Allir fæddust á Íslandi samkvæmt stafrænu ökuskírteinunum

Rúmur fjórð­ungur allra bíl­stjóra á Íslandi hefur þegar sótt staf­ræn öku­skír­teini í sím­ann. Í fyrstu útgáfu skír­tein­anna voru allir hand­hafar með Ísland sem skráðan fæð­ing­ar­stað, en því mun hafa verið kippt í lið­inn.

Rafrænu ökuskírteinin voru kynnt á blaðamannafundi í síðustu viku.
Rafrænu öku­skír­teinin voru kynnt á blaða­manna­fundi í síð­ustu viku. Mynd: Stjórnarráðið

Þeir hand­hafar íslenskra öku­skír­teina sem fæddir eru á erlendri grundu urðu sumir hverjir undr­andi er þeir sóttu staf­rænt öku­skír­teini í sím­ana sína. Á staf­rænum skír­teinum var fæð­ing­ar­staður þeirra nefni­lega skráður sem Ísland.

Ástæðan fyrir þessu var sú að fæð­ing­ar­landið „fór inn sem fasti“ í fyrstu útgáfu öku­skír­tein­is­ins, en þetta á að vera búið að leið­rétta, sam­kvæmt svari Vigdísar Jóhanns­dóttur mark­aðs­stjóra verk­efna­stof­unnar Stafræns Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þrátt fyrir þessa byrj­un­arörð­ug­leika sem snertu hluta not­enda hefur almenn­ingur tekið þess­ari nýju raf­rænu lausn fagn­andi frá því hún var kynnt í upp­hafi mán­aðar, en fyrr í vik­unni höfðu hart­nær 53 þús­und öku­þórar sótt sér staf­ræn öku­skír­teini í sím­ana, eða um það bil fjórð­ungur allra þeirra sem hafa íslensk öku­skír­teini.

Ísland er annað ríkið í Evrópu sem kynnir raf­ræn öku­skír­teini til sög­unnar, en enn sem komið er gilda þau bara inn­an­lands.

Bent á að auðvelt sé að búa til eins útlítandi stafræn kort

Fram kom við kynn­ingu staf­rænu öku­skír­tein­anna í síð­ustu viku að þau ættu að hafa sama gildi og plast­skír­teinin, sem þýðir að auk þess að geta sýnt lög­reglu fram á gild öku­rétt­indi á fólk á að geta sannað á sér deili með nýju skír­tein­unum þar sem þess er þörf, eins og við kosn­ingar, í Vínbúðum og víðar.

En staf­rænni fram­tíð fylgja áskor­anir og bent hefur verið á að auð­veld­ara sé að falsa staf­rænu skír­teinin en plast­kort og einnig að erfitt gæti verið fyrir aðra en lög­reglu og þá sem hafa fengið búnað til þess að skanna strik­a­merkið á skír­tein­unum að virki­lega sann­reyna þau.

Hér má sjá til dæmis sjá dæmi um „staf­rænt öku­skír­teini“ sem búið var til með ókeypis hug­bún­aði, en þegar not­endur hafa sótt þetta skír­teini í veskið í sím­anum sínum lítur það nokk­urn­veg­inn út eins og hið rík­is­út­gefna staf­ræna skír­teini. Lítið mál mun vera fyrir kunn­uga að búa til skír­teini sem er ennþá lík­ara þeim sem ríkið gefur út.

Í ljósi þessa spurð­ist blaða­maður fyrir um það hvernig staf­rænu öku­skír­teinin yrðu sann­reynd, til dæmis ef fólk ætl­aði að fram­vísa þeim til að sanna á sér deili við kosn­ingar, í Vínbúðum eða önnur tæki­færi, eins og ráð­herrar sögðu að yrði mögu­legt á kynn­ing­ar­fundi um skír­teinin í síð­ustu viku.

Vigdís svar­aði því til að mark­mið staf­rænu öku­skír­tein­anna væri sam­starf við lög­reglu til að sýna fram á öku­rétt­indi, svo öku­menn yrðu ekki sektaðir ef plast­kortið gleymd­ist heima.

En ef það „sé vilji“ til að nota staf­rænu skír­teinin, til dæmis við kosn­ingar, yrði „fram­kvæmd leið til stað­fest­ingar í sam­starfi við þá aðila sem að máli koma,“ en emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur í dag eitt tólið sem þarf til þess að sann­reyna raf­rænu skír­teinin með strik­a­merk­isskanna.

Vigdís bendir á að hvað fals­anir varði sé „ýmis­legt hægt með ein­beittum brota­vilja“, rétt eins og þegar kemur að plast­kortum.

Íslenskur sproti skipaður ungum konum kom að verkefninu

Íslenska tækni­fyr­ir­tækið SmartSolutions, sem stofnað var í sept­em­ber árið 2018 hefur unnið að tækni­legri útfærslu raf­ræna öku­skír­tein­is­ins, en verk­efnið er fram­kvæmt í sam­starfi emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra og verk­efna­stof­unnar Stafræns Íslands, sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, frá því síð­asta haust.[links]

Fyr­ir­tækið, sem aðal­lega er skipað ungum konum, mun fá 8,5 millj­ónir króna greitt fyrir vinnu sína við öku­skír­teinin sam­kvæmt samn­ingi um verk­efnið, sam­kvæmt svari Stafræns Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Rætt var við þær Þórdísi Jónu Jóns­dóttur og Eddu Kon­ráðs­dóttur frá SmartSolutions í Tækni­varp­inu í Hlað­varpi Kjarnans í gær, þar sem þær ræddu stofnun fyr­ir­tæk­is­ins og verk­efnin, meðal ann­ars gerð staf­ræna öku­skír­tein­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggæsla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár