Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað síðastliðið ár en hækkað utan þess

Þrátt fyrir hækkun á vísi­tölu leigu­verðs milli mán­aða hefur leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkað síð­asta árið. Annars staðar er þró­unin gagn­stæð. Leigu­fé­lagið Bjarg hyggst lækka leigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en leiga félags­manna á lands­byggð stendur í stað.

Frá upphafi árs 2014 hefur leiguverð hækkað álíka mikið á höfuðborgarsvæðinu og utan þess eða um 51,5 prósent á móti 50,3 prósentum.
Frá upp­hafi árs 2014 hefur leigu­verð hækkað álíka mikið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og utan þess eða um 51,5 pró­sent á móti 50,3 pró­sentum. Mynd: Bára Huld Beck

Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,3 pró­sent á á milli febr­úar á mars. Þrátt fyrir þessa hækkun hefur vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkað um 3,3 pró­sent á milli ára. Vísi­talan er nú svipuð og hún mæld­ist vorið 2019. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn.

Þróunin er öfug í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þar lækkar vísi­talan um 0,5 pró­sent á milli febr­úar og mars en á milli ára hefur vísi­talan hækkað um 1,1 pró­sent. Á lands­byggð­inni hækk­aði vísi­tala leigu­verðs um 2,5 pró­sent milli mán­aða og hefur hún hækkað um 2,4 pró­sent frá því í fyrra. Skýrslu­höf­undar taka þó sér­stak­lega fram að vísi­talan fyrir lands­byggð­ina hafi sveifl­ast mikið á síð­ustu miss­erum, enda sé svæðið í heild víð­feðmt og sund­ur­leitt auk þess sem fáir samn­ingar liggi að baki útreikn­ingum hvers mán­aðar.

Í skýrsl­unni kemur fram að hækkun leigu­verðs frá byrjun árs 2014 hafi hlut­falls­lega hækkað nán­ast jafn mikið á lands­byggð­inni líkt og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hækkunin nemi 50,3 pró­sentum á lands­byggð­inni á tíma­bil­inu sam­an­borið við 51,5 pró­senta hækkun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Leigufélag lækkar leigu í kjölfar endurfjármögnunar

Í dag til­kynnti Bjarg leigu­fé­lag að það hygð­ist lækka leigu hjá um 190 leigu­tökum félags­ins. Munu með­alleigu­greiðslur leigu­taka lækka um 14 pró­sent, úr um 180 þús­und krónum í 155 þús­und. Þetta er gert í kjöl­far nýlegrar end­ur­fjár­mögn­unar og end­ur­skoð­unar rekstrar fjöl­býl­is­húsa Bjargs við Móaveg og Urð­ar­brunn í Reykja­vík, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá félag­inu.

Þrátt fyrir að fast­eignir félags­ins á Akranesi og í Þor­láks­höfn hafi einnig farið í gegnum end­ur­fjár­mögnun hefur leigu­verð þar ekki breyst vegna breyt­inga á öðrum rekstr­ar­liðum. Félagið segir leigu­verð þar engu að síður vera hóf­stillt og lægra en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, rúm­lega 120 þús­und krónur á mán­uði. [adspot]

Þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi hækkað meg­in­vexti sína í vik­unni eru vextir enn lágir í sögu­legu sam­hengi. Fyrir stýri­vaxta­hækk­un­ina á mið­viku­dag stóðu meg­in­vextir bank­ans í 0,75 pró­sentum og höfðu verið það síðan í nóv­em­ber síð­ast­liðnum en þá höfðu þeir aldrei áður verið eins lágir. Stýri­vextir standa nú í sléttu einu pró­senti. Fyrir rétt um tveimur árum hófst lækk­un­ar­hrina stýri­vaxta en í síð­ari hluta maí 2019 lækk­uðu vextir úr 4,5 pró­sentum niður í fjögur pró­sent.

Í áður­nefndri til­kynn­ingu Bjargs segir að félagið leiti allra leiða til að halda áfram end­ur­fjár­mögnun eigna félags­ins til að tryggja að leigu­takar félags­ins njóti þeirra vaxta­lækk­ana sem hafa átt sér stað síð­ast­liðin miss­eri.

Þinglýstum leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgar ört

Í mars síð­ast­liðnum var 629 leigu­samn­ingum þing­lýst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt áður­nefndri skýrslu HMS, og hefur þeim fjölgað veru­lega. Í skýrsl­unni segir að samn­ing­arnir hafi verið mun fleiri en í sama mán­uði und­an­farin ár. Til sam­an­burðar var fjöldi þing­lýstra leigu­samn­inga í mars í fyrra 482 sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár. Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur fjöld­inn hæst farið í 770, í sept­em­ber á síð­asta ári.

Sömu sögu er ekki að segja á öðrum svæðum á land­inu en þar var fjöldi þing­lýstra leigu­samn­inga nær því sem tíðkast hefur. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var 127 leigu­samn­ingum þing­lýst og á lands­byggð­inni var 100 leigu­samn­ingum þing­lýst. Leigu­mark­að­ur­inn er því mun líf­legri um þess­ari mundir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en utan þess að mati skýrslu­höf­unda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár