Íslendingar, náttúra, hálendi og hreindýr

Jakob S. Jónsson fjallar um Öræfa­hjörðina, sögu hreindýra á Íslandi.

Þegar farið er um öræfi Austur­lands á góðviðris­degi má stundum líta stórar hjarðir tignarlegra hreindýra fara um og er þá vissara að fara varlega – hreindýr eru stygg og greina hið smæsta hljóð og eru snögg að forða sér ef þau verða vör við nærveru manna. Best að hafa vindinn í fangið vilji menn virða þessi tígulegu dýr fyrir sér í þeirra heimavist, fara hljóðlega og notast við góða aðdráttar­linsu vilji menn fanga augna­blikið.

Hrein­dýrin íslensku vekja virðingu og aðdáun, og sumir vilja njóta þess að virða þau fyrir sér í sínu eiginlega umhverfi, öræfum Austur­lands, þar sem þau hafa þegar öðlast þegnrétt þrátt fyrir mun styttri búsetu í landinu en við mann­fólkið; hjá öðrum kviknar veiði­eðlið og eru hrein­dýraveiðar vinsælt sport orðið, þótt upphaf­lega hafi hrein­dýrin verið flutt til landsins til að verða hluti af lífs­viðurværi mannsins. Það má undrun sæta að hrein­dýrin skuli hafa öðlast svo sterkar rætur í þjóðar­sálinni miðað við hversu stutt þau hafa átt heima á Íslandi – og alls ekki sjálf­gefið að þau myndu lifa af óblíð náttúruöfl, vetrar­hörku, kulda og gróður­leysi.

Sitthvað hefur verið ritað og gefið út um hreindýr á Íslandi þótt flest sé það takmarkað og komið nokkuð á aldur. Skylt er að nefna þátt Helga Valtýs­sonar í því sambandi, en hann er að líkindum sá höfundur íslenskur sem mest hefur skrifað um hreindýr á Íslandi, en greinar hans og bækur telja amk. fimmtán titla og ber þar hæst bókina Á hreindýra­slóðum, sem kom út 1945 og er ekki einasta greinargóð lýsing á hrein­dýrum á öræfum Austur­lands heldur einnig sann­kallaður óður til gjörvallrar nátt­úrunnar; má hér geta þess að rithöfundurinn Andri Snær Magnason vekur í nýút­kominni bók sinni, Um tímann og vatnið, sérstaka athygli á ást og virðingu Helga til nátt­úrunnar og telur þessar tilfinningar undir­stöðu farsælla samskipta manns og náttúru. Það má til sanns vegar færa; það fer ekki á milli mála að hrein­dýrin kalla á lotningu ekki einasta fyrir sjálfum sér sem tegund heldur einnig fyrir allan þann heim öræfa, heiða og fjalla sem er þeirra.

Að öðru leyti sýnist á heimilda­skrá að meirihluti heimilda sé nokkuð við aldur, þótt þar megi einnig finna áhuga­verðar undan­tekningar og má kannski vekja þar sérstaka athygli á fróðlegri og skemmtilegri bók Guðna Einars­sonar sem út kom 2014: Hrein­dýraskyttur. Líflegar og fræðandi frásagnir af hrein­dýraveiðum.

En hvað um það; nú hefur Sögufélag heldur betur bætt úr og gefið út mikið og veglegt rit, ríkulega mynd­skreytt og vandað að frágangi og útliti, sem vel má kalla heildarrit um sögu hreindýra á Íslandi frá upphafi til vorra daga. Heiðurinn öðrum fremur af þessu afreki á höfundurinn, Unnur Birna Karls­dóttir, forstöðu­maður Rannsókna­seturs Háskóla Íslands á Austur­landi; hún er doktor í sagnfræði og hefur ritað fræði­greinar um samband manna og náttúru á Íslandi og er Öræfa­hjörðin stærsta verk hennar á því sviði. Hún hefur sem vænta má notið aðstoðar ótal sérfræðinga og áhuga­manna um hreindýr og vistkerfi þeirra og skulu þar helstir taldir ritstjóri bókarinnar, Kristín Svava Tómasdóttir, og útgáfu­stjórinn Brynhildur Ingvars­dóttir en auk þeirra hafa komið að útgáfunni hönnuðir, ljós­myndarar, safnafólk og sagnamenn sem allir hafa stuðlað að því að Öræfa­hjörðin er eins vel úr garði gerð og kostur er. Bókin ber að öllu leyti með sér að vera hin eigulegasta.

Bókinni er skipt í sex hluta og er frá því greint í inngangi sem hér segir: Fyrsti hlutinn er almennur inngangur um hreindýr og lífshætti þeirra og þátt mannsins í sögu þeirra, stuttur en fróðlegur.

Í öðrum hluta víkur sögunni til Íslands og greint er frá innflutningi hreindýra til landsins á átjándu öld og hvaða hugmyndir þar réðu ferð og hverjar viðtökur hrein­dýrin fengu í upphafi hér á landi. Það er athyglis­vert að það er að frumkvæði danskra yfirvalda að innflutningur hreindýra á sér stað og er ætlun þeirra að draga úr áhrifum harðinda hér á landi og auka fjöl­breytni og bæta afkomu­möguleika í land­búnaði.

Þriðji hluti bókarinnar tekur til viðhorfa til hreindýra á nítjándu öld; þá virðast yfirvöld hverfa frá hugmyndum um að hreindýra­búskapur sé til framfara, veiði­skapur hefst og skoðanir gerast ærið skiptar um hvort hreindýr séu til gagns eða ógagns.

Í fjórða hluta er komið inn á fyrri helming tuttugustu aldar en þá er eins og löggjafinn hrökkvi upp af blundi og sjái að ekki hafi allt orðið sem skyldi í sambúð lands­manna við þessa innfluttu ferfætlinga og reynt er að rétta stefnuna með laga­setningu og reglu­gerðum. Þá spratt einnig upp lífleg umræða um tilvist hreindýra hér á landi og er henni gerð skil í þessum kafla, eins og umræðan um nýtingu hreindýra og útbreiðslu þeirra, en þarna voru menn að átta sig á því að býsna lítið var í raun vitað um hrein­dýrin, eðli þeirra og náttúru og sáu að brýnt væri að bæta úr því þekkingar­leysi. Niður­staða þeirrar umræðu var að hafið var eftirlit með hrein­dýrahjörðum og gætt að velferð þeirra í ríkari mæli en áður hafði verið.

Í fimmta hluta er greint frá þróun mála á seinni hluta tuttugustu aldar og greint frá því hvernig skipulagi er komið á hrein­dýraveiðar.

Niðurlag sögunnar er svo rakið í sjötta hlutanum og lýkur þeim hluta með kafla þar sem horft er yfir sögu­sviðið og niður­stöður dregnar saman.

Þegar farið er yfir svo vítt svið og efnis­tökin jafn víðfeðm og hér má sjá, nýtist almennum lesanda lesturinn ef til vill best í smáskömmtum og er vel og smekklega tekið tillit til þess í uppsetningu og frágangi bókarinnar. Hér úir og grúir af fróðlegum og oft bráð­skemmtilegum frásögnum í innskotsköflum þar sem er ýmist að finna beinharða sagnfræði sem hefði að líkindum farið verr um í meginmáli eða frásagnir veiði­manna eða tilvitnanir í skáldskap, enda hafa hrein­dýrin víða komið við í sambúð manns og náttúru. Þessir innskotskaflar auka gildi bókarinnar og gera hana að skemmtilegum félaga á frístundum, svo ekki sé minnst á hversu notalegt það getur verið að gæða sér á einum og einum kafla undir svefninn.

Efnistök Unnar Birnu einkennast af því að hún er sagn­fræðingur og þarf engan að undra. Hitt er athyglis­vert að tök hennar eru einnig þver­fagleg. Þannig fær lesandi að kynnast líffræði og vistfræði hreindýra og þegar kemur að hinum mannlega þætti og samskiptum dýra og manna er ekki komið að tómum kofanum og má jafnvel líta svo á að frásögnin verði mann­fræðileg öðrum þræði. Unnur Birna hefur víða leitað fanga meðal bænda á Austur­landi sem lengi hafa lifað í návígi við hrein­dýrin sem og veiði­manna; öll sú frásögn einkennist af virðingu fyrir samskiptum manns og náttúru og Unnur Birna hikar ekki við að lyfta fram hagsmunum náttúru og vist­kerfis og skyldi kannski engan undra.

Veiðimenn og bændur geta yfirleitt sjálfir komið fyrir sig orði, náttúru og vistkerfi veitir ekki af hverjum þeim talsmanni sem vekur athygli á þeirra hagsmunum.

Bókin veitir þar með mikil­vægan og verðmætan fræði­legan skilning á umræðu sem er ærið áberandi í okkar nútíma og varðar fyrst og fremst spurninguna sem einfald­lega snýst um hvort nýta eigi náttúru í þágu manns eða vernda í þágu ferða­þjónustu og framtíðar. Unnur Birna fjallar um þetta í lokakafla bókarinnar þar sem hún horfir yfir sviðið og lítur til framtíðar. Þar bendir hún á hið athyglis­verða, að mestöll umræða um tilvist hreindýra á Íslandi hefur tekið mið af þörfum sauðfjár­búskapar og hafa þar hrein­dýrin lotið í lægra haldi; þá hafi það alveg frá upphafi verið slegið útaf borðinu að Íslendingar skyldu gerast hreindýra­bændur – hirðingja­búskapur var aldrei og hefur aldrei verið talinn henta íslenskri samfélags­gerð eða íslenskum búskapar­háttum og athyglis­vert að þetta viðhorf skuli ekki hafa verið gagnrýnt fyrr en nú á síðustu árum, að farið er að ræða af alvöru möguleika á hreindýra­búskap þar sem nýta mætti afurðir hreindýra á mun fjöl­breyttari hátt en nú er. Verður vissulega fróðlegt að fylgjast með framhaldi þeirrar umræðu, ekki síst í ljósi þeirrar þekkingar sem finna má í bók Unnar Birnu.

Þá má geta þess að Unnur Birna hefur í nýlegri grein í Ritinu, tímariti Hugvísinda­stofnunar Háskóla Íslands, gert enn betur grein fyrir ástinni á öræfum í merkingunni hrifning af náttúru miðhálendis Íslands og ber þar saman skrif tveggja náttúru­unnenda, fyrr­nefnds Helga Valtýs­sonar og Guðmundar Páls Ólafs­sonar og hvernig viðhorf þeirra einkennast af persónu­legu sjónar­horni, markast af áhrifum af vestrænni náttúrusýn þar sem lögð er áhersla á gildi villtrar náttúru og mikilvægi þess að hún sé vernduð, ekki aðeins sjálfs sín vegna, en ekki síður mannsins. Í þessu ljósi er framlag Unnar Birnu til umræðu í samtíma um stofnun miðhálendis­þjóðgarðs ekki síður mikilvæg; Öræfa­hjörðin er í því ljósi nauðsynleg lesning. Þá má einnig minna áhugasama á aðra bók Unnar Birnu þar sem hún fjallar einnig um viðhorf manns til náttúru en útfrá eilítið öðru sjónar­horni – það er bókin Þar sem fossarnir falla, sem út kom fyrir sléttum tíu árum og tekur einnig á tvíbentu sambandi Íslendinga við náttúru landsins.

Eina meinlega villu fann ég við lestur Öræfa­hjarðarinnar. Á bls. 129 er vitnað í Hákon Aðal­steinsson frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, þekktan hrein­dýraveiði­leið­sögumann og í því sambandi greint frá þeirri skemmtilegu staðreynd að systir hans hafi verið fyrsta konan sem felldi hreindýr á Íslandi. Hún er hér nefnd Sigríður, en það er nafn eiginkonu Aðalsteins, eldri bróður Hákonar, en í sömu andrá er einnig vitnað til þeirra. Hið rétta er að systir Hákonar er Sigrún, ávallt kölluð Sída, og hún er fyrsta konan sem skaut hreindýr á Íslandi; er því hér með haldið til haga í þeirri von að þetta atriði verði leiðrétt í næstu útgáfu Öræfa­hjarðarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár