Telja að afnám stimpilgjalda muni ekki auðvelda fólki að koma þaki yfir höfuðið

Bæði Íbúða­lána­sjóður og Samtök atvinnu­lífs­ins eru þeirrar skoð­unar að afnám stimp­il­gjalda muni leiða til frek­ari verð­hækk­unar á hús­næði. Því muni afnám þess ekki auð­velda fleira fólki að eign­ast íbúð.

Íbúða­lána­sjóður telur ein­sýnt að afnám stimp­il­gjalds, sem lagt er á þegar keypt er hús­næði, muni leiða til þess að hús­næð­is­verð muni hækka. Því sé ekki víst að mark­mið frum­varps um afnám stimp­il­gjalda, sem er að auð­velda fólki að eins og frekast er unnt að eign­ast íbúð­ar­hús­næði, einkum við aðstæður á borð við þær sem nú ríkja á hús­næð­is­mark­aði“ muni nást með aðgerð­inni. Til þess að ná því mark­miði væri mark­viss­ara að útvíkka þann afslátt sem nú gildir um stimp­il­gjald vegna fyrstu kaupa, ýmist með því að auka hann enn frekar eða með því að veita vissum félags­hópum, sem nú eiga sér­stak­lega erfitt með að kom­ast inn á fast­eigna­markað, sér­stakan afslátt.

[links]Þetta kemur fram í umsögn sjóðs­ins um frum­varp um afnám stimp­il­gjalda sem átta þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks lögðu fram í des­em­ber. Umsögn­inni var skilað á þriðju­dag. Íbúð­álana­sjóður fagnar hins vegar umræðu um stimp­il­gjöld vegna íbúð­ar­kaupa.

Samtök atvinnu­lífs­ins skil­uðu einnig inn ítar­legri umsögn um frum­varpið og leggja til að frum­varpið verði sam­þykkt á þeim for­sendum að í því felist aðgerð sem minnkar skatt­heimtu. Þau benda þó á að það kunni að vera að frum­varpið muni ekki ná mark­miði sínu að auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næðis. „Aðgerðir eins og þessar eru til þess fallnar að ýta undir eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði sem leiðir til verð­hækk­unar.“

Tvær aðrar umsagnir bár­ust Alþingi vegna frum­varps­ins, en frestur til að skila inn slíkum rann út á mánu­dag. Þær voru frá Neyt­enda­sam­tök­unum og Hags­muna­sam­tökum heim­il­anna, sem leggja til að frum­varpið verði sam­þykkt.

Flutningsmenn telja að stimpilgjaldið hækki húsnæðisverð

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Auk hennar eru sjö flokks­fé­lagar hennar flutn­ings­menn þess. Í því er lagt til að stimp­il­gjald vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði verði afnumið, en það er í dag 0,8 pró­sent af heild­ar­fast­eign­ar­mati. Sú und­an­tekn­ing er til staðar að veittur er helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða.

[adspot]Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að mark­mið þess sé að auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næðis og að auka skil­virkni og flæði á mark­aði með íbúð­ar­hús­næði. „Mikil þörf er á að auð­velda fólki eins og frekast er unnt að eign­ast íbúð­ar­hús­næði, einkum við aðstæður á borð við þær sem nú ríkja á hús­næð­is­mark­aði.

Þar segir enn fremur: „Sýnt þykir að stimp­il­gjald hafi áhrif til hækk­unar fast­eigna­verðs, dragi úr fram­boði og rýri hlut kaup­enda og selj­enda. Af fram­an­greindu má ætla að afnám stimp­il­gjalds af fast­eigna­við­skiptum muni auð­velda verð­myndun á hús­næð­is­mark­aði með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­boði sem hefur verið með minnsta móti und­an­farin ár.“

Húsnæðisverð hækkað um rúmlega 90 prósent á sjö árum

Hús­næð­is­verð hefur hækkað mikið á Íslandi á und­an­förnum árum. Frá því í sept­em­ber 2010 og fram í nóv­em­ber 2017 hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda um tæp 93 pró­sent. Á árinu 2017 einu saman hækk­aði verðið um 13,4 pró­sent og frá byrjun árs 2016 hefur það hækkað um 30,5 pró­sent.

Und­an­farna mán­uði hefur þó dregið umtals­vert úr hækk­unum og jafn­vægi ríkt. Á milli októ­ber og nóv­em­ber lækk­aði það þeirra að segja lít­il­lega. Það var í fyrsta sinn síðan í apríl 2015 sem að vísi­talan lækk­aði á milli mán­aða.

Helsta ástæða þess að íbúða­verð hefur hækkað mikið á skömmum tíma, og erf­ið­ara hefur verið fyrir ungt eða tekju­lágt fólk að kaupa eða leigja, er að eft­ir­spurn er lang­sam­lega meiri en fram­boð. Sam­kvæmt grein­ingu Íbúða­lána­sjóðs, sem gerð var fyrir aðgerð­ar­hóp félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og birt var í apr­íl, vant­aði nú þegar 4.600 íbúðir og byggja þyrfti níu þús­und íbúðir til loka árs 2018 til að ná jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurn­ar.

Afleið­ingin er meðal ann­ars sú að fjórir af hverjum tíu íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á þrí­tugs­aldri búa enn, eða á ný, í for­eldra­húsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár