Umboðsmaður Alþingis: Jón Gunnarsson sniðgekk vandaða stjórnsýsluhætti í rafbyssumálinu

Með ákvörðun sinni um að breyta reglum um raf­byssur fylgdiJón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra ekki góðum stjórn­sýslu­háttum að mati umboðs­manns Alþingis. Þá braut hann gegn form­reglu um sam­skipti innan rík­is­stjórnar.

Sniðgekk reglur
Sniðgekk reglur Umboðs­maður Alþingis snuprar Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra fyrir fram­göngu hans í raf­byssu­mál­inu. Mynd: Pressphotos

Umboðs­maður Alþingis telur sam­ráðs­leysi Jóns Gunn­ars­sonar við rík­is­stjórn vegna raf­byssa ekki hafa verið í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu­hætti. Skúli Magn­ús­son, umboðs­maður Alþingis, hefur sent Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra bréf þar sem hann lýsir þess­ari nið­ur­stöðu sinni.

Jón Gunn­ars­son heim­il­aði lög­reglu að bera raf­byssur án þess að málið væri borið upp í rík­is­stjórn fyrst. Þessari ákvörðun sinni lýsti Jón í grein í Morg­un­blað­inu 30. des­em­ber síð­ast­lið­inn, og und­ir­rit­aði hann breyttar reglur sam­dæg­urs og voru þær sendar Stjórn­ar­tíð­indum til birt­ingar. Sama dag lýsti Katrín því í sam­tali við mbl.is að sam­tal um málið þyrfti að eiga sér stað innan rík­is­stjórnar og Alþingis.

Í bréfi umboðs­manns segir að af svari Jóns til umboðs­manns hafi komið í ljós að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi þá þegar verið búinn að vinna að und­ir­bún­ingi máls­ins um nokk­urt skeið. Sömu­leiðis að Jóni hafi orðið kunn­ugt um afstöðu Katrínar dag­inn sem regl­unum var breytt.

„Verður því að líta svo á að ráð­herr­ann hafi ekki séð ástæðu til að upp­lýsa yður né rík­is­stjórn­ina um fyr­ir­ætlun sína við fyrra tíma­mark jafn­vel þótt und­ir­bún­ingur að mál­inu væri þá þegar haf­inn hjá und­ir­stofnun hans,“ segir í bréfi umboðs­manns.

Jón virti óskir forsætisráðherra að vettugi

Umboðs­maður segir enn fremur að af svörum sé ekki hægt að greina annað en að dóms­mála­ráð­herra hafi virt að vettugi ósk Katrínar um að málið kæmi til umræðu í rík­is­stjórn. Málið hafi enda ekki verið kynnt í rík­is­stjórn fyrr en 13. jan­úar síð­ast­lið­inn og höfðu regl­urnar þá verið sendar Stjórn­ar­tíð­indum á ný, 9. jan­úar, til raf­rænnar birt­ingar.

Jón sjálfur var fjar­ver­andi á fund­inum 13. jan­úar þar sem málið var kynnt á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar og kom það í hlut Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, að leggja fram og kynna minn­is­blað um málið fyrir hans hönd.

Í svari Katrínar við fyr­ir­spurn Halldórs Auðar Svans­sonar,  vara­þing­manns Pírata, um málið kemur fram að Katrín hafi þar gert athuga­semdir við að málið hafi ekki verið kynnt í rík­is­stjórn­inni.

Þá bók­aði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sér­stak­lega á rík­is­stjórn­ar­fund­inum að hún væri andsnúin ákvörð­un­inni og gerði athuga­semdir við hvernig það hefði verið unnið, þar á meðal að það hafði ekki verið kynnt í rík­is­stjórn. 

„Það er þar af leið­andi álit mitt að það hafi ekki sam­ræmst kröfum um vand­aða stjórn­sýslu­hætti“
Skúli Magn­ús­son
umboðs­maður Alþingis

Umboðs­maður dregur ekki í efa að Jón hafi haft stjórn­skipu­lega heim­ild til að breyta regl­unum. Hins vegar bendir umboðs­maður á að sam­kvæmt 17. grein stjórn­ar­skrár­innar skuli halda ráð­herra­fundi um nýmæli í lögum og um mik­il­væg stjórn­ar­mál­efni. Ljóst megi vera af svörum Katrínar að hún hafi talið um „áherslu­breyt­ingu“ að ræða og því hafi málið verið mik­il­vægt stjórn­ar­mál­efni sem bera hefði átt undir rík­is­stjórn­ar­fund.  Láti ráð­herra far­ast fyrir að virða þessar reglur feli það ekki aðeins brot á form­reglum heldur stuðli það að hið póli­tíska sam­ráð sem lög og stjórn­ar­skrá mæla fyrir um sé snið­gengið.

Fram­ganga Jóns í mál­inu hafi verið ósam­rým­an­leg þeim kröfum sem gera verði til ráð­herra. „Það er þar af leið­andi álit mitt að það hafi ekki sam­ræmst kröfum um vand­aða stjórn­sýslu­hætti, við þær aðstæður sem virð­ast hafa verið uppi, að líta svo á að nægi­legt væri að þegar afgreitt mál yrði síðar borið upp í rík­is­stjórn,“ segir í áliti umboðs­manns. 

Athug­semd rit­stjórnar: Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar var sagt í fyr­ir­sögn að Jón Gunn­ars­son hefði snið­gengið póli­tískt sam­ráð sem lög og stjórn­ar­skrá mæli fyrir um. Sú túlkun á bréfi umboðs­manns kann að vera umdeil­an­leg og hefur því verið breytt.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það er eitthvað mikið að þessum manni.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Með ólíkindum hvað Sjálfstæðisflokknum tekst slag í slag illa til með val á dómsmálaráðherra.
    1
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Einræði á Íslandi?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár