Losun á beinni ábyrgð Íslands ekki það sama og heildarlosun

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands mun drag­ast saman um 35 pró­sent milli áranna 2005 og 2030 sam­kvæmt aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum. Inni í þeim tölum er hvorki losun sem fellur innan ETS kerf­is­ins né losun vegna land­notk­unar.

Fram kemur í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum að losun frá iðnaðarferlum í stóriðju var 39 prósent af heildarlosun án landnotkunar árið 2018.
Fram kemur í aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum að losun frá iðn­að­ar­ferlum í stór­iðju var 39 pró­sent af heild­ar­losun án land­notk­unar árið 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi mun drag­ast saman um 9 pró­sent á milli áranna 2005 og 2030 miðað við aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum sem kynnt var í síð­ustu viku. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Lofts Thorlacius, umhvef­is­verk­fræð­ings, á hádeg­is­fundi um aðgerða­á­ætl­un­ina sem hald­inn var á Kjar­vals­stöðum undir yfir­skrift­inni „Eru stjórn­völd að gera nóg?“

Að mati Sigurðar er margt gott að finna í áætl­un­inni. Hann segir það vera frá­bært að með aðgerða­á­ætl­un­inni ætli íslensk stjórn­völd sér að standa við skuld­bind­ingar Íslands í aðgerðum í lofts­lags­málum. Stefnt er að því að losun sem er á beinni ábyrgð Íslands drag­ist saman um 35 pró­sent. Þá fagnar hann því að í aðgerða­á­ætl­un­inni séu settar fram magn­settar aðgerðir, það er að í áætl­un­inni komi fram hversu miklum árangri hver aðgerð skili þar sem við á.

Hann gerir einnig nokkrar athuga­semdir við áætl­un­ina í erindi sínu en í henni er að finna grunn­s­viðs­mynd sem á að sýna hver þróun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda væri án aðgerða. Þessa grunn­s­viðs­mynd telur Sigurður vera heldur bjart­sýna. Helm­ingur þess sam­dráttar í losun sem gert er ráð fyrir í áætl­un­inni rúmist innan grunn­s­viðs­mynd­ar­innar.

Þá gerir Sigurður athuga­semdir við það hvernig losun frá land­notkun er sett fram í áætl­un­inni. Þar sé ein­ungis tekið fram hvaða áhrif aukin bind­ing kolefnis muni skila sem og hver sam­dráttur í losun verður en ekki hversu mikil los­unin sé. „Maður skilur samt að svona er þetta gagn­vart okkar skuld­bind­ingum. Þannig að það er alveg eðli­legt að birta þetta svona,“ segir Sigurður og bendir á að þessi losun sé ekki innan okkar skuld­bind­inga. Land hafi mikið til verið fram­ræst fyrir við­mið­un­ar­árið 2005.

[links]

Sigurður leggur sér­staka áherslu á heild­ar­losun í erindi sínu. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er skipt í þrjá flokka: Losun sem er á beina ábyrgð Íslands, losun sem er innan ETS kerf­is­ins (stór­iðja og flug­sam­göngur) og loks losun vegna land­notk­unar.

Sigurður bendir á að á milli áranna 2005 og 2030 minnki losun sem er á beinni ábyrgð Íslands um 1.100 kílótonn. Á sama tíma auk­ist losun frá Íslandi sem fellur undir ETS kerfið um um það bil 1.000 kílótonn. Losun vegna land­notk­unar drag­ist svo saman um 1.050 kílótonn. Samtals minnki los­unin því um 1.150 kílótonn á milli áranna 2005 og 2030 eða alls um 9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár