Vel yfir 100 smit annan daginn í röð

Í þessum mán­uði hafa 810 manns greinst með kór­ónu­veiruna inn­an­lands. Yfir 77 pró­sent þeirra sem greindust í gær voru utan sótt­kvíar. Síðustu tvo daga hefur smit­fjöld­inn farið vel yfir 100.

Að minnsta kosti 115 greindust með veiruna inn­an­lands í gær sam­kvæmt tölum sem birtar voru á COVID.is í morgun. Enn er verið að greina sýni gær­dags­ins svo að tala um smit­fjölda á eftir að hækka, segir í til­kynn­ingu almanna­varna. Mikill meiri­hluti þeirra 115 sem þegar hafa verið greindir eða rúm­lega 77 pró­sent voru ekki í sótt­kví og sömu­leiðis voru lang­flestir bólu­settir. Tæplega 6.000 sýni voru tekin í gær og hafa þau ekki verið fleiri það sem af er ári.

[links]Í fyrra­dag voru smitin 123 og hafa þau ekki verið fleiri í far­aldr­inum hingað til. Þann 24. mars í fyrra greindust 106 smit og urðu þau ekki fleiri á einum degi í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Þann dag lágu sautján sjúk­lingar á sjúkra­húsi með COVID-19 og tveir á gjör­gæslu. Sá fjöldi jókst mikið dag­ana á eftir og 2. apríl lágu 44 á sjúkra­húsi og 12 á gjör­gæslu.

Um hádegi í gær lágu þrír á legu­deildum Land­spít­al­ans með COVID-19. Í morgun voru sjúk­ling­arnir orðnir átta og einn þeirra kom­inn á gjör­gæslu­deild, að því er segir í frétt Vísis. Þá eru tveir íbúar á Grund smit­aðir.

Í þriðju bylgj­unni síð­asta haust urðu smitin flest 100 tals­ins þann 5. októ­ber.

Þrjátíu hafa lát­ist úr COVID-19 hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár