Formlegar stjórnarmyndunarviðræður hafnar

Þess er vænst að staðan verði skýr­ari í lok vik­unnar.

Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður milli Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins eru hafnar, og er búist við því að staðan verði orðin skýr­ari í lok vik­unnar varð­andi það hvort flokk­arnir ná saman í sam­starfi. Það er sá tímara­mmi sem Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, reiknar með að þurfi í við­ræð­urnar.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði í Kast­ljósi í gær­kvöldi að vissu­lega væri það þannig, að stefnur þess­ara flokka væru ólíkar, en það væru þó mál­efni sem hægt væri að ná saman um, eins og auknar áherslur í mennta- og heil­brigð­is­málum, og öðrum þáttum sem tengj­ast inn­viða­fjár­fest­ingum.

Sagði hún að við­ræður flokk­anna væru lík­legar til að snú­ast um þessi atriði, en vissu­lega væru mörg stefnu­mál sem flokk­arnir þyrftu að semja um og kom­ast að nið­ur­stöðu, þar sem langt væri á milli flokk­anna.

Mikil and­staða er innan Vinstri grænna við stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar en tveir af ell­efu þing­mönnum, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, voru á móti því að fara í form­legar við­ræður við flokk­anna. Lét Rósa Björk meðal ann­ars hafa eftir sér að Sjálf­stæð­is­flokknum væri ein­fald­lega ekki treystandi.

Þá sendi ung­liða­hreyf­ing Vinstri grænna frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem flokk­ur­inn var hvattur til að sýna ábyrgð í verki, og halda Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum utan rík­is­stjórnar. Ekki væri hægt að mynda rík­is­stjórn með spilltum flokkum sem hefðu sýnt að ekki gætu verið við völd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár