Gunnar Bragi hættur í Framsóknarflokknum

Oddviti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur sagt sig úr flokknum og dregið fram­boð sitt til baka.

Gunnar Bragi Sveins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, hefur sagt sig úr flokknum og verður ekki í fram­boði fyrir hann í kom­andi kosn­ingum. Þetta upp­lýsir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar segir hann enn fremur að ekki sé ljóst hvað hann geri nú en að það verði ákveðið á næstu dögum.

Í stöðu­upp­færslu Gunnars Braga fjallar hann meðal ann­ars um að menn sem hann hafi hingað til talið til hrein­skipt­inna vina sinna séu nú farnir að grafa undan per­sónu hans. Þau óheil­indi séu leidd af fólki í trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í hans heima­byggð og öðrum ein­stak­lingum sem telji sig eiga að ráða fram­vindu mála.

Síðan segir m.a.: „Fram­sókn­ar­fé­lagið mitt er klofið og ég sé að fólki er skipt í fylk­ingar. Gamla góða vina­lega kveðjan er í sumum til­fellum orðin í besta falli kurt­eis­is­leg. Þetta á ekki að vera svona, þetta þarf ekki að vera svona. Öllu þessu mátti forða hefðu menn hlustað eða komið hreint fram. Því miður er það nú að ræt­ast sem ég og fleiri vöruðum við og ég sagði við marga vini mína síðla sum­ars 2016 í upp­hafi inn­an­flokksátak­anna.

Þegar svona er komið þá veltir maður fram­tíð­inni fyrir sér. Vil ég vinna í þessu umhverfi? Get ég unnið með fólki sem starfar með þessum hætti eða lætur það við­gang­ast? Ég hef und­an­farið hitt eða hringt í fjöld­ann allan af frá­bæru fólki sem ýmist hvetur mig til að taka slag­inn, “ekki láta þá kom­ast upp með þetta” eða þá að það hvetur mig til að draga mig í hlé vegna ástands­ins í flokknum.

Þegar ég rita þetta þá sit ég með hnút í mag­anum enda ekki létt að hverfa á braut. Eflaust gæti ég unnið for­systu­sætið en hvað er unnið með því ef sam­starfið verður óbæri­legt? Er heið­ar­legt að bjóða sig fram vit­andi að allar líkur eru á að maður myndi hrökkl­ast úr þing­flokknum?

Eftir að hafa ráð­fært mig við fjöl­skyldu og vini hef ég ákveðið að draga fram­boð mitt til baka. Ég hef jafn­framt ákveðið að segja mig úr Fram­sókn­ar­flokknum.
Hef ég upp­lýst for­mann Kjör­dæm­is­sam­bands fram­sókn­ar­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi auk for­manns og vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokk­ins um þetta.

Ég kveð flokk­inn minn með mik­illi sorg en sáttur við fram­lag mitt til hans. Ég mun sakna alls þess frá­bæra fólks sem þar er en margir þeirra hafa verið mér sam­ferða þennan tíma. 
Mér finnst miður að hafa ekki náð að tala við alla þá sem ég hefði viljað tala við und­an­farna daga og þá vil ég biðja afsök­unar.

Hvað ég geri nú er ekki ljóst en ég mun ákveða það næstu daga.“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði sig úr flokknum á sunnu­dag og hefur nú stofnað nýjan flokk, Mið­flokk­inn. Sá mæld­ist með 7,3 pró­sent fylgi í nýrri skoð­ana­könnun MMR og mæld­ist þar stærri en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Gunnar Bragi hefur lengi verið stuðn­ings­maður Sig­mundar Davíðs og staðið með honum í inn­an­flokksá­tökum sem átt hafa sér stað í flokknum að und­an­förnu. Gunnar Bragi var til að mynda skráður í stjórn Fram­fara­fé­lags Sig­mundar Davíðs sam­kvæmt þeim skjölum sem upp­runa­lega voru send til fyr­ir­tækja­skráar vegna skrán­ingar þess í upp­hafi sept­em­ber­mán­aðar. Sú skrán­ing hefur nú verið leið­rétt og nafn Gunnars Braga fjar­lægt af lista yfir stjórn­ar­menn. Í hans stað er Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Gunnars Braga, í stjórn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár