Enginn ráðherra viðstaddur lokaatkvæðagreiðslu um stjórnarfrumvarp

Ekki einn ein­asti ráð­herra var við­staddur afgreiðslu stjórn­ar­frum­varps um veiru­styrki til veit­inga­manna. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks skýrði frá því að ráð­herrar hefðu verið boð­aðir of seint til atkvæða­greiðsl­unnar.

Ráðherrabekkurinn í þinghúsinu var alveg galtómur í dag, er greidd voru atkvæði um styrki til veitingamanna.
Ráð­herra­bekk­ur­inn í þing­hús­inu var alveg gal­tómur í dag, er greidd voru atkvæði um styrki til veit­inga­manna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþingi sam­þykkti í dag frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um styrki til rekstr­ar­að­ila í veit­inga­geir­anum. Allt tóku 36 þing­menn þátt í atkvæða­greiðslu um þetta frum­varp í dag, 18 stjórn­ar­liðar og 18 stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn. Enginn ráð­herra var við­staddur atkvæða­greiðsl­una.

Þetta vakti athygli og gagn­rýndu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn fjar­veru ráð­herra harð­lega þegar atkvæða­greiðslan var að baki og kvöddu sér hljóð undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.

Til skammar, vandræðalegt og hluti af stærri mynd

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ingar sagði til „hábor­innar skammar“ að engir ráð­herrar hefði við­staddir og Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar sagði að „þessi van­virð­ing, að hér mæti ekki einn ráð­herra við atkvæða­greiðslu,“ væri ekki van­virð­ing við stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn, heldur van­virð­ing við Alþingi.

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata sagði vand­ræða­legt að „horfa á galtóma ráð­herra­bekki“ þegar verið væri að sam­þykkja stjórn­ar­frum­varp. Hann vakti athygli á því að sjö stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hefðu verið fjar­ver­andi við atkvæða­greiðsl­una en alls 21 stjórn­ar­liði. Þetta lýsti lít­ils­virð­ingu gagn­vart almenn­ingi, Alþingi og „öllum verkum rík­is­stjórn­ar­innar líka.“

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar sagði þetta hluta af stærri mynd og sagði að sökum þess að fjár­mála­ráð­herra gat ekki flutt frum­varp sitt um við­spyrnu­styrki í síð­ustu viku væri útlit fyrir að það frum­varp yrði ekki afgreitt úr þing­inu fyrr en eftir kjör­dæma­viku.

[adspot]

„Styrkirnir munu ekki skila sér fyrr en eftir margar margar vikur, ef ekki mán­uði. Það að ráð­herrar geti ekki einu sinni sýnt fólk­inu sem er verið að styðja við þá virð­ingu að vera hérna með okkur inni í salnum og greiða atkvæði um þetta mál, það er hálf ömur­legt fram­hald af þessu sem ég var að nefna,“ sagði Jóhann Páll.

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins sagði þetta sýna „svart á hvítu hvernig rík­is­stjórnin tekur á sínum eigin málum“.

Óli Björn tók á sig sökina

Óli Björn Kárason þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins kvað sér síðan hljóðs og sagði að það væri ekki óeðli­legt að það væru gerðar athuga­semdir við að það hefðu engir ráð­herrar verið við­staddir atkvæða­greiðsl­una, en hann útskýrði síðan að það væri á hans eigin ábyrgð og ann­arra tengiliða þing­flokk­anna við ráð­herra­liðið.

„Ég verð hins­vegar að taka þann kaleik og drekka hann. Ég stóð í þeirri trú að atkvæða­greiðslan yrði kl. 14:30. Ég gaf mínum ráð­herrum og ég veit að félagar mínir í Fram­sókn­ar­flokki og VG gáfu sínum ráð­herrum þessar upp­lýs­ingar einnig. Það er nú ekki meira um það að segja, en svona er þetta og það er alveg ljóst að ráð­herr­arnir þurfa líka að sinna sínum emb­ætt­is­skyldum, eru störfum hlaðnir og ætl­uðu að mæta hérna 14:30, það er segja, þeir sem á annað borð voru ekki ann­ars­staðar,“ sagði Óli Björn.

Logi Ein­ars­son steig að því loknu aftur í ræðu­stól og kall­aði eftir því að ráð­herrar fengju, eins og aðrir þing­menn, SMS með upp­lýs­ingum um tíma­setn­ingar atkvæða­greiðslna, svo þeir þyrftu ekki að treysta á hátt­virtan þing­mann Óla Björn í þessum efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár