Stjórnvöld ætla að tryggja markaðsverð fyrir orku

Íslensk stjórn­völd hafa fall­ist á að breyta íslensku reglu­verki og tryggja að raf­orku­fyr­ir­tæki, sem nýta nátt­úru­auð­lindir í almanna­eigu til orku­fram­leiðslu, greiði alltaf mark­aðs­verð fyrir slík afnot. Stjórn­völd ætla einnit að fara yfir gild­andi samn­inga með orku­fyr­ir­tækj­unum til að tryggja að til fram­tíðar verði einnig greitt mark­aðs­verð.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, en aðgerð­irnar sem íslensk stjórn­völd ætla að ráð­ast í byggja á til­mælum eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar. ESA fór fram á það að farið yrði í gagn­gera end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi þess­ara mála til að koma í veg fyrir rík­is­að­stoð til orku­fyr­ir­tækja. Íslensk stjórn­völd brugð­ust við þessu með því að skipa starfs­hóp til að yfir­fara gild­andi lög­gjöf og leggja til þær breyt­ingar sem nauð­syn­legar eru. Þá ætlar starfs­hóp­ur­inn að móta skýra aðferða­fræði um hvernig mark­aðs­verð nátt­úru­auð­linda verður ákveðið. Starfs­hóp­ur­inn ætlar auk þess að end­ur­skoða alla samn­inga sem eru í gildi.

ESA hefur ákveðið að loka rann­sókn sinni á rík­is­að­stoð til orku­fyr­ir­tækja á Íslandi vegna þess­ara við­bragða, en ætlar engu að síður að fylgj­ast með fram­vindu mála á Íslandi.

„Þessar breyt­ingar eru til að tryggja eðli­legt end­ur­gjald fyrir nýt­ingu nátt­úru­auð­linda í eigu almenn­ings og þar með sann­gjarna sam­keppni á íslenskum raf­orku­mark­aði,“ segir Helga Jóns­dóttir, stjórn­ar­maður hjá ESA.

Nauð­syn­legt til að tryggja sam­keppni

ESA sagði í ákvörðun sinni í fyrra að ráð­staf­an­irnar sem lagðar eru til séu nauð­syn­legar til að tryggja megi sann­­gjarna og virka sam­keppni á íslenska raf­­orku­­mark­aðn­­­um. ESA telur nauð­­syn­­legt að til að tryggja sam­keppni þurfi orku­­fyr­ir­tæki að greiða mark­aðs­verð fyrir nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Íslensk stjórn­­völd hafi hins vegar í fjöl­­mörgum til­­vikum veitt orku­­fyr­ir­tækjum aðgang að nátt­úru­auð­lindum til að fram­­leiða raf­­orku úr vatns­­afli eða jarð­varma án þess að nokkur lög­­­gjöf sé til um efni slíkra samn­inga. Það er hvorki skýr laga­­skylda til að fara fram á greiðslu mark­aðs­verðs né opin­ber mæli­kvarði á það hvernig ákvarða eigi end­­ur­­gjald á Ísland­i.

ESA vill að sett verði lög til að tryggja að öll til­­­færsla nátt­úru­auð­linda vegna raf­­orku­fram­­leiðslu fari fram á mark­aðs­­for­­sendum og að slík kvöð yrði bind­andi fyrir bæði ríki og sveit­­ar­­stjórn­­­ir.

„Setja þarf lög sem fela í sér að ávallt sé farið fram á greiðslu mark­aðs­verðs þegar orku­­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátturauð­lindir í almanna­eigu. Til að ganga úr skugga um að aðilar njóti jafn­­ræðis þurfa íslensk stjórn­­völd auk þess að hafa skýra aðferða­fræði um hvernig mark­aðs­verð nátt­úru­auð­linda verður ákvarð­að,” sagði Sven Erik Sved­man, for­­seti Eft­ir­lits­­stofn­unar EFTA, í frétta­til­kynn­ingu frá stofn­un­inn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár