Ríkisstjórnin lagði fram færri frumvörp en gert hefur verið síðustu 20 ár

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar lagði fram miklu færri mál á þessu lög­gjaf­ar­þingi heldur en árin á undan, og miklu færri mál heldur en nokkur rík­is­stjórn síð­ustu tutt­ugu ár hefur verið búin að leggja fram þann 8. apríl á hverju þingi.

Rík­is­stjórnin sem starf­aði þar til á fimmtu­dag­inn lagði fram 85 frum­vörp á yfir­stand­andi þingi. Það er fimmtán frum­vörpum færra en árið 2005, þegar 100 frum­vörp höfðu verið lögð fram á þessum tíma. Lengst af á þessu tutt­ugu ára tíma­bili var þing ekki sett fyrr en 1. októ­ber. Þing­setn­ingin var færð fram um nokkrar vikur, fram í sept­em­ber, haustið 2012.

34 frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar hafa orðið að lögum á þessu þingi. Tvö frum­vörp bíða þriðju og síð­ustu umræðu, 20 eru í nefndum þings­ins, og 29 eru ekki enn komin á dag­skrá Alþingis.

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur lagt fram flest frum­vörp, 24 tals­ins, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kemur þar á eftir mað 19 frum­vörp. Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra hefur lagt fram 11 frum­vörp, Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra sjö frum­vörp og Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði fram sex frum­vörp sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra og Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra hafa komið fram með fimm frum­vörp hvort og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra hefur lagt fram fjögur frum­vörp. Gunnar Bragi Sveins­son lagði fram tvö frum­vörp sem utan­rík­is­ráð­herra, en mörg mál­anna sem utan­rík­is­ráð­herra kemur með inn í þingið eru þings­á­lykt­un­ar­til­lögur vegna EES mála. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kom fram með tvö frum­vörp á þessu þingi sem for­sæt­is­ráð­herra. 

Gagnrýnt strax í haust

Þingmenn bæði í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu vöktu athygli á því strax í haust að skortur væri á þing­málum frá rík­is­stjórn­inni. Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, vakti athygli á þessu í þing­inu þann 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún benti á að þing­nefndir hefðu af þessum sökum lítið að gera og þing­störfin væru í upp­námi. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir með henni, og flokks­systir hennar Heiða Kristín Helga­dóttir líka. „Hér er fullt af fólki sem er til­búið að vinna og það er miður að málin komi svo inn í þingið eftir tvær til þrjár vikur og þá séu þau afgreidd á ein­hverju hunda­vaði,“ sagði hún. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður VG, benti á að tveir mán­uðir væru liðnir af þing­inu og þrír ráð­herrar hefðu ekki skilað einu ein­asta þing­máli inn. Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, lagði til að nefndir væru í verk­fall þangað til mál kæmu inn í þær. „Ég tek undir þá hvatn­ingu til ráð­herra að fara að koma fleiri málum hérna inn svo að við í þing­inu getum tekið það hlut­verk okkar alvar­lega að vinna að málum vel,“ sagði Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við umræð­urnar.

Seinkun á afgreiðslu fjárlaga

Þrátt fyrir að færri mál hafi komið inn í þingið fyrir jól en síð­ustu ára­tug­ina þar á undan varð seinkun á afgreiðslu fjár­laga. Ástæðan var sú að rík­is­stjórnin afgreiddi ekki sínar til­lögur að breyt­ingum á fjár­lögum fyrr en of seint til að halda starfs­á­ætlun þings­ins. Þar með varð seinkun á umfjöllun fjár­laga­nefndar og málið allt tafð­ist.

Tíðrætt um að klára stóru málin fyrir kosningar

Rík­is­stjórn­inni hefur verið tíð­rætt um að klára þurfi mörg stór mál fyrir kosn­ingar í haust. Frestur til þess að leggja fram ný þing­mál á Alþingi rann út þann fyrsta apríl síð­ast­lið­inn. Mál sem koma fram eftir þann frest þurfa því að vera sam­þykkt inn á dag­skrá þings­ins með afbrigðum. Rík­is­stjórnin ætl­aði sam­kvæmt þing­mála­skrá að leggja fram rúm­lega 140 frum­vörp á þessu þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár