Kalifornía stendur við loftslagsmarkmiðin þrátt fyrir stefnu alríkisstjórnarinnar

Stærsta ein­staka ríki Banda­ríkj­anna vill standa við mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lagið.

Arnold Schwarzenegger er fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu sem samþykkti upphaflegu loftslagslögin árið 2006. Jerry Brown, núverandi ríkisstjóri, framlengdi þau í vikunni.
Arnold Schwarzenegger er fyrr­ver­andi rík­is­stjóri Kali­forníu sem sam­þykkti upp­haf­legu lofts­lags­lögin árið 2006. Jerry Brown, núver­andi rík­is­stjóri, fram­lengdi þau í vik­unni. Mynd: EPA / Samsett mynd

Jerry Brown, rík­is­stjóri í banda­ríska rík­inu Kali­forníu, hefur fram­lengt lofts­lags­á­ætlun rík­is­ins um tíu ár. Í Kali­forníu verður þess vegna sett tak­mark á magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem blása má út í and­rúms­loftið og mark­aði með los­un­ar­heim­ildir haldið við.

Alrík­is­stjórn Banda­ríkj­anna undir for­sæti Donalds Trump hefur sagt sig frá Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um aðgerðir í lofts­lags­málum. Það til­kynnti Trump í byrjun júní. Hann hefur síðan keppst við að afnema lofts­lags­reglu­verk for­vera síns í emb­ætti, Baracks Obama.

Markaður Kali­forníu með los­un­ar­heim­ildir í Kali­forníu er eini slíki mark­að­ur­inn í öllum Banda­ríkj­unum. Til hans var stofnað árið 2006 í rík­is­stjóra­tíð leik­ar­ans og Tor­ím­and­ans Arnolds Schwarzenegger.

Schwarzenegger var við­staddur þegar Brown, rík­is­stjóri úr röðum Demókra­ta­flokks­ins, fram­lengdi lofts­lags­lög­gjöf­ina í vik­unni. Hann benti á að hag­kerfi Kali­forníu hefði vaxið hraðar en hag­kerfi Banda­ríkj­anna allra síðan lofts­lags­lög­gjöfin var sam­þykkt árið 2006. „Kannski ættu íhaldsamir repúblikanar að hætta að ljúga að fólk­inu. Hættið að ljúga að fólk­inu! Hættið því!“ sagði Schwarzenegger í ávarpi sínu.

Lofts­lags­reglu­verk Kali­forníu er talið vera til marks um að hægt er að beita lögum og reglum til þess að gera los­un­ar­heim­ildir að mark­aðs­vöru. Hagkerfi Kali­forn­íu­ríkis eins og sér er sjötta stærsta hag­kerfi heims á eftir hag­kerfum Banda­ríkj­anna, Kína, Japan, Þýska­lands og Bret­lands.

Ísland á aðild að sams­konar los­un­ar­heim­ilda­mark­aði og í Kali­forníu; Í gegnum EES-samn­ing­inn er Ísland aðili að við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá iðn­aði, flug­sam­göngum og flutn­inga á hafi.

Kalifornía finnur fyrir loftslagsbreytingum

Kali­forn­íu­ríki á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna er eitt þeirra ríkja í Norður-Ameríku sem fundið hefur hvað mest fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Miklir þurrkar hafa verið í Kali­forníu á und­an­förnum árum vegna breyttra veð­ur­mynstra. Það hefur gert hætt­una á gróð­ur­eldum mun meiri og eigna­tjón vegna þeirra eru nú mun tíð­ari.

Breytt veður hefur einnig orðið til þess að vatns­forði rík­is­ins er orð­inn rýr og óstöð­ugur. Úrkoma er nú nær öll í formi rign­ingar sem hefur áhrif á straum­vatn og grunn­vatns­stöðu yfir allt árið.

Í Yosemite-þjóð­garð­inum í Sierra Nevada-fjall­garð­inum hefur snjó­koma minnkað mikið á und­an­förnum árum. Áin sem rennur í gegnum þjóð­garð­inn fræga hættir þess vegna orðið að renna um mitt sumar, svo dæmi sé tekið.

Stjórn­völd í Kali­forn­íu­ríki og borgum rík­is­ins hafa þurft að grípa til þess ráðs að skammta vatn til borg­ara, vegna þessa.

Til marks um hversu óreglu­legt veðrið er orðið í Kali­forníu var síð­asti vetur blaut­asti vetur í rík­inu síðan mæl­ingar hófust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár