Spútnik sprautað í Rússa: Hefja bólusetningu í stórum stíl eftir helgi

Um helg­ina hefj­ast bólu­setn­ingar á for­gangs­hópum í Moskvu með bólu­efn­inu Spútnik V. Tvær millj­ónir skammta eru sagðar til. Reuters-frétta­stofan segir suma rík­is­starfs­menn upp­lifa þrýst­ing um að taka þátt í klínískum til­raunum á virkni bólu­efn­is­ins.

Rússneska bóluefnið Spútnik V er á leið í dreifingu. Um helgina geta Moskvubúar í forgangshópum fengið fyrri sprautu sína.
Rúss­neska bólu­efnið Spútnik V er á leið í dreif­ingu. Um helg­ina geta Moskvu­búar í for­gangs­hópum fengið fyrri sprautu sína. Mynd: Gamaleya-stofnunin í Moskvu

Um helg­ina verður byrjað að bjóða for­gangs­hópum í Moskvu, höf­uð­borg Rúss­lands, upp á að gang­ast undir bólu­setn­ingu gegn COVID-19 með rúss­neska bólu­efn­inu Spútnik V. Vladimír Pútín for­seti hefur fyr­ir­skipað að almennar bólu­setn­ingar á stórum skala skuli hefj­ast í Rúss­landi í næstu viku. Um tvær millj­ónir skammta eru þegar sagðir til reiðu.

For­set­inn skip­aði rík­is­stjórn­inni að hefja bólu­setn­ingar síð­asta mið­viku­dag, ein­ungis nokkrum klukku­tímum eftir fregnir bár­ust af því að Pfizer-bólu­efnið hefði fengið skil­yrt mark­aðs­leyfi í Bret­landi og til stæði að hefja bólu­setn­ingu þar í næstu viku. Rússnesk yfir­völd gáfu leyfi til þess að hefja bólu­setn­ingar með Spútnik V strax í lok ágúst og munu um 100.000 manns þegar hafa verið bólu­sett.

En nú á að setja allt af stað. Borg­ar­stjóri Moskvu, Sergey Sobyanin, gaf út í gær að læknar, kenn­arar og starfs­menn félags­þjón­ust­unnar í borg­inni yrðu fyrstir til þess að eiga kost á bólu­setn­ingu í bólu­setn­ing­ar­mið­stöðvum sem settar yrðu upp víða um borg­ina.

Fullyrt að Spútnik veiti vörn í yfir 95 prósent tilfella

Rúss­neska bólu­efnið er þróað af Gamaleya-stofn­un­inni í Moskvu, opin­berri rann­sókn­ar­stofnun í far­alds- og örveru­fræði. Segja fram­leið­end­urnir að búið sé að forp­anta yfir 1,2 millj­arða skammta af Spútnik og að áhug­inn á rúss­neska bólu­efn­inu sé mik­ill utan land­stein­anna.

Þegar er búið að flytja prufu­skammta til Ung­verja­lands (við litla kátínu Evr­ópu­sam­bands­ins), Serbíu, Indlands, Venes­ú­ela og Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, auk fleiri ríkja. Búið er að skrifa undir samn­inga um að bólu­efnið verði fram­leitt í stórum stíl í bæði Indlandi og Suður-Kóreu. Hér að neðan má sjá mynd­band af flutn­ingi á skömmtum frá Rúss­landi til Indlands.

Þriðja stigs klínískar rann­sóknir á bólu­efn­inu standa enn yfir, en full­yrt er af hálfu fram­leið­enda að þær bráða­birgða­nið­ur­stöður sem liggi fyrir sýni fram á virkni í 95 pró­sent til­fella 42 dögum eftir fyrsta skammt og engar alvar­legar auka­verk­anir.

Vest­rænir vís­inda­menn hafa þó lýst yfir efa­semdum um nið­ur­stöður sem voru birtar í lækna­tíma­rit­inu Lancet fyrr í ferl­inu, en fram­leið­endur bólu­efn­is­ins og rúss­nesk stjórn­völd hafa vísað því á bug sem áróð­urs­brögðum. Vest­ur­lönd vilji grafa undan góðu og traustu bólu­efni Rússa.

Hvað sem alþjóða­póli­tík­inni líður þá eru margir innan Rúss­lands efins um bólu­efnið, sem byggir á eitla­veiru­tækni svip­aðri þeirri sem AstraZenica og Johnson & Johnson not­ast við í sinni þróun.

Ríkisstarfsmenn upplifa þrýsting um að gerast tilraunadýr

Í ítar­legri umfjöllun Reuters-frétta­stof­unnar sem birt­ist í dag kemur fram að enn hafi bara um 20 þús­und þátt­tak­endur feng­ist í stóru þriðja stigs til­raun­ina, af þeim 40 þús­undum sem þurfi að taka þátt.

Reuters segir suma rík­is­starfs­menn hafa verið beitta þrýst­ingi um að taka þátt í rann­sókn­inni og láta bólu­setja sig. Pressan kom í sumum til­fellum frá þeirra yfir­boð­urum, sem höfðu fengið það verk­efni að fá ákveðið marga starfs­menn sína til þess að ger­ast sjálf­boða­liðar.

Frétta­menn Reuters í Moskvu fóru á stúf­ana og ræddu við þátt­tak­endur sem komnir voru á heilsu­gæslu­stöðvar til að bjóða sig fram til þátt­töku í til­raun­inni nokkra daga í októ­ber og nóv­em­ber. Alls var farið á þrettán mis­mun­andi stöðvar og rætt við 32 þátt­tak­endur.

Af þeim sögð­ust 30 hafa heyrt af klínísku rann­sókn­inni í vinn­unni. Tuttugu og þrír sögð­ust vera á staðnum af fúsum og frjálsum vilja en níu manns sögðu að það væri ekki alfarið til­fellið. Öll voru þau starfs­menn hjá hinu opin­bera og ræddu við Reuters í trún­aði. 

„Það er ómögu­legt að segja nei, það er bara ekki hægt,“ segir einn mið­aldra maður sem starfar sem sjúkra­flutn­inga­maður í Moskvu. Vinnu­veit­endur hans full­yrtu í svari við fyr­ir­spurn Reuters að eng­inn starfs­maður þaðan hefði verið þving­aður eða beittur þrýst­ingi til þess að ger­ast sjálf­boða­liði.

Svipaða sögu um þrýst­ing sögðu kenn­ari, tveir heil­brigð­is­starfs­menn og götu­sóp­ari, sem Reuters ræddi við á einni heilsu­gæslu­stöð í úthverfi Moskvu.

Spurður hvort hann hefði getað hafnað beiðni um að fara í bólu­setn­ingu svar­aði götu­sópar­inn hlæj­andi: „Nei, við vinnum fyrir hið opin­bera.“

Ekkert af þeim níu sem sögð­ust hafa mætt gegn eigin vilja end­uðu þó á að ger­ast þátt­tak­endur í til­raun­inni. Ýmist stóð­ust þau ekki læknis­próf eða þá að heil­brigð­is­starfs­fólkið sem starfar við klínísku rann­sókn­ina veitti þeim ein­hverja tylli­á­stæðu fyrir því að taka ekki þátt.

Blaðamaður mætir í sprautu

Frétta­rit­ari þýska blaðs­ins Deutche Welle í Moskvu er þó búinn að láta bólu­setja sig með Spútnik, en hann ákvað að láta slag standa og taka þátt í til­raun­inni eftir að hafa séð vini sína veikj­ast alvar­lega og þurfa að sæta langri ein­angrun eftir að hafa smit­ast af COVID-19.

Hann lýsir því í pistli á vef DW að hann hafi fengið sömu auka­verk­anir og fram­leið­endur Spútnik V hafa gefið út að eðli­legt sé að fylgi spraut­unni. Höf­uð­verkur, tölu­verður hiti (38,6°C) og vöðva­verkir voru á meðal ein­kenna sem blaða­mað­ur­inn fann fyrir. Hann seg­ist hafa glaðst, þar sem auka­verk­an­irnar þýði að hann hafi fengið bólu­efni, ekki lyf­leysu.

Auka­verk­an­irnar voru svo að mestu horfnar næsta dag. „Eftir þrjár vikur fæ ég annan skammt. Mér skilst að mótefni eigi að byrja að mynd­ast 42 dögum eftir fyrsta skammt. Hins vegar á eftir að koma í ljós hvort þau muni í raun geta komið í veg fyrir COVID-19,“ skrifar frétta­rit­ar­inn í pistli sínum, frá Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár