Kaupfélag Skagfirðinga og MS kúpla sig út úr skyrævintýrinu í Rússlandi

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hefur selt sig út úr IcePro, fyr­ir­tæki sem stóð að fram­leiðslu Ísey skyrs í Rúss­landi. Ísey útflutn­ingur, syst­ur­fé­lag MS, hefur sömu­leiðis rift leyf­is­samn­ingi við rúss­neska fyr­ir­tækið.

Kynningarefni fyrir Ísey skyr í Rússlandi.
Kynn­ing­ar­efni fyrir Ísey skyr í Rúss­landi.

Fyr­ir­tækið Ísey útflutn­ingur ehf., sem er syst­ur­fé­lag Mjólk­ur­sam­söl­unnar, hefur rift leyf­is­samn­ingi sínum við rúss­neska félagið IcePro, sem verið hefur í hluta­eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, um fram­leiðslu og dreif­ingu á skyri undir merkjum ISEY-skyr fyrir Rúss­lands­markað. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tækj­unum í dag.

Þar segir að Ísey útflutn­ingur ehf. hafi haft leyf­is­samn­ing­inn til skoð­unar und­an­farnar vikur vegna stríðs­rekst­urs Rúss­lands í Úkraínu og að honum hafi nú verið rift og búið sé að til­kynna ákvörð­un­ina til for­ráða­manna IcePro í Rúss­landi. Samhliða þess­ari ákvörðun hafi Kaup­fé­lag Skag­firð­inga dregið sig út úr eign­ar­haldi á félag­inu IcePro.

Fá svör fengust í mars

Kjarninn spurði Sigurjón R. Rafnsson aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra hjá KS að því, þann 18. mars síð­ast­lið­inn, hvort það hefði verið „til ein­hverrar skoð­unar hjá KS að hætta skyr­fram­leiðslu og sölu í Rúss­landi í ljósi fram­göngu Rússa í Úkraínu?“ en engin svör bár­ust við þeirri skrif­legu fyr­ir­spurn.

Nokkrum dögum fyrr hafði Sigurjón sagt blaða­manni í skrif­legu svari að stríðs­rekstur Rússa hefði ekki haft nein áhrif á skyr­fram­leiðslu og sölu í Rúss­landi og erfitt væri að sjá fyrir hvernig það þró­að­ist.

Kjarninn beindi einnig skrif­legri fyr­ir­spurn til MS þann 7. mars síð­ast­lið­inn, á almennt net­fang fyr­ir­tæk­is­ins, um hvort ljóst væri á þeirri stundu hvort hern­aður Rúss­lands í Úkraínu kæmi „ti með að hafa ein­hver áhrif á sér­leyf­is­samn­ing Mjólk­ur­sam­söl­unnar um fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu IcePro og Lactika JSC á Ísey skyri á rúss­neskum neyt­enda­mark­aði“. Ekkert svar barst heldur við þeirri fyr­ir­spurn.

Engin riftunarákvæði sögð til staðar í gær

Í gær var hins vegar fjallað um málið í Frétta­blað­inu og þar meðal ann­ars haft eftir Einari Ein­ars­syni, rekst­ar­stjóra Íseyjar hjá MS, að ekki væri búið að taka neina ákvörðun um þessi mál og að það væru hrein­lega „engin rift­un­ar­á­kvæði“ sem hægt væri að grípa til „vegna þess ástands sem er“.

En nú er ljóst að fram­leiðslu á skyri undir merkjum Íseyjar í Rúss­landi verður hætt.

Tekið er fram í til­kynn­ing­unni um málið að í ljósi umræðna um sölu á Ísey skyri í Rúss­landi sé vert að taka fram að aldrei hefur verið flutt út skyr frá Íslandi til Rúss­lands.

„Árið 2018 hóf fram­an­greint rúss­neskt félag, í eigu þar­lendra aðila og áður Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, fram­leiðslu og dreif­ingu á Ísey skyri í Rúss­landi sam­kvæmt umræddum leyf­is­samn­ingi sem nú hefur verið rift,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár