Ásgeir H. Ingólfsson

Ásgeir H. Ingólfsson er blaðamaður, skáld, bókmenntafræðingur, bíónörd, Akureyringur og örverpi. Hann hefur efasemdir um fasta búsetu og býr ýmist í Tékklandi, á Íslandi eða í Bretlandi og gæti verið á leiðinni eitthvað annað fljótlega.
Aftökusundlaugin í Kabúl
GagnrýniVegabréf: íslenskt

Aftöku­sund­laugin í Kabúl

Sögur Sigríðar Víðis Jóns­dóttur eru listi­legur vefn­aður per­són­u­sögu, hvers­dags­legra við­burða, blaða­mennsku, sagn­fræði og sagna af fólk­inu sem hún hittir. Bjarma­lönd Vals Gunn­ars­sonar og mynda­sögur Joe Sacco koma upp í hug­ann, en Sigríður fer þó alltaf eigin leiðir í frá­sögn­inni og úr verður leiftr­andi fróð­leg, skemmti­leg og hug­vekj­andi bók sem á alltaf brýnt erindi – en kannski aldrei sem nú
Glæpaöldin og draugagangur öreiganna
GagnrýniSkáldleg afbrotafræði

Glæpa­öldin og drauga­gangur öreig­anna

Við erum stödd í Árnes­sýslu, nánar til­tekið í Tangavík. Smábæ sem ein­ungis er til í skáld­heimi Einars Más Guð­munds­sonar og hefur einnig birst okkur í Íslenskum kóngum og Hunda­dögum. Það voru þó allt aðrar útgáfur bæj­ar­ins en birt­ist okkur í Skáld­legri afbrota­fræði – en í lok bókar er fram­hald boðað, þannig að lík­leg­ast munum við bráðum fá að lesa meira um þessa útgáfu Tanga­víkur. Og mögu­lega kom­ast að því hver er að segja okkur þessa sögu.
Bara brotnar manneskjur segja satt
GagnrýniKolbeinsey

Bara brotnar mann­eskjur segja satt

Kol­beinsey er nyrsti oddi Íslands og sam­nefnd bók fjallar um fólk sem er á nyrsta odda til­ver­unnar, við það að detta út af landa­kort­inu. Við vitum ekki hvað þetta fólk heitir, það er búið að glata nöfnum sínum, sögu­maður segir aldrei til nafns og veitir öðrum per­sónum líka nafn­leynd, kallar þær ein­göngu lýsandi nöfnum eins og „þung­lyndi vinur minn“, „kærastan“, „mín fyrr­ver­andi“, „sonur minn“, „trú­bador­inn“ og „hjúkr­un­ar­konan“.
Fjölmenning á skólalóðinni
GagnrýniAkam, ég og Annika

Fjöl­menn­ing á skóla­lóð­inni

Sögu­maður er ekki mikið að flýta sér í Akam, ég og Annika. Þetta er rúm­lega 350 síðna bók og tit­il­per­són­urnar tvær birt­ast okkur ekki fyrr en rúm­lega hund­rað síður eru liðnar. Það er að segja þessar tvær nafn­greindu per­sónur tit­ils­ins, þau Akam og Annika. Ég-ið birt­ist okkur hins vegar strax á fyrstu síðu. Það er hún Hrafn­hildur, sögu­maður og aðal­per­sóna bók­ar­innar, sem er fjórtán ára reyk­vískt skiln­að­ar­barn sem er rifin upp með rótum þegar nýr maður mömm­unnar fær gott starf í Þýska­landi.
Öndinni sem var slaufað
GagnrýniEinlægur Önd

Öndinni sem var slaufað

Hér er bók­ar­kápa. Baðönd með mynd­ar­legan hatt syndir um í Reykja­vík­ur­tjörn, trega­full og glett­inn í senn. Fyrir ofan stendur Einlægur Önd og enn ofar stendur Eiríkur Örn Norðdahl, með mun stærri stöfum. Enda menn tölu­vert stærri en bað­endur, 198 senti­metrar í til­felli Eiríks, eins og kemur fram í bók­inni. En það má alveg spyrja sig hver tit­ill­inn sé, er þetta Einlægur Önd eftir Eirík Örn eða Eiríkur Örn eftir Einlægan Önd?

Mest lesið undanfarið ár