Ögmundur og Sigmundur báðir undirritað samkomulag um flugvöllinn

Tveir flutn­ings­menn til­lögu þar sem opnað er á að taka skipu­lags­vald af Reykja­vík­ur­borg hafa und­ir­ritað sam­komu­lög um flug­völl­inn í Vatns­mýri og lokun brauta. Ögmundur Jónasson und­ir­rit­aði sam­komu­lag þar sem áréttað er að skipu­lags­vald sé hjá borg­inni.

Ögmundur Jónasson og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem eru flutn­ings­menn til­lögu um að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri, hafa báðir komið að stórum ákvörð­unum um flug­völl­inn sem ráð­herrar og und­ir­ritað sam­komu­lög við Reykja­vík­ur­borg um flug­völl­inn og lok­anir flug­brauta.

Flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri verður að öllum lík­indum kosn­inga­mál, enda ekki hægt að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið sam­hliða kosn­ing­unum í haust. 25 þing­menn úr fjórum flokkum lögðu þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fram, þar með tal­inn allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir utan Frosta Sig­ur­jóns­son og ráð­herra flokks­ins.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er ályktað að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um það hvort flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs skuli áfram vera í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík. Þing­menn­irnir sem bera til­lög­una fram segja að „öll skyn­sam­leg rök“ hnígi að því að halda flug­vell­inum og mið­stöð inn­an­lands­flugs í Vatns­mýr­inni. Þeir opna líka á það í grein­ar­gerð með til­lög­unni að ríkið taki burt skipu­lags­vald borg­ar­innar á svæð­inu þar sem flug­völl­ur­inn er.

Þegar Ögmundur Jónasson var inn­an­rík­is­ráð­herra, í apríl 2013, skrif­aði hann undir sam­komu­lag um end­ur­bætur á aðstöðu fyrir far­þega og þjón­ustu­að­ila á Reykja­vík­ur­flug­velli, ásamt Jóni Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóra. Í því sam­komu­lagi fólst að norð-austur/suð-vestur flug­brautin yrði lögð af og það land sem við það losn­aði yrði skipu­lagt undir bland­aða byggð.

Þar er einnig áréttað að Reykja­vík­ur­borg fari með skipu­lags­vald á flug­vall­ar­svæð­inu sam­kvæmt skipu­lags­lögum. Þá vinni inn­an­rík­is­ráð­herra í sam­ræmi við vilja Alþingis hvað varðar flug­völl­inn eins og hann birt­ist í sam­göngu­á­ætlun. Þegar Ögmundur var ráð­herra tal­aði hann iðu­lega um að hann vildi halda flug­vell­inum í Vatns­mýri, en eins og hann sagði í ræðu á Alþingi í sept­em­ber 2012 að „allir lands­menn eiga að hafa aðkomu að ákvörðun í þessum efnum þótt því sé að sjálf­sögðu haldið til haga að skipu­lags­valdið er síðan hjá borg­inni.“

Stjórn­ar­skipti urðu skömmu síðar, og í októ­ber sama ár skrif­uðu ríkið, Reykja­vík­ur­borg og Icelandair undir sam­komu­lag um inn­an­lands­flug. Þá var Sig­mundur Davíð orð­inn for­sæt­is­ráð­herra og und­ir­rit­aði sam­komu­lagið fyrir hönd rík­is­ins. Í því sam­komu­lagi var meðal ann­ars kveðið á um að Reykja­vík­ur­borg sam­þykkti að fresta lokun norður-suður flug­braut­ar­innar frá árinu í ár til árs­ins 2022. Þá var sam­komu­lag gert um skipan Rögnu­nefnd­ar­innar svoköll­uðu, um að full­kanna aðra kosti en fram­tíð­ar­flug­völl í Vatns­mýri.

Samhliða því var skrifað undir sam­komu­lag milli ríkis og borgar, sem Jón Gnarr og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir und­ir­rit­uðu sem borg­ar­stjóri og inn­an­rík­is­ráð­herra, þar sem kveðið var á um að til­kynnt yrði um lokun norð­austur/suð­vestur braut­ar­innar.

Í grein í Morg­un­blað­inu í dag segir Sig­mundur Davíð hins vegar að hann hafi gert það að skil­yrði fyrir sam­komu­lag­inu að norð­austur/suð­vestur braut­inni yrði ekki lokað.

„Í októ­ber 2013 var þess farið á leit við mig sem for­sæt­is­ráð­herra að ég und­ir­rit­aði sam­komu­lag rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar og Flug­fé­lags Íslands (eða Icelandair Group) um að gerð yrði enn ein úttekt á því hvar best væri að hafa Reykja­vík­ur­flug­völl. Fyrir vikið sögð­ust full­trúar borg­ar­innar til í að eyða óvissu um flug­völl­inn af sinni hálfu a.m.k. til árs­ins 2022. [...]Í drögum að sam­komu­lag­inu var tekið fram að aðilar féllust á að NA/SV-braut­inni yrði lok­að. Þetta sagði ég vera frá­leitt skil­yrði sem ekki kæmi til greina að sam­þykkja. Auk þess sem ég gerði athuga­semdir við fleiri atriði í drög­un­um. Ég kvaðst svo reiðu­bú­inn að und­ir­rita sam­komu­lagið gegn því skil­yrði að umrædd atriði yrðu tekin út og það væri á hreinu að ekki væri verið að sam­þykkja lokun NA/SV-braut­ar­inn­ar. Þvert á móti væri ég að fall­ast á þátt­töku í und­ir­rit­un­inni til að tryggja að ekki yrði samið um lokun braut­ar­inn­ar.“

Sig­mundur Davíð segir að fall­ist hafi verið á þetta og sam­komu­lagið svo und­ir­ritað í við­ur­vist ljós­mynd­ara og blaða­manna. “Það kom mér því mjög á óvart að dóm­stólar skyldu telja ríkið skuld­bundið til að loka neyð­ar­braut flug­vall­ar­ins þegar ég sem for­sæt­is­ráð­herra hafði bein­línis gert það að skil­yrði fyrir und­ir­ritun sam­komu­lags við borg­ina að horfið yrði frá því að semja um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár