf­sýna verða efldar sem og staf­rænar rann­sóknir. „Auknar bjargir“ eiga að stytta máls­með­ferð­ar­tíma, segir Grímur Grímsson.

Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn.
Grímur Grímsson yfir­lög­reglu­þjónn. Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Embætti lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur aug­lýst sjö nýjar stöður til að styrkja rann­sóknir kyn­ferð­is­brota. Auglýst er eftir rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum, sér­fræð­ingum til rann­sókna líf­sýna og staf­rænna gagna sem og aðstoð­ar­sak­sóknurum á ákæru­sviði. Stöð­urnar eru aug­lýstar í kjöl­far auk­inna fjár­fram­laga sem rík­is­stjórnin ákvað að setja í mála­flokk sem hefur tekið stakka­skiptum síð­ustu miss­eri, ekki síst vegna heims­far­ald­urs­ins. „Það er uppi ákall um að stytta máls­með­ferð­ar­tíma í þessum alvar­legu málum,“ segir Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn á rann­sókn­ar­sviði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, við Kjarnann. „Rann­sókn­ar­tím­inn hefur því miður verið of langur og nú hefur verið ákveðið að við fáum frek­ari bjargir til að takast á við þennan mála­flokk.“

[adspot]

Lögreglu bár­ust til­kynn­ingar um 59 nauðg­anir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins 2022, sem sam­svarar 17 pró­sent fjölgun frá síð­ustu þremur árum þar á undan. Þá bár­ust lög­regl­unni til­kynn­ingar um 610 til­vik heim­il­is­of­beldis og ágrein­ings milli skyldra eða tengdra aðila á sama tíma­bili. Um er að ræða 19 pró­sent aukn­ingu frá síð­ustu þremur árum þar á undan.

Síð­ast­liðin tvö ár hefur orðið veru­leg aukn­ing á eft­ir­spurn eftir þjón­ustu í Bjark­ar­hlíð, sem veitir stuðn­ing og ráð­gjöf til ein­stak­linga eldri en 18 ára sem orðið hafa fyrir ofbeldi. Á árinu 2021 leit­uðu 1059 ein­stak­lingar eftir aðstoð í fyrsta sinn sem er nærri 30 pró­sent aukn­ing milli ára. Þar á undan var nærri 50 pró­sent aukn­ing milli áranna 2019 og 2020.

Tíu stöðugildi til fjögurra embætta

Með fjár­styrk­ingu rík­is­stjórn­ar­innar skap­ast svig­rúm til tíu nýrra stöðu­gilda hjá fjórum emb­ættum til rann­sóknar og sak­sóknar á kyn­ferð­is­brotum. Auk lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verður fjölgað um eina stöðu hjá rík­is­sak­sókn­ara, eina hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og eina hjá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum.

„Við aug­lýstum strax og við fengum upp­lýs­ingar um að þessar fjár­heim­ildir væru okkar,“ segir Grímur. „Og við erum þegar farin að taka við­töl við fólk sem hefur sótt um störfin. Það var gengið strax í málið.“

Þegar ráðið hefur verið í allar stöð­urnar verða sextán starfs­menn við rann­sóknir á kyn­ferð­is­brotum hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, auk stjórn­enda.

Nauðganir og brot gegn börnum í forgang

Rík­is­sak­sókn­ari hefur lagt fyrir lögrelu­emb­ættin að setja rann­sóknir á nauðgun, það er að segja brotum á 194. grein almennra hegn­ing­ar­laga, og brotum gegn börnum í for­gang. Grímur segir að þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og aðgerðir vegna hans, m.a. sam­komu­tak­mark­anir, voru settar á, hafi lög­reglan hér á Íslandi sem og ann­ars staðar búið sig undir að heim­il­is­of­beldi og kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum myndi aukast. Börn gátu ekki farið í skóla, í sumum löndum ekki lang­tímum saman, og margt fólk að vinna heima eða missti vinnu sína. Grímur segir að vissu­lega hafi lokun skemmti­staða haft þau áhrif að brotum sem framin eru í tengslum við skemmt­ana­lífið fækk­aði. Hann bendir hins vegar á að ger­endur og þolendur flestra kyn­ferð­is­brota þekk­ist.

[adspot]

Rann­sóknir hafa enda sýnt að heims­far­ald­ur­inn hafði í för með sér veru­lega aukn­ingu á ofbeldi á heim­ilum, einkum ofbeldi karla gegn konum og börnum. Kyn­bundið ofbeldi hafi einnig auk­ist utan heim­ila sem megi m.a. merkja í auk­inni eft­ir­spurn eftir star­frænu barn­a­níðs­efni og kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­bund­inni hat­urs­orð­ræðu.

Kyn­ferð­is­brot koma oft fljótt inn á borð lög­reglu eftir að þau eru framin og þá skiptir máli að hægt sé að rann­saka sönn­un­ar­gögn hratt, m.a. með til­liti til líf­sýna. Þá hefur auk­ist sá fjöldi mála þar sem raf­ræn rann­sókn­ar­gögn koma við sögu, s.s. úr tölvum og símum. Þess vegna er að sögn Gríms mjög mik­il­vægt að nú sé að koma stuðn­ingur í þann hluta rann­sókna.

Stoppi ekki með litlum skýringum

Hann segir lengi hafa verið þörf á að bæta við starfs­mönnum á líf­tækni­sviði tækni­deild­ar­innar. Hingað til hefur aðeins einn sér­fræð­ingur sinnt því starfi en nú verða stöðu­gildin tvö. „Við erum sér­stak­lega ánægð með þessa styrk­ingu,“ segir hann. „Með öllum þessum nýju stöðum erum við að ég tel komin á nokkuð góðan stað við rann­sóknir á kyn­ferð­is­brotum hvað manna­hald og bjargir varðar.“

Grímur segir að alltaf sé svo unnið að því að bæta verk­ferla við rann­sóknir kyn­ferð­is­brota. „Það sem við erum alltaf leynt og ljóst að reyna að gera er að stytta máls­með­ferð­ar­tím­ann og að mál stoppi ekki ein­hvers staðar í ferl­inu með litlum skýr­ingum. Og nú þýðir ekk­ert annað en að gera allt sem við getum til að þessi styrk­ing skili sér í einmitt þessu; styttri máls­með­ferð­ar­tíma. Að þetta verði stuðn­ingur fyrir alla, ekki síst þann sem brotið er gegn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár