Rúmlega 170 þúsund færri gistinætur á Airbnb

Gisting í gegnum síður á borð við Airbnb hefur dreg­ist tölu­vert saman í ár miðað við fyrra ár. Gistin­óttum í gegnum slíkar síður hefur jafn­framt fækkað hlut­falls­lega meira en gistin­óttum á hót­elum og gisti­heim­ilum.

Heimagist­ing í gegnum vef­síður á borð við Airbnb og Homeaway hefur dreg­ist tölu­vert saman í ár. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2019 var fjöldi gistinótta í gegnum slíkar síður 1,48 millj­ónir. Það eru 174 þús­und færri gistinætur en á sama tíma­bili í fyrra eða 10,5 pró­sent fækkun.

Mest mun­aði um mán­uð­ina eftir fall WOW air en í maí dróst slík gist­ing saman um nærri 30 pró­sent. Þetta kemur fram í áætl­uðum gistin­átta­tölum Hag­stof­unnar.

Framboð á íbúðum einnig dregist saman

[links]Air­bn­b g­ist­ing á Íslandi tók af stað árið 2015 þegar erlendum ferða­mönnum tók að fjölga veru­lega. Mark­aðs­hlut­deild gist­ing­ar­innar jókst hratt og náði hámarki í 38 pró­sentum í fyrra, að því er fram kemur í ferða­þjón­ustu­grein­ingu Lands­bank­ans.

Það sem af er þessu ári hefur mark­aðs­hlut­deild Air­bnb hins vegar lækkað í fyrsta sinn síðan 2015 og fjöldi gistinótta í gegnum vef­síð­una dreg­ist hlut­falls­lega meira saman en á öðrum gisti­stöðum. [adspot]

Í grein­ing­u Lands­bank­ans kemur jafn­framt fram að fram­boð af Air­bnb íbúðum og húsum hefur dreg­ist saman á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ár. Í júlí dróst fram­boð íbúða saman um 8,4 pró­sent miðað við sama mánuð í fyrra en það er mesti sam­dráttur í fram­boði frá því að Air­bnb ævin­týrið hófst hér á landi, sam­kvæmt Lands­bank­an­um.

138 milljónir vegna skráninga heimagistinga

Mikil aukn­ing hefur orðið á fjölda skráðra heimagist­inga í kjöl­far þess að ferða­mála­ráð­herra ákvað að efla eft­ir­lit með heimagist­ingu í júní 2018 eða alls tvö­falt fleiri skrán­ingar.

Þrátt fyrir þessa aukn­ingu í skrán­ingu áætlar sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að um helm­ingur skamm­tíma­leigu hér á landi fari enn fram án til­skil­inna leyfa eða skrán­ing­ar.

Frá júní 2017 til ágúst 2019 nam sam­an­lögð upp­hæð skrán­ing­ar­gjalda, stjórn­valds­sekta og fyr­ir­hug­aðra stjórn­valds­sekta vegna óskráðra heimagist­inga rúm­lega 138 millj­ónum. Þar af voru fyr­ir­hug­aðar og álagðar stjórn­valds­sektir vegna átaks­ins 94.6 millj­ón­ir.

2,2 millj­ónir ferða­manna komi til lands­ins árið 2021

Töluvert færri ferða­manna heim­sóttu landið á þessu ári eða alls 12,8 pró­sent færri ferða­manna á tíma­bil­inu nóv­em­ber 2018 til októ­ber 2019, sam­an­borið við sama tíma­bil árið áður.

Þrátt fyrir þessa fækkun hefur hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáð því að komum er­lend­ra ferða­manna til lands­ins fjölgi um 3 pró­sent á næsta ári og um 5 pró­sent árið 2021 og verði þá hátt í 2,2 millj­ón­ir, litlu færri en metárið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár