Auðmenn kanna leiðir til að flýja með peningana sína

Ríkasta fólk lands­ins leitar sér nú sumt hvert ráð­gjafar um hvernig það geti kom­ist hjá því að greiða auð­legð­ar­skatt verði slíkur lagður á. Um er að ræða mjög lit­inn hóp lands­manna sem á miklar fjár­muna­eignir.

Ein­stak­lingar sem eiga hreina eign sem hleypur á millj­örðum króna kanna nú hvaða leiðir standi þeim til boða við að flytja fjár­magn sitt út landi til að forð­ast mögu­legan auð­legð­ar­skatt. Fólk úr þessum hópi hefur þegar fundað með ráð­gjöfum vegna máls­ins. Þetta kemur fram í Við­skipta­blað­inu í dag.

[links]Þar segir að ástæðan sé ótti við hug­myndir um „hóf­legan auð­legð­ar­skatt“ upp á 1,5 pró­sent, líkt og Vinstri græn, sem eru lík­leg til að setj­ast í rík­is­stjórn, töl­uðu fyrir í aðdrag­anda kosn­inga. Eigendur mik­illa fjár­muna vilja margir hverjir alls ekki þurfa að greiða slíkan skatt.

Í Við­skipta­blað­inu segir að eina leiðin til þess að kom­ast undan skatt­inum, yrði hann lagður á, væri að flytja lög­heim­ili, skatta­lega heim­il­is­festi og mögu­lega allar eignir af landi brott. „Þeir sem eru ef til vill í erf­ið­ustu stöð­unni í þessu til­liti eru að sögn við­mæl­enda Við­skipta­blaðs­ins þeir sem eiga umtals­verðar eignir en standa til dæmis í rekstri hér á landi og geta ekki með góðu móti skorið á öll tengsl við heima­landið og farið af landi brott.“

Þótt að fólk flytji heim­ils­festi og eignir sínar af landi brott þá hefur emb­ætti rík­is­skatt­stjóra samt sem áður úrskurð­ar­vald um það hvort þessum flutn­ingi fylgi raun­veru­legur flutn­ingur á heim­ili. Ef til­gang­ur­inn með flutn­ingnum er ein­ungis sá að kom­ast hjá greiðslu auð­legð­ar­skatts en hluti fjöl­skyldu við­kom­andi býr áfram á Íslandi og nýtir sér þjón­ustu þá getur emb­ættið úrskurðað að við­kom­andi ein­stak­lingur búi enn á Íslandi.

Eitt prósent ríkustu tók til sín helming fjármagnstekna

Það er ekki sér­lega stór hópur Íslend­inga sem á miklar fjár­muna­eignir. Kjarninn greindi frá því fyrr í þess­ari viku að alls hafi Íslend­ingar þénað 117 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2016. Það er umtals­vert meira en árið áður, þegar heild­ar­fjár­magnstekjur Íslend­inga voru 95,3 millj­arðar króna.

[adspot]Tekj­urnar dreifð­ust ekki jafnt á milli hópa. Þvert á móti. Tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna tók til sín 55 millj­arða króna af þeim tekjum sem urðu til vegna fjár­magns í fyrra, eða 47 pró­sent þeirra. Það er bæði hærri krónu­tala og hærra hlut­fall en þessi hópur, sem sam­anstendur af 1.966 fram­telj­endum (1.331 ein­hleypum og 635 sam­skött­uðum), hafði í fjár­magnstekjur á árinu 2015.

Þessi staða þýðir að hin 99 pró­sent íslenskra skatt­greið­enda skipti á milli sín 53 pró­sent fjár­magnstekna sem urðu til á árinu 2016.

Helmingur eigna sem varð til fór til þeirra efnamestu

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 12. októ­ber síð­ast­lið­inn að þær rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur sem til­heyra þeim tíu pró­sentum þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé – eignir þegar skuldir hafa verið dregnar frá – hafi átt 2.062 millj­arða króna í hreinni eign um síð­ustu ára­mót. Alls á þessi hópur 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Eigið fé hans jókst um 185 millj­arða króna á síð­asta ári. Eigið fé hinna 90 pró­sent lands­manna jókst á sama tíma um 209 millj­arða króna.

Það þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á síð­asta ári fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna. Þegar eigið fé 20 pró­sent efna­mestu fjöl­skyldna þjóð­ar­innar er skoðað kemur í ljós að sá hópur á 85 pró­sent af öllu eigið fé í land­inu. Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem á minnst er sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé upp á 175,3 millj­arða króna. Þetta kom fram í tölum um eig­in­fjár­stöðu Íslend­inga í lok árs 2016 sem birtar voru í byrjun októ­ber.

Þessar tölur eru þó van­metnar þar sem að verð­bréfa­eign er metin á nafn­virði og þessi hópur á nán­ast öll verð­bréfin. Auk þess vantar inn eignir sem faldar hafa verið í skatta­skjólum sem opin­berar skýrslur segja að hlaupi á tugum millj­arða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár