Mynd: Pexels

Fyrirtækin sem mynda fjórðu stoðina

Ný stoð hefur mynd­ast í gjald­eyr­is­öflun þjóð­ar­bús­ins á síð­ustu árum sem er ekki byggð á nýt­ingu tak­mark­aðra auð­linda, heldur hug­viti starfs­manna sinna. Kjarninn tók saman helstu fyr­ir­tækin að baki þess­ari stoð og tekju­vöxt þeirra á síð­ustu árum.

Umskipti hafa orðið í sam­setn­ingu gjald­eyr­is­öfl­unar Íslands á síð­ustu miss­erum. Hlut­deild sjáv­ar­út­vegs, stór­iðju og ferða­þjón­ustu, sem hafa í nokkur ár staðið fyrir yfir­gnæf­andi meiri­hluta alls útflutn­ings, hefur minnkað stöðugt frá árinu 2019, á meðan fyr­ir­tæki sem byggja ekki fram­leiðslu sína alfarið á nýt­ingu nátt­úru­auð­linda hafa sótt í sig veðrið. Mörg þess­ara fyr­ir­tækja starfa í heil­brigð­is­geir­anum, en einnig hefur rekstur tölvu­leikja­fyr­ir­tækja verið í nokk­urri sókn.

Hugverkaiðnaðurinn

Á árunum 2013-2018 komu rúm­lega 80 pró­sent alls útflutn­ings hér á landi frá fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu, sjáv­ar­út­vegi eða stór­iðju. Á síð­ustu þremur árum hefur þetta hlut­fall hins vegar minnkað og nemur það nú rúmum tveimur þriðju. Með öðrum orðum hefur vægi útflutn­ings sem ekki byggir á nýt­ingu nátt­úru­auð­linda vaxið um meira en helm­ing. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan.

Líkt og myndin sýnir hefur hlutdeild stoðanna þriggja minnkað töluvert á síðustu tveimur árum.
Líkt og myndin sýnir hefur hlut­deild stoð­anna þriggja minnkað tölu­vert á síð­ustu tveimur árum.

Innan þessa hóps hefur hug­verka­iðn­að­ur­inn, sem inni­heldur fyr­ir­tæki sem byggja virði sitt á hug­viti starfs­manna sinna, vaxið hvað mest. Samkvæmt grein Sigríðar Mogensen sviðs­stjóra hug­verka­sviðs Samtaka iðn­að­ar­ins í vor­hefti Vís­bend­ingar er hug­verka­iðn­aður orðin fjórða stoðin í gjald­eyr­is­öflun þjóð­ar­bús­ins, þar sem hún skap­aði tæp 16 pró­sent af útflutn­ings­tekjum í fyrra og leiddi til þess að afgangur hafi orðið af þjón­ustu­við­skiptum það ár, þrátt fyrir hrun ferða­þjón­ust­unnar.

Í við­tali við Kjarnann í fyrra sagði Sigríður að vöxtur íslenska hag­kerf­is­ins til fram­tíðar væri frekar innan hug­verka­iðn­að­ar­ins heldur en í hinum stóru útflutn­ings­grein­unum, sem byggja allar fram­leiðslu sína frekar á nýt­ingu tak­mark­aðra auð­linda.

Controlant hyggst hundraðfalda tekjur

Á meðal fyr­ir­tækja innan þessa geira er íslenska hátækni­fyr­ir­tækið Controlant, sem þróar tækni­lausnir sem hjálpa til við að við­halda gæðum við­kvæmra vara í geymslu og flutn­ingi á milli staða.

Samkvæmt árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2017 námu tekjur þess um 166 millj­ónum það ár og var það með 26 starfs­menn. Síðan þá hafa tekj­urnar vaxið hratt með hverju árinu, en þær námu 219 millj­ónum króna árið 2018 og 410 millj­ónum króna árið 2019.

Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins á Frétta­blað­inu fyrr í sumar tvö­föld­uð­ust svo tekjur félags­ins aftur í fyrra og námu þá rúmum 800 millj­ónum króna, en búist er við að þær muni svo nífald­ast aftur í ár og nema 7,6 millj­örðum króna. Samhliða því hefur starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins fjölgað, en sam­kvæmt áætl­unum verða þeir orðnir um 300 tals­ins í árs­lok.

Á næsta ári gerir svo fyr­ir­tækið ráð fyrir að ná 15 millj­örðum króna í tekjum. Haldist þessar áætl­anir gæti því verið að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins tæp­lega hund­rað­fald­ist á fimm árum.

Þennan gríð­ar­lega tekju­vöxt má að miklu leyti rekja til samn­inga Controlant við alþjóð­leg lyfja­fyr­ir­tæki, líkt og Merck, Roach og GlaxoSmit­hKline, segir í Frétta­blað­inu. Stærsti bit­inn er þó lík­lega við­skipti félags­ins við Pfizer, sem selur eitt af vin­sæl­ustu bólu­efn­unum gegn COVID-19.

200 milljarðar hjá Alvotech innan skamms

Annað hug­verka­fyr­ir­tæki sem hefur náð við­líka tekju­vexti er íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Alvotech. Samkvæmt árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins tvö­föld­uð­ust rekstr­ar­tekjur þess í fyrra, úr rúmum fjórum millj­örðum króna árið 2019 í átta millj­arða króna árið 2020.

Áform fyr­ir­tæk­is­ins eru stór­huga, en Sesselja Ómars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lyfja­grein­ing­ar­deildar þess sagði á Iðnþingi i í fyrra að áætl­aðar tekjur Alvotech árið 2027 muni nema 20 pró­sentum af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­innar. Ef miðað er við útflutn­ings­tekjur síð­asta árs er því áætlað að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins muni 25-fald­ast á næstu sex árum og nema um 200 millj­örðum króna.

Alvotech, sem er að miklu leyti í eigu Róberts Wessman, stefnir á að ná tekjum sem nema allt að 200 milljörðum króna innan fárra ára. Mynd: Alvotech
Alvotech, sem er að miklu leyti í eigu Róberts Wessman, stefnir á að ná tekjum sem nema allt að 200 millj­örðum króna innan fárra ára. Mynd: Alvotech

Róbert Wessman er skráður óbeinn eig­andi nær 39 pró­senta í Alvotech, en fyr­ir­tækið er einnig í eigu lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen. Fyr­ir­tækið, sem sér­hæfir sig í þróun á hlið­stæðum líf­tækni­lyfja, hefur byggt lyfja­verk­smiðju í Vatns­mýr­inni og stefnir að því að setja á markað líf­tækni­lyf innan tveggja ára.

Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins um fyr­ir­tækið stefnir Alvotech einnig að tví­hliða skrán­ingu á hluta­bréfa­markað, bæði í Kaup­höll­ina á Íslandi og í New York, á næstu mán­uðum.

Einn af frumkvöðlum ársins í Bandaríkjunum

Tekjur líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Kerecis, sem er stað­sett á Ísafirði og sér­hæfir sig í fram­leiðslu á lækn­ing­ar­vörum úr þorskroði, hafa einnig vaxið tölu­vert á síð­ustu miss­erum, en sölu­tekjur þeirra námu tæpum millj­arði króna árið 2019 sam­kvæmt sam­stæðu­reikn­ingi félags­ins.

Þessi vöxtur hélt svo áfram í fyrra, en sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Kerecis rúm­lega tvö­föld­uð­ust sölu­tekjur félags­ins í Banda­ríkj­unum á síð­asta fjórð­ungi árs­ins 2020, miðað við sama tíma­bil árið á undan. Þessi vöxtur var hrað­ari en hjá nokkru öðru fyr­ir­tæki á sama mark­aði í Banda­ríkj­unum.

Fyrr í mán­uð­inum útnefndi end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Ernst and Young svo Guðmund Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­anda og for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, sem einn af frum­kvöðlum árs­ins á mark­aði Norð-Aust­ur­strandar Banda­ríkj­anna.

CCP og fylgihnettir

Íslensk hug­verka­fyr­ir­tæki eru þó ekki ein­ungis tengd heil­brigð­is­geir­anum. Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP, sem er stað­sett í Vatns­mýr­inni, hefur einnig haldið stöðugri sigl­ingu með sölu á tölvu­leikj­unum sínum á síð­ustu árum, en á tíma­bil­inu 2017-2020 námu sölu­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á bil­inu sex til átta millj­örðum króna.

Fyr­ir­tækið, sem hefur verið starf­rækt frá árinu 1997, hefur einnig alið af sér önnur íslensk leikja­fyr­ir­tæki sem sum eru í mik­illi sókn þessa stund­ina.

Solid Clouds, sem var meðal ann­ars stofnað af fyrsta for­stjóra CCP, var skráð á markað fyrr í sumar, en for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins sögð­ust stefna að því að ná 4,4 millj­örðum í tekjum eftir tvö ár í við­tali við Við­skipta­blaðið. Til þess að það ger­ist verður tekju­vöxt­ur­inn að verða nokkuð hraður, en tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu 69 millj­ónum króna í fyrra.

Einn stofn­andi CCP, Ívar Krist­jáns­son, stofn­aði einnig annað leikja­fyr­ir­tæki sem ber heitið 1939 Games fyrir sex árum síðan. Fyr­ir­tækið gaf út fyrsta leik­inn sinn form­lega í fyrra, en tekj­urnar af honum það árið námu um 250 millj­ónum króna. Í nýlegu við­tali Ívars við Við­skipta­blaðið segir hann að fyr­ir­huguð far­síma­út­gáfa leiks­ins á næsta ári bjóði upp á fimm- til tíföldun á sölu fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár