Segir eina leið til að þakka Jóhannesi að gefa í baukinn hjá sjóðnum sem styður hann

Óskað eftir fjár­hags­legum stuðn­ingi almenn­ings við upp­ljóstr­ara eins og Jóhannes Stef­áns­son. Hann hafi þegar orðið fyrir „heift­ar­legum per­són­u­árásum og níði“ og kostn­aður við lög­fræði­kostnað hans sé þegar byrj­aður að hrann­ast upp.

Jóhannes Stefánsson.
Jóhannes Stef­áns­son. Mynd: Skjáskot/RÚV

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, hefur óskað eftir því að almenn­ingur styðji við The Courage Foundation, sem er alþjóð­legur styrkt­ar­sjóður sem veitir upp­ljóstr­ur­unum fjár­hags­legan stuðn­ing, en Wikileaks er einn og stofn­endum sjóðs­ins. Á meðal þeirra sem hafa fengið stuðn­ing úr sjóðnum eru Chelsea Manning og Edward Snowden. Nú hefur Jóhannes Stef­áns­son, upp­hafs­maður Sam­herj­a­máls­ins, bæst á þann lista.

Kristinn segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í kvöld að upp­ljóstr­arar verði iðu­lega fyrir linnu­lausum árásum valds­ins og að þá beri að vernda. Á Íslandi sé enn ekki búið að inn­leiða form­lega lög­gjöf um vernd þeirra þó að rík­is­stjórnin hafi lagt farm frum­varp þess efnis síðla árs í fyrra. „Jóhannes Stef­áns­son sem er upp­hafs­maður Sam­herj­a­máls­ins (Fishrot) hefur nú þegar orðið fyrir heift­ar­legum per­són­u­árásum og níði. Hann nær að hrista það af sér. Aðrar varnir þurfa stuðn­ing. Þó að Jóhannes hafi form­lega stöðu upp­ljóstr­ara í Namibíu og er laus undan hættu á lög­sókn þar í landi, verður hann að und­ir­búa varnir í öðrum lög­sagn­ar­um­dæmum, meðal ann­ars á Íslandi.“

Kristinn greinir svo frá því að Courage Foundation hafi ákveðið að styðja við bakið á Jóhann­esi en kostn­aður við laga­legar varnir sé þegar byrj­aður að hlað­ast upp. Kristinn segir Evu Joly leiða varn­ar­vinn­una fyrir hönd Jóhann­esar en lög­menn hjá Rétti lög­manns­stofu í Reykja­vík komi einnig að því verki. „Courage sjóð­ur­inn þarf stuðn­ing almenn­ings til að styðja upp­ljóstr­ara eins og Jóhannes og áður Edward Snowden og fleiri. Ein leið til að þakka Jóhann­esi verkið er að setja í bauk­inn hjá Courage.“

Alþjóðlegt spillingarmál

Sam­herj­a­málið, eða Fishrot á ensku, hófst með umfjöllun Kveiks, Stund­­­ar­inn­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks í nóv­em­ber um mút­­u­greiðsl­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­þús­undum gagna og upp­­­­­ljóstrun Jóhann­esar, sem er fyrr­ver­andi starfs­­­manns Sam­herja í Namib­­­íu.

[adspot]Þegar er búið að hand­­­taka og ákæra Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­­ar­út­­­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­­ónir namibískra doll­­­­­­ara, jafn­­­­­­virði 860 millj­­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­­sóttan kvóta í land­in­u. Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­for­­­­­­maður namibísku rík­­­­­­is­út­­­­­­­­­­­gerð­­­­­­ar­inn­ar Fishcor ný­ver­ið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­­son­ur Esau, Ricardo Gustavo, sam­­­­­­starfs­­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­­skyld­u­­­­­­bönd­um, ákærð­­­­­ir.

Yfir­völd í Namib­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi eru að rann­saka mál tengd Sam­herj­a.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár