Ríkasta eitt prósentið þénaði 55 milljarða í fjármagnstekjur

Tæpur helm­ingur allra fjár­magnstekna sem urðu til á Íslandi í fyrra runnu til tæp­lega tvö þús­und fram­telj­enda. Sá litli hópur er rík­asta eitt pró­sent lands­manna. Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eign­um sín­um.

Alls þén­uðu Íslend­ingar 117 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2016. Það er umtals­vert meira en árið áður, þegar heild­ar­fjár­magnstekjur Íslend­inga voru 95,3 millj­arðar króna.

Tekj­urnar dreifð­ust ekki jafnt á milli hópa. Þvert á móti. Tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna tók til sín 55 millj­arða króna af þeim tekjum sem urðu til vegna fjár­magns í fyrra, eða 47 pró­sent þeirra. Það er bæði hærri krónu­tala og hærra hlut­fall en þessi hópur, sem sam­anstendur af 1.966 fram­telj­endum (1.331 ein­hleypum og 635 sam­skött­uðum), hafði í fjár­magnstekjur á árinu 2015.

Þessi staða þýðir að hin 99 pró­sent íslenskra skatt­greið­enda skipti á milli sín 53 pró­sent fjár­magnstekna sem urðu til á árinu 2016.

Þetta kemur fram í stað­tölum skatta vegna árs­ins 2016, sem birtar voru á vef Rík­is­skatt­stjóra fyrir skemmstu.

Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eign­um sín­um. Þ.e. ekki laun­um. Þær tekjur geta verið ýmiss kon­ar. Til dæmis tekjur af vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­eign, tekjur af útleigu hús­næð­is, arð­greiðsl­ur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­eigna eða verð­bréfa.

Ef tekj­urnar eru útleystar, þannig að þær standi eig­anda þeirra frjálsar til ráð­stöf­un­ar, ber að greiða af þeim 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt sem rennur óskiptur til rík­is­ins.

Líkt og við var að búast greiddu þeir sem höfðu hæstu fjár­magnstekj­urnar, meg­in­þorra fjár­magnstekju­skatts. Alls greiddi rík­asta eitt pró­sent lands­manna 10,8 millj­arða króna í slíkan skatt í fyrra, en heild­ar­greiðslur ein­stak­linga í fjár­magnstekju­skatt voru 20,3 millj­arðar króna á því ári.

Í nýliðnum kosn­ingum var tek­ist umtals­vert á um væntar skatta­hækk­anir, meðal ann­ars á fjár­magnstekju­skatti. Píratar lögðu til að mynda fram skugga­fjár­lög þar sem lagt var til að hann yrði hækk­aður í 30 pró­sent. Af ofan­greindum tölum má ætla að slík hækkun myndi skila um tíu millj­örðum króna í auknar skatt­tekjur rík­is­ins miðað við óbreyttar fjár­magnstekjur. Þar af myndi rík­asta eitt pró­sent lands­manna greiða helm­ing­inn.

Miklar sviptingar á einum áratug

Fjár­magnstekjur lands­manna hrundu eftir banka­hrun­ið. Á ár­unum 2007, þegar þær náðu hámarki, námu þær 244,9 millj­örðum króna. Þar af runnu 147,3 millj­arðar króna til tekju­hæsta pró­sents lands­manna, eða rúm 60 ­pró­sent. Ljóst er að þorri þeirrar upp­hæðar var vegna gríð­ar­legrar hækk­unar á virði hluta­bréfa á íslenska mark­aðn­um, en sú bóla náði hámarki sum­arið 2007. Í kjöl­farið seytl­aði loftið hins vegar hratt út úr henni og við fall íslensku ­bank­anna haustið 2008 hvarf um 93 pró­sent af mark­aðsvirði hluta­bréfa.

Á árunum 2010 til 2012 voru fjár­magnstekjur mun lægri, eða á bil­inu 59,2 til 66,4 millj­arðar króna. Á þeim árum runnu um 35 pró­sent fjár­magnstekna til rík­asta eins pró­sents lands­manna. Árið 2013 juk­ust þær ­tölu­vert og voru 78,5 millj­arðar króna. Þar af runnu 31,6 millj­arðar króna til­ efsta eins pró­sents rík­ustu lands­manna.

Árið 2014 tóku fjár­magnstekjur svo aftur kipp og fóru í 90,5 millj­arða króna. Hlut­deild rík­asta pró­sents lands­manna í þess­ari eigna­aukn­ingu hækk­aði einnig umtals­vert, fór úr 40 pró­sentum í um 47 pró­sent.

Heild­ar­fjár­magnstekj­urnar juk­ust enn á árinu 2015, og voru 95,3 millj­arðar króna. Tæplega 44 pró­sent þeirra tekna fóru til efsta pró­sents­ins.

Og sá vöxtur hélt áfram í fyrra, þegar tekj­urnar voru 117 millj­arðar króna. Þá fóru, líkt og áður sagði 47 pró­sent þeirra, eða 55 millj­arðar króna, til rík­asta pró­sents lands­manna.

Þeir lands­menn sem telj­ast til þess eins pró­sents sem er með­ hæstu tekj­urnar fá langstærstan hluta af tekjum sínum vegna arð­semi eigna ­sinna.

Misskipting auðs eykst áfram á Íslandi

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 12. októ­ber síð­ast­lið­inn að þær rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur sem til­heyra þeim tíu pró­sentum þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé – eignir þegar skuldir hafa verið dregnar frá – hafi átt 2.062 millj­arða króna í hreinni eign um síð­ustu ára­mót. Alls á þessi hópur 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Eigið fé hans jókst um 185 millj­arða króna á síð­asta ári. Eigið fé hinna 90 pró­sent lands­manna jókst á sama tíma um 209 millj­arða króna. Það þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á síð­asta ári fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna.Þegar eigið fé 20 pró­sent efna­mestu fjöl­skyldna þjóð­ar­innar er skoðað kemur í ljós að sá hópur á 85 pró­sent af öllu eigið fé í land­inu. Sá helm­ingur þjóð­ar­innar sem á minnst er sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé upp á 175,3 millj­arða króna. Þetta kom fram í tölum um eig­in­fjár­stöðu Íslend­inga í lok árs 2016 sem birtar voru í byrjun októ­ber.

Ekki er boðið upp á frek­ari skipt­ingu í tölum Hag­stof­unnar um eig­in­fjár­stöðu en á milli tíunda. Því eru ekki, sem stendur, aðgengi­legar um hversu mikið eigið fé rík­asta eitt pró­sent lands­manna átti um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár