Landeigandi vill láta stjórnina borga fyrir bjórinn

Land­eig­andi á Vestur- Jótlandi segir dönsku rík­is­stjórn­ina ábyrga fyrir skemmdum sem bjór hefur valdið á eigum hans. Bjórinn, sem hvorki heitir Carlsberg né Tuborg, kærir sig koll­óttan og heldur iðju sinni áfram.

18. des­em­ber sl. hófust í Lands­rétt­inum í Viborg á Jótlandi rétt­ar­höld. Stefn­and­inn er Finn Andersen-Fruedahl land­eig­andi, búsettur í Møborg á Vestur-Jótlandi en þar eð sá stefndi, bjór­inn, kann hvorki að lesa né skrifa, hvað þá að hlýða, er danska Umhverf­is­stofn­unin full­trúi hans við rétt­ar­höldin.

Land­eig­and­inn tap­aði mál­inu fyrir bæj­ar­rétti en ætlar ekki að gef­ast upp fyrir bjórnum. Eða betur sagt bjór­unum, því kæran bein­ist gegn fleirum en einum.

Kom fyrst til Danmerkur fyrir 10 – 12 þúsund árum

Talið er að bjór­inn (Castor fiber á lat­ínu, evr­ópski bjór­inn) hafi komið frá Þýska­landi til Dan­merkur um það leyti sem síð­ustu ísöld lauk eða fyrir 10 til 12 þús­und árum. Hann var ekki eini land­nem­inn því ásamt honum komu birnir, elgir og lík­lega fleiri dýr. Sér­fræð­ingar telja öruggt að bjór­inn hafi verið víðs­vegar um Danmörku, þar á meðal á Borg­und­ar­hólmi. Ekki er vitað um stærð stofns­ins, en talið að hann hafi verið mjög stór.

[adspot]Bjórinn er nag­dýr, sem lifir í vötnum og ám og er græn­metisæta. Heldur sig yfir­leitt nálægt landi og er iðinn við stíflu­gerð. Hrúgar þá saman trjá­greinum, stórum og smáum, er mjög iðinn og vinnu­samur. Þegar bjór hefur fundið sér maka heldur parið saman meðan bæði lifa. Parið eign­ast yfir­leitt afkvæmi, oft­ast tvö til þrjú, einu sinni á ári og með­göngu­tím­inn er rúmir hund­rað dagar. Líftími hvers dýrs er að jafn­aði um það bil átta ár.

Bjórinn er græn­metis- og trj­á­æta nær­ist einkum á berki og lauf­blöðum, hrifn­astur af birki. Hann fellir tré til að ná sér í fæðu, og stíflu­gerð­ar­efni, velur gjarna lítil og grann­vaxin tré en vílar ekki fyrir sér að fella tré allt að sex­tíu senti­metrum í þver­mál. Þegar hann ræðst til atlögu við stærri tré nagar hann oft­ast mjög nákvæm­lega út frá „byrj­un­ar­reitnum“ í hring bæði ofan og neðan þannig að nag­svæðið lík­ist helst stunda­glasi. Sér­fræð­ingar róma snilli hans við þessa iðju og segja nákvæmni hans við nagið aðdá­un­ar­verða.

Bjórinn vill helst halda sig á sama svæði en flytur sig til ef nauð­syn krefur, til dæmis vegna fæðu­öfl­unar. Bjórinn gætir þess ætíð að inn­gang­ur­inn að „heim­il­inu“ sé undir vatns­borði, þannig koma engir óboðnir og óæski­legir gestir í heim­sókn.

Var næstum útrýmt fyrir þúsund árum

Fyrir um það bil þús­und árum var bjórnum útrýmt í Danmörku eins og reyndar mörgum öðrum löndum. Dýrin voru eft­ir­sótt vegna kjöts­ins og ekki síður felds­ins (bjórs­ins) sem er bæði þykkur og hlýr.

Snemma á síð­ustu öld var bjór­inn alfrið­aður í Evrópu, þá var ein­ungis vitað um til­vist hans í Noregi, Rúss­landi, Þýska­landi og Frakk­landi, lít­ill stofn í hverju landi. Eftir frið­un­ina náði stofn­inn sér smám saman á strik og telur nú í heild um það bil 350 þús­und dýr.

18 dýr til Danmerkur árið 1999

Dönsk stjórn­völd fengu, árið 1999, leyfi hjá þýskum stjórn­völdum til að flytja níu bjórpör, sem haldið höfðu til við Saxelfi, til Vestur-Jótlands, á svæði við Kloster­hede. Rök­semdin fyrir því að fá þessi dýr til Dan­merkur var fyrst og fremst sú að auka fjöl­breytni dýra­lífs­ins. Nokkrum árum síðar voru nokkur dýr, einnig frá Þýska­landi, flutt til Norður-Sjálands.

[adspot]Talið er að danski bjór­stofn­inn telji nú rúm­lega 200 dýr, á Vestur-Jótlandi heldur hann sig að mestu á þeim svæðum þar sem honum var komið fyrir árið 1999 en eftir því sem dýr­unum fjölgar stækkar útbreiðslu­svæðið.

Landeigandi fer í mál

Þegar bjór­arnir átján voru fluttir til Vestur-Jótlands var þeim komi fyrir á stóru nátt­úru­vernd­ar­svæði í eigu rík­is­ins við Kloster­hede. Hafi það verið ætlun stjórn­valda að bjór­arnir héldu sig ein­ungis á þess­ari rík­is­jörð og ætu og nög­uðu ein­ungis tré í eigu danska rík­is­ins varð fljót­lega ljóst að bjór­arnir virtu slíkar hug­myndir að vettugi.

Fjórum árum eftir kom­una til Kloster­hede voru þeir farnir að sækja í tré og runna á landi Finn Andersen- Fruedahl, þrettán hekt­ara trjá­rækt­ar­svæði, skammt frá Kloster­hede. Hann kvart­aði til dönsku Umhverf­is­stofn­un­ar­innar, starfs­maður þaðan kom og stað­festi að kvörtunin væri á rökum reist, bjór­arnir létu sér ekki nægja rík­is­gróð­ur­inn heldur sæktu í tré á land­ar­eign Finn Andersen- Fruedahl.

Þegar land­eig­and­inn spurði hvað væri til ráða var fátt um svör, annað en að bjór­inn væri friðuð skepna. Ítrek­aðar kvart­anir Finn Andersen- Fruedahl báru engan árangur, bjór­arnir kunnu ber­sýni­lega vel við trjá­gróður hans og föllnu og nög­uðu trjánum fjölg­aði sífellt. Að lokum fór svo að Finn Andersen-Fruedahl var nóg boðið og ákvað að stefna bjór­unum, eða rétt­ara sagt full­trúa þeirra, danska rík­inu, og fara fram á bætur.

Tapaði í bæjarréttinum

Stefna Finn Anderen- Fruedahl gegn dönsku Umhverf­is­stofn­un­inni (fyrir hönd rík­is­ins og bjór­anna) kom fyrir Bæj­ar­rétt í Hol­stebro fyrir rúmu ári. Þar tap­aði Finn Andersen- Fruedahl mál­inu og í nið­ur­stöðu dóm­ara sagði að þar sem bjór­inn væri friðuð skepna bæri rík­inu ekki að greiða bætur vegna skemmda og tjóns sem hann kynni að valda. Við rétt­ar­höldin kom fram að ef Finn Andersen- Fruedahl hefði sett girð­ingar á til­tekna staði á land­ar­eign­inni, væri ólík­legt að bjór­arnir hefðu valdið tjóni á trjá­gróðri.

Land­eig­and­inn gaf lítið fyrir þessa rök­semda­færslu, sagði engar sann­anir fyrir því að bjór­arnir létu af hátt­semi sinni þótt ein­hverjar girð­ingar væru til staðar. Auk þess hefði aldrei verið á það minnst að hann þyrfti að girða til­tekin svæði á land­ar­eign­inni. Hann myndi áfrýja nið­ur­stöðu Bæj­ar­rétt­ar­ins.

Ætlar ekki að gefast upp

Eins og áður var getið hófust mála­ferlin fyrir Lands­rétti í Viborg 18. des­em­ber. Finn Andersen- Fruedahl sagð­ist í við­tali við Lemvig Fol­kebla­det vera mjög bjart­sýnn á að Lands­rétt­ur­inn myndi snúa nið­ur­stöðu Bæj­ar­rétt­ar­ins við.

Dómurinn í Lands­rétti verður kveð­inn upp 15. jan­úar 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár