Benedikt biðst afsökunar á ummælum sínum um tilefni stjórnarslita

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar segir að hann hafi ekki ætlað að gera lítið úr sárs­auka sem þolendur kyn­ferð­is­brota og aðstand­enda verða fyrir með ummælum sínum í við­tals­þætti á RÚV í gær. Hann biður alla aðila máls afsök­unar.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, seg­ist ekki hafa ætlað að gera lítið úr þeim sárs­auka sem þolendur kyn­ferð­is­brota og aðstand­enda verða fyrir með ummælum sínum í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV í gær­kvöldi. Hann biður alla aðila máls­ins inni­lega afsök­unar. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Benedikt hefur birt á Facebook.

Í þætt­inumlét hann þau ummæli falla um upp­reist æru-málið sem sprengdi rík­is­stjórn­ar­sam­starfið að málið „sem þótti svo stórt að það var ástæða til stjórn­ar­slita, það man varla nokkur hvað þetta er.“ Hann sagð­ist enn fremur ekki telja að málið hafi verið þannig vaxið að það hefði verið til­efni til stjórn­ar­slita og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri búin að gefa nauð­syn­leg svör um upp­reist æru dæmdra kyn­ferð­is­brota­manna.

Í stöðu­upp­færsl­unni segir Benedikt: „Í við­tals­þætti í gær not­aði ég afar klaufa­leg ummæli um til­efni stjórn­ar­slit­anna, þegar ég sagði að eng­inn myndi lengur um hvað málið sner­ist. Þar var ég að vísa til með­ferðar máls­ins í stjórn­sýsl­unni síð­ast­liðið sumar, en sann­ar­lega ekki til þeirra brota að sem að baki lágu.

Það er fjarri mér að gera lítið úr þeim sárs­auka sem þolendur kyn­ferð­is­brota og aðstand­enda verða fyrir. Öllum ber að tala af virð­ingu og auð­mýkt í þessu sam­hengi og ég bið alla aðila máls­ins inni­lega afsök­unar.

Það er óásætt­an­legt að slík mál séu hjúpuð leynd­ar­hyggju og það er skýr skoðun mín og Við­reisnar að upp­lýsa um alla þætti máls­ins. Hefði það sjón­ar­mið verið haft í heiðri hefðu allar upp­lýs­ingar legið á borð­inu frá upp­hafi. Ég ítreka hve leitt mér þykir að hafa talað með þessum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár