Fyrsti upplýsingafundurinn í 48 daga

Almanna­varnir og land­læknir hafa boðað til upp­lýs­inga­fundar vegna „var­huga­verðrar“ stöðu sem upp er komin í far­aldr­inum.

Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason munu fara yfir stöðu faraldursins á upplýsingafundi á morgun.
Víðir Reyn­is­son og Þórólfur Guðnason munu fara yfir stöðu far­ald­urs­ins á upp­lýs­inga­fundi á morgun. Mynd: Lögreglan

Boðað hefur verið til upp­lýs­inga­fundar almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og emb­ættis land­læknis á morgun, fimmtu­dag, þess fyrsta síðan 27. maí eða í 48 daga. Í ljósi smita sem greinst hafa inn­an­lands á síð­ustu tveimur sól­ar­hringum „má segja að staðan hér á landi sé var­huga­verð,“ segir í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum. Í því ljósi er boðað til fund­ar­ins. Þar munu þeir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn fara yfir stöðu mála varð­andi fram­gang kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins að und­an­förnu.

Í gær greindust fimm inn­an­lands­smit. Allt var fólkið utan sótt­kvíar. Þrennt var bólu­sett en tveir hinna smit­uðu voru hálf­bólu­settir.

Í fyrra­dag greindust tvö smit. Hinir smit­uðu voru báðir bólu­settir og greindust utan sótt­kvíar.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir í við­tali við RÚV að stökk­breytt Delta-afbrigði veirunnar hafi greinst hér þann dag. Enn á eftir að rað­greina smitin sem greindust í gær. Delta-afbrigðið er talið um 60 pró­sent meira smit­andi en önnur afbrigði kór­ónu­veirunnar. Það hefur breiðst út í Evrópu á síð­ustu vikum, m.a. á Spáni og í Portúgal.

Þórólfur sagði í sam­tali við mbl.is í dag að gera mætti ráð fyrir því að 3-5 bólu­settir ferða­menn kæmu smit­aðir til Íslands á degi hverjum. Bólu­settir eru ekki lengur skimaðir við kom­una til lands­ins. „Þá er það bara spurn­ingin hvort þessi útbreidda bólu­setn­ing hér haldi almenni­lega,“ sagði Þórólfur við mbl.is. „Við vitum líka að þeir sem eru bólu­settir geta tekið smit, þannig að þetta er ekki óvænt. Það sem við bindum vonir við er að þeir sem eru bólu­settir og taka smit veik­ist ekki eins alvar­lega og ef þeir væru óbólu­settir. Erlendar rann­sóknir sýna það í raun og veru. Við þurfum að skoða þetta aðeins í því ljósi og ég held að við eigum eftir að sjá aðeins fleiri svona smit á næst­unni.“

Í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum í morgun var brýnt fyrir fólki að fara var­lega „á næstu dögum“. Fram kom einnig að „sér­stak­lega mik­il­vægt“ væri að fara var­lega í umgengni við við­kvæma ein­stak­linga sem gætu veikst alvar­lega af COVID-19, jafn­vel þótt að þeir séu bólu­settir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár