Opinberar framkvæmdir fyrir 7,7 milljarða

Fram­kvæmdir upp á 7,7 millj­arða króna verða boðnar út af hinu opin­bera, Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins og Rík­is­eigna, á þessu ári. Að við­bættum fram­kvæmdum sem standa nú þegar yfir mun kostn­aður opin­berra frma­kvæmda verða um 11,8 millj­arðar á árinu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Fjárhæð fram­kvæmda sem kynntar eru til útboðs af rík­inu hefur hækkað jafnt og þétt frá árinu 2014. Árið 2013 var fjár­hæðin tæp­lega 16 millj­arðar, fór í 7 millj­arðar árið 2014 og svo 7,5 í fyrra. „„Árið 2011 voru verk­efni sem voru á áætlun sett í bið og skorið niður í fram­kvæmdum,“ segir Halldóra Víf­ils­dóttir, for­stjóri Fram­kvæmda­sýslu rík­is­ins. Velta vegna fram­kvæmda hafi svo tekið kipp milli 2014 og 2015. Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins í ár hafi veltan verið um tveir millj­arðar.

Hún segir þó að fram­kvæmdir sem kynntar séu til útboðs á árinu end­ur­spegli ekki þann kostnað sem til fellur á þessu ári þar sem greitt sé fyrir verk í hlut­falli við fram­vindu þeirra.

Heild­ar­fjár­hæð verk­samn­inga Fram­kvæmda­sýsl­unnar hefur farið hækk­andi, en árið 2013 var hún um 2,2 millj­arðar króna, 3,5 millj­arðar árið 2014 og um 4 millj­arðar árið 2015. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins er heild­ar­fjár­hæðin tæpir 1,6 millj­arðar. „Þetta er að taka hægt við sér. Við vitum það líka að bygg­ing nýs Land­spít­ala er það verk­efni sem mun verða ráð­andi í fram­kvæmdum hins opin­bera á næstu árum. Það er langstærst,“ segir Halldóra. 

Í burð­ar­liðnum eru einnig stór verk­efni á vegum hins opin­bera, eins og ný skrif­stofu­bygg­ing Alþingis, stækkun gesta­stofu á Þing­völlum og bygg­ing hjúkr­un­ar­heim­ila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár