SUS: Fordæma ummæli Ásmundar og vilja að hann biðjist afsökunar

Ungir sjálf­stæð­is­menn hvetja Ásmund Frið­riks­son til þess að biðja íslenska múslima afsök­unar á ummælum sínum um að kanna eigi bak­grunn múslima hér á landi. Þetta kemur fram í ályktun Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, sem var send til fjöl­miðla rétt fyrir hádegi.

„Mik­il­vægt er að leið­togar heims­ins gefi ekki eftir í bar­átt­unni gegn hryðju­verka­hópum eins og Íslamska rík­inu, en reyni jafn­framt á sama tíma að sporna við því að minni­hluta­hópar sæti ofsóknum vegna trú­ar­skoð­ana sinna," segir í álykt­un­inni. Þá segir að vegna þessa sé það virki­lega óvið­eig­andi og til umhugs­unar að maður sem á sæti á æðstu stofnun Íslend­inga láti ummæli sem þessi falla.

„Sjálf­sögð borg­ara­rétt­indi minni­hluta­hópa falla ekki niður vegna hryðju­verka­árása ofstæk­is­manna. Ummæli Ásmundar eru aðeins til þess fallin að stuðla að félags­legri ein­angrun múslima á Íslandi.“

Þá segja ungir sjálf­stæð­is­menn að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið mik­il­vægt afl í mann­rétt­inda­málum á Íslandi og ummæli eins og Ásmundar séu í engu sam­ræmi við grunn­gildi flokks­ins um ein­stak­lings­frelsi og borg­ara­rétt­indi.

Eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag hafði Magnús Júl­í­us­son, for­maður SUS, tjáð sig um málið á Facebook fyrir hádegi. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Heimdallar, gerði slíkt hið sama. Þau voru bæði harð­orð í garð Ásmundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár