„Vildi bara verða flink að teikna“

Hillbilly heimsótti Lindu Ólafs­dóttur, mynd­höfund, á vinnu­stofunni. Það tekur Lindu nákvæmlega 15 sekúndur að labba í vinnuna frá heimili sínu. Linda og eigin­maður hennar tóku bílskúrinn í nefið og breyttu honum í fallegt stúdíó þar sem þau vinna hlið við hlið alla daga. Hún að teikna, hann að forrita og einstaka sinnum að brugga bjór. „Ég losna ekki við hann,“ segir Linda en Hillbilly skynjar kímni í rödd hennar.

Oft getur fylgt mikil einvera því að vinna að listinni svo kannski er tilvalið að hanga með eigin­manninum allan daginn? „Hann talar svolítið hátt þegar hann er á fundum svo ég þarf stundum að sussa á hann. En þetta fyrir­komulag gengur vel upp og við vinnum vel saman þar sem við erum að grúska í sitthvorum hlutunum. Mér líður mjög vel í rólegheitunum á vinnu­stofunni minni. Ég er mikil félags­vera en vinnan mín þarf ekki að vera það, þarf engin jóla­hlaðborð né staffadjömm,“ segir Linda en Hillbilly giskar að nýbruggaður bjórinn geti haldið uppi staffa­djammi fyrir einn, eða tvo.

Versti stærðfræðikennarinn

Ástin á teikningu blossaði snemma hjá Lindu, hún var mjög listrænt barn og hvött áfram af stuðnings­ríkum foreldrum. Linda ólst upp í Árbænum, fór á lista­braut í FB, á meðan allir vinirnir fóru eitthvað annað, „ég var svo ákveðin í þessu,“ og síðan var leiðinni haldið í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið undanfarið ár