Mynd: Mummi Lú

Hátindar ársins – listviðburðir 2024

Listin hefur ólgað árið 2024. Sumarið hófst með Lista­hátíð í Reykjavík og allt árið hafa hinir og þessir fjöl­breyttu list­viðburðir kætt landann. Menningar­blaðið fékk nokkra áhugasama um lista­lífið til að nefna hvaða list­viðburðir þeim fannst standa upp úr á árinu.

Silja Aðalsteinsdóttir

ritstjóri, höfundur og þýðandi

Gæti talið margt uppSilja Aðal­steins­dóttir reynir að sjá og heyra sem flest í menn­ing­ar­líf­inu.

Það er illa gert við manneskju sem reynir að sjá og heyra sem flest í menningar­lífinu að biðja hana að nefna þrjá viðburði á árinu. Auðvitað er ekki allt jafngott en það er svo margt annað en bein listræn úrvinnsla sem kemur til álita þegar maður raðar viðburðum upp eftir áhrifunum sem þeir höfðu á mann.

Ég sá Níu líf tvisvar á árinu, lokaári þeirrar gagnmerku sýningar, og bíómyndina Snertingu sá ég líka tvisvar, þetta segir sitt. Ég sá þrjár óperu­sýningar sviðslista­hópsins Óðs á árinu og gæti valið þær allar! Hall­grímur Helgason hefur á árinu gefið út stóra og mikilvæga skáldsögu, sýnt áhrifa­mikið yfirlit myndverka sinna á Kjarvals­stöðum og verið með leikhús­uppistand úr sagna­bálkinum um …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár