Það sem er ólöglegt í raunheimum verði það líka á netinu

Evr­ópskir lög­gjafar hafa sam­þykkt ný lög um tækni­fyr­ir­tæki sem þykja marka vatna­skil í því hvernig tekið er á stórum tækni­fyr­ir­tækjum sem þykja taka hagnað fram yfir sið­ferð­is­legar skyldur sínar. Fyrri lög­gjöf ESB í mála­flokknum var frá árinu 2000.

Núgildandi lög Evrópusambandsins í málaflokknum eru frá árinu 2000.
Núgild­andi lög Evr­ópu­sam­bands­ins í mála­flokknum eru frá árinu 2000. Mynd: Pexels

Mörgum hefur lengi þótt tæknirisar á borð við Google og Facebook hafa allt of mikil völd. Um þetta snýst einmitt ný lög­gjöf sem sam­þykkt var í Evr­ópu­sam­band­inu í síð­ustu viku, það er að segja um að tak­marka þessi gríð­ar­legu völd og áhrif sem stór­fyr­ir­tækin hafa.

Núgild­andi lög Evr­ópu­sam­bands­ins í mála­flokknum eru frá árinu 2000, það er að segja áður en Facebook varð til, áður en Steve Jobs fann upp iPhone og áður en stór­versl­anir á net­inu á borð við Amazon voru settar á fót. Lögin voru því orðin mjör úrelt, enda var engin leið fyrir lög­gjafa þess tíma að sjá fyrir þá gríð­ar­legu þróun sem orðið hefur á síð­ast­liðnum ára­tugum.

Samhliða þess­ari miklu þróun hafa áhyggjur af skað­legum áhrifum algóriþma og sam­fé­lags­miðla auk­ist, og ekki að ástæðu­lausu. Fjöl­margar rann­sóknir hafa sýnt fram á skað­leg áhrif við­skipta­mód­els stór­fyr­ir­tækj­anna, sem snúa aðal­lega að því að reyna að halda not­endum sínum sem lengst inni á miðl­unum til þess að geta selt fleiri aug­lýs­ingar, og svo að því að fylgj­ast svo grannt með notkun þeirra svo hægt sé að miða aug­lýs­ing­arnar, jú og öðru efni sem not­endur hafa áhuga á, að réttu mark­hóp­unum til að selja meira og halda þeim lengur á miðl­unum. Þetta hefur meðal ann­ars verið fjallað um í heim­ilda­mynd­inni The Social Dilemma, sem vakti mikla athygli, þar sem fjöldi fyrr­ver­andi starsfs­manna stóru tækni­fyr­ir­tækj­anna steig fram og sagði frá því hvernig fyr­ir­tækin gerðu sér full­kom­lega grein fyrir skað­legum áhrifum sínum, og dreifðu jafn­vel skað­legu efni gagn­gert til þess að skapa sem mestan gróða.

Nýju lög­gjöf­inni er ætlað að auka rétt­indi not­enda tækni­fyr­ir­tækj­anna og auka öryggi þeirra, en í sam­tali við DR segir Christel Schaldemose, þing­maður Evr­ópu­þings­ins, að aðal­mark­mið nýju lag­anna að gera það sem er ólög­legt í raun­heimum einnig ólög­legt á net­inu.

Hætti að ýta skaðlegu efni að notendum sínum

Meðal ákvæða lög­gjaf­ar­innar er krafa um að tækni­fyr­ir­tækin geri breyt­ingu á algóriþmum sínum með það að mark­miði að efni sem þykir skað­legt lýð­ræð­inu eða heilsu borg­ar­anna verði ekki ýtt að not­endum og að bannað verði að laga aug­lýs­ingar að börnum með notkun á per­sónu­upp­lýs­ingum þeirra. Þá verða fyr­ir­tækin jafn­framt að gefa not­endum inn­sýn í til­vís­un­ar­kerfi sín og rök­styðja ákvarð­anir um að taka efni not­enda af miðl­unum. Fari tækni­fyr­ir­tækin ekki að regl­unum mega þau eiga von á stórum sektum, sem verða ákveðnar í sam­ræmi við veltu fyr­ir­tæk­is­ins sem á í hlut.

Eins og stendur ákveða tækni­fyr­ir­tækin nokkurn veg­inn sjálf hvernig þau meta og með­höndla skað­legt efni á miðlum sínum, en það hefur þá aðal­lega verið sam­fé­lags­legur þrýst­ingur sem hefur haft áhrif á stærri stefnu­breyt­ingar í þeim efnum, svo sem eins og þegar sam­fé­lags­miðlar tóku loks ákvörðun um að lyfta grettistaki í tengslum við fals­fréttir og rangar upp­lýs­ingar um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn næstum ári eftir að hann hófst.

Nú verða tækni­fyr­ir­tækin hins vegar öll sett undir sama hatt, hið minnsta í Evrópu. Tækni­fyr­ir­tækin hafa viðrað áhyggjur sínar af áhrifum lög­gjaf­ar­innar, sem þau telja stranga, og má búast við ein­hverri mót­spyrnu af þeirra hálfu. Margir verða því hins eflaust fegnir að tækniris­unum séu settar ein­hvers konar laga­legar skorður, og þó fyrr hefði verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár