Rekinn eftir 27 ára starf hjá Eflingu – Sagði félagið „pólska útgáfu af stéttarfélagi“

Kjara­full­trú­inn sem var rek­inn frá Eflingu í gær er sagður vera sá sem er ásak­aður um að hafa hótað að vinna fyrr­ver­andi for­manni félags­ins mein. Hann seg­ist hafa goldið þess að vera „Íslend­ingur og karl­maður“.

Tryggvi Marteinsson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska.
Tryggvi Mart­eins­son, Sólveig Anna Jóns­dóttir og Agnieszka Ewa Ziólkowska. Mynd: Samsett

Tryggvi Mart­eins­son, kjara­full­trúi hjá Eflingu, var rek­inn úr starfi í gær eftir 27 ára starf. Hann greinir frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar segir hann að starf hans haf verið „virt að vettugi enda komm­ún­istar við stjórn. Það er mikil reisn yfir þessu félagi og þetta var það fyrsta sem ný stjórn sýndi til að leysa vand­ann sem Sólveig skap­aði. Skömmin er mikil hjá þeim sem eru titl­aðir yfir­menn í dag.“

Í upp­haf­legri færslu Tryggva sagði hann einnig: „Ég galt þess að vera íslend­ingur og karl­maður“. Hann breytti færsl­unni í nótt og tók þá setn­ingu út.

Sú Sólveig sem Tryggvi vísar til er Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, en hún sagði af sér for­mennsku í síð­ustu viku.

Í ummælum við stöðu­upp­færsl­una Tryggva lýsa ýmsir yfir óánægju með ákvörðun Eflingar. Á einum stað spurði maður hvað „gengi að þessu fólki“. Tryggvi svar­aði: „þetta er ein­hver pólsk útgáfa af stétt­ar­fé­lagi“. Hann eyddi síðar þeim ummælum en skjá­skot af þeim má sjá hér að neðan.

Sagður vera sá sem ásakaður er um hótanir

Kjör­inn vara­for­maður Efl­ing­ar, Agnieszka Ewa Ziólkowska, tók við emb­ætti for­manns stétt­ar­fé­lags­ins á stjórn­ar­fundi fyrir átta dögum. Hún er pólsk að upp­runa, en um helm­ingur félags­manna í Eflingu eru aðkomu­fólk. Agnieszka er fyrsti for­maður Eflingar sem er af erlendu bergi brot­inn.

Á sama fundi var afsögn Sól­veigar Önnu úr emb­ætti for­manns Efl­ingar afgreidd. Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, sagði einnig upp störfum í síð­ustu viku.

[adspot]Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, sem hefur verið mikið í fjöl­miðlum und­an­farið eftir að henni var sagt upp störfum sem hlaðmanni hjá Icelandair, tók við sem vara­for­maður Efl­ing­ar. Næstu for­manns- og stjórn­ar­kosn­ingar munu fara fram fyrir lok mars á næsta ári.

Stjórn Eflingar fund­aði í fyrsta skipti í gær eftir að ný for­ysta tók við og í kjöl­farið var hald­inn mán­að­ar­legur fundur í trún­að­ar­ráði Eflingar.

Í Morg­un­blað­inu í dag segir að blaðið hafi heim­ildir fyrir því að Tryggvi sé sá maður sem ásak­aður er um að hafa hótað að vinna Sólveigu Önnu mein á meðan að hún var enn for­maður Eflingar.

„Augljóslega einhvers konar ofbeldi“

Sólveig Anna greindi frá því máli í við­tali við Kjarnann sem birt­ist um síð­ustu helgi án þess að nafn­greina Tryggva. Hún sagði að einn af karl­kyns starfs­mönnum skrif­stofu Efl­ingar hefði „lýst því yfir við annan starfs­mann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en var aug­ljós­lega ein­hvers konar ofbeld­i.“

Hún hefur ekki til­greint nánar hvað það var sem mað­ur­inn ætl­aði að gera henni en í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði hún að mað­ur­inn, sem hafi verið ósáttur með að hafa ekki fengið stöðu­hækkun, hefði lýst því að hann „hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við. Það sann­aði að honum væri alvara og að hann væri fær um að fremja glæp. Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fang­elsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafn­vel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint saka­vott­orð.“

Kallaði Sólveigu Önnu „konuna“

Í við­tal­inu við Kjarnann sagði Sólveig Anna: „Þegar mér er til­kynnt um þetta, þessa brjál­semi um að þarna væri maður sem kynni svona illa við mig, væri hættur að tala um mig með nafni heldur kalli mig „kon­una“, sem gekk á milli starfs­fólks og segið að ég væri fífl og fáviti sem kynni ekki neitt og væri núna far­inn að stíga skref­inu lengra og far­inn að orða fyr­ir­ætl­anir sínar um að koma heim til mín og gera mér mein, þá var það mjög erfitt. Þetta var og er allt raun­veru­legt, stað­fest. Ég fæ þessa vit­neskju og var mjög brugðið. Ég tók mér marga daga í að íhuga hvað ég ætti að gera. Og aldrei hugs­aði ég hvort það ætti að segja honum upp, vegna þess að ég vissi alveg að það myndi ekki geta gerst. Staða mín innan skrif­stof­unnar væri það slæm. Ég kemst svo að þeirri nið­ur­stöðu að þetta væri mjög alvar­legt, að mað­ur­inn væri far­inn að orða þessa óra sína. Að heiftin væri svo mikil að hann geti ekki hamið sig um að lýsa því í frekar miklum smá­at­riðum að hann ætli að gera þetta. Að hann hafi áður framið glæp og hafi ekki áhyggjur af því að vera dæmdur vegna þess að hann væri með hreint saka­vott­orð. Ég hugs­aði að ég gæti ekki boðið fjöl­skyld­unni minni upp á þetta. Dóttir mín er 21 árs býr á þessu heim­ili. Átti ég að segja við hana að við værum í ein­hvers­konar umsát­urs­á­standi?“

[links]Hún sagð­ist síðar hafa fengið vit­neskju um það að mann­eskjan sem að hefði mót­tekið hót­un­ina í smá­at­riðum, og brugðið svo mikið að hún sagði tveimur öðrum sam­starfs­mönnum frá, hafi ekki viljað skaða vinnu­sam­band sitt við umræddan mann. Því myndi hún ekki standa við frá­sögn sína. „Þá ákvað ég að ég gæti ekk­ert gert án þess að þessi ályktun trún­að­ar­manna um að ég væri með „aftöku­lista“ yrði dregin fram og sett í það sam­hengi að þessi maður sem væri að hóta mér ofbeldi væri á honum. Það kom svo í ljós núna eftir að ég sagði frá þessu. Þá er sagt að ég sé að ljúga. Að þetta sé upp­spuni frá rótum og eng­inn kann­ast allt í einu neitt við þetta. Þrátt fyrir að ég sé með þessa frá­sögn stað­festa í tölvu­pósti og hafi látið færa það til bókar hjá lög­regl­unni.“

Sólveig Anna segir að hún hafi haft sam­band við lög­reglu vegna máls­ins nokkru áður en sú atburða­rás sem leiddi til afsagnar hennar hófst í lok októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár