Sífellt fleiri styðja Vinstri græn

Vinstri græn eru nú með 26,1 pró­sent fylgi miðað við kosn­inga­spána og eru að ná for­skoti á Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Sam­starfs­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru með minnstan stuðn­ing allra fram­boða sem mæl­ast í könn­unum.

Vinstri hreyf­ingin – grænt fram­boð nýtur sífellt meiri stuðn­ings meðal almenn­ings, ef marka má kosn­inga­spá Baldurs Héð­ins­sonar og Kjarnans sem unnin var um helg­ina. Flokk­ur­inn, með Katrínu Jak­obs­dóttur í far­ar­broddi, nýtur nú stuðn­ings 26,1 pró­sent kjós­enda í kosn­inga­spánni.

Eins og í síð­ustu Kosn­inga­spám mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn næst stærsta stjórn­mála­aflið á Íslandi með 23,6 pró­sent stuðn­ing. Það er litlu meira en flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar mæld­ist með fyrir helgi. Sam­an­lagt styðja um það bil 49 pró­sent kjós­enda annan þess­ara flokka.

Á miðj­unni – ef svo má að orði kom­ast – hafa einnig orðið nokkrar vend­ingar síðan kosn­inga­spáin var gerð síð­ast. Sam­fylk­ingin er nú að öllum lík­indum með 9,1 pró­sent fylgi, meira en Flokkur fólks­ins sem nýtur stuðn­ings 8,6 pró­sent kjós­enda.

Stuðn­ingur við Pírata minnkar einnig, og er 10,5 pró­sent. Sífellt færri styðja Pírata miðað við kosn­inga­spána, en síðan rík­is­stjórnin féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hefur stuðn­ingur við Pírata minnkað í hvert sinn sem kosn­inga­spáin hefur verið gerð.

Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar var mældur í fyrsta sinn í kosn­inga­spánni 28. sept­em­ber og var stuðn­ingur við fram­boð hans þá 7,1 pró­sent. Eins og útskýrt var á þessum vett­vangi á laug­ar­dag­inn þá var mæl­ingin á fram­boði hans sú óáreið­an­leg­asta vegna þess að aðeins ein könnun hafði mælt stuðn­ing við fram­boð hans.

Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mældu allar þrjár kann­an­irnar sem spáin byggir á Mið­flokk­inn og því er útreikn­ingur á stuðn­ingi við fram­boð hans jafn áreið­an­legt og allra hinna fram­boð­anna í kosn­inga­spánni. Mið­flokk­ur­inn mælist með 6,1 pró­sent stuðn­ing.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist enn líða fyrir klofn­ing­inn og fylgi við flokk­inn minnkar enn og mælist nú 7,8 pró­sent. Það er minna en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur mælst með nokkru sinni í kosn­inga­spánni. Fyrsta kosn­inga­spáin fyrir Alþing­is­kosn­ingar var unnin 20. jan­úar 2016.

Sam­an­lagt er stuðn­ingur við Fram­sókn­ar­flokk­inn og Mið­flokk­inn 13,9 pró­sent. Það er hins vegar mun meira en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur mælst með síðan kosn­inga­spáin var fyrst unnin fyrir Alþing­is­kosn­ingar. Stuðn­ing­ur­inn var mestur 1. apríl 2016, áður en Panama­skjölin skóku íslensk stjórn­mál, þegar Fram­sókn­ar­flokkur Sig­mundar Davíðs mælist með 12,3 pró­sent.

Afhroð stjórnarflokka

Stjórn­mála­flokkar hafa fæstir riðið feitum hesti frá kosn­ingum eftir að hafa starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn. Sagan virð­ist ætla að end­ur­taka sig í ár því Viðreisn og Björt fram­tíð mæl­ast enn með mjög lítið fylgi.

Viðreisn mælist með 4,4 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni, minna en flokk­ur­inn hefur haft síðan 2. júní 2016. Björt fram­tíð rekur lest­ina í kosn­inga­spánni með 3,8 pró­sent.

Það er ágæt þum­al­putta­regla að miða við að flokkur þurfi að fá fimm pró­sent atkvæða í kosn­ingum á lands­vísu til þess að ná kjöri. Það gæti hins vegar verið svo að flokkur fái mun meira fylgi í einu kjör­dæmi umfram önnur og náð kjöri þannig, þrátt fyrir lítið fylgi á lands­vísu.

Kannanir til grundvallar kosningaspá

Nýjasta kosn­inga­spáin byggir á nið­ur­stöðum þriggja skoð­ana­kann­ana. Þær eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 35,1%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 15. – 28. sept­em­ber (vægi 35,0%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 25. – 28. sept­em­ber (vægi 29,9%)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Til útskýr­ingar má segja að vægi kann­ana er gefið eftir því hversu næmur könn­un­ar­að­il­inn og aðferðir hans eru á raun­veru­legar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu. Kosn­ingar eru auð­vitað eini mæli­kvarð­inn á það hversu vel könn­un­ar­að­ilum tekst upp svo miðað er við sögu­leg gögn og þau borin saman við kosn­inga­úr­slit til að ákvarða áreið­an­leika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könn­unin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.

Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrst í aðdrag­anda sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­a 2014 og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er nú keyrð í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 28. októ­ber í annað sinn. Kosn­inga­spáin fékk mikla athygli fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2016, ekki síst fyrir þing­sæta­spána þar sem spáð var um hvaða fram­bjóð­endur myndu ná kjöri. Nánar um það hér að neðan.

Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni hverju sinni eru nýj­ustu kann­anir könn­un­ar­að­ila vegnar eftir áreið­an­leika. Fylgi ein­stakra fram­boða er svo fundið með vegnu með­al­tali úr þeim könn­unum sem liggja til grund­vallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér. Vægi hverrar könn­unar fyrir sig er metið út frá fyr­ir­fram gefnum for­sendum, eins og stærð úrtaks, fjölda svar­enda, lengd könn­un­ar­tíma­bils og áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila. Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila byggir á því hversu nærri kann­an­irnar hafa kom­ist nið­ur­stöðum kosn­inga á und­an­förnum árum.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár