Íbúi í Brussel: Spenna í samfélaginu og fólk áhyggjufullt

Árni Snævarr, sem starfar sem upp­lýs­inga­full­trúi hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í Brussel, segir tölu­verðrar spennu gæta meðal fólks í Brussel vegna hryðju­verkaógnar sem stjórn­völd í Belgíu hafa brugð­ist við af hörku. Hann segir her­menn einkum sýni­lega í svoköll­uðu Evr­ópu­hverfi í borg­inni, en Charles Michel, for­sæt­is­ráð­herra, tók ákvörðun um það í dag að 300 þung­vopn­aðir her­menn myndu aðstoða lög­reglu í borg­inni við gæslu­störf.

[caption id="attachment_17306" align="alignleft" width="142"] Árni Snævarr.[/caption]

„Þeir gæta bæna­húsa gyð­inga, stjórn­ar­bygg­inga og eru sýni­legir í svoköll­uðu Evr­ópu­hverfi, þar sem Evr­ópu­sam­bandið er til húsa og mörg sendi­ráð. En það er tals­verð spenna í sam­fé­lag­inu vita­skuld og fólk er áhyggju­fullt bæði vegna aðgerða öfga­manna sem virð­ast hafa verið kæfðar í fæð­ingu og líka teng­inga við hryðju­verkin í Frakk­landi. Það virð­ist vera ein­stak­lega auð­velt að kaupa sér Kalas­hnikov í Brussel og þar fengu Charlie Hebdo morð­ing­arnir vopna­búr sitt,“ sagði Árni Snævarr í sam­tali við Kjarnann.

Eins og greint var frá fyrr í dag, þá hafa lög­reglu­sveitir víða í Evrópu staðið í umfangs­mestu sam­ræmdu lög­reglu­að­gerðum sem gripið hefur verið til í álf­unni í langan tíma, með það að mark­miði að koma í veg fyrir frek­ari árásir íslamskra hryðju­verka­manna.

Í Belgíu hafa þrettán verið hand­teknir og tveir skotnir til bana í borg­inni Vervier, í Frakk­landi hafa tólf verið hand­teknir og í Þýska­landi eru í gangi aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir árásir. Tveir hafa verið hand­teknir og hús­leitir fram­kvæmdar á að minnsta kosti ell­efu stöðum. Þá hefur við­bún­að­ar­stig við opin­ber svæði og bygg­ingar verið hækkað, og eru vopn­aðir lög­reglu­menn víða í eft­ir­lits­störfum.

Samkvæmt fréttum breska rík­is­út­varps­ins BBC hafa fimm af þeim þrettán sem hand­tekin voru í Belgíu gær, þegar verið ákærð fyrir að aðstoða menn­ina tvo sem voru skotnir eftir þeir hófu skot­hríð á lög­reglu við und­ir­bún­ing árása á lög­reglu­menn og lög­reglu­stöðvar í Belgíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár