Stærsta hótelkeðja landsins biður skuldabréfaeigendur um greiðslufrystingu

Íslands­hótel hefur lagt til við skulda­bréfa­eig­endur í tæp­lega 2,9 millj­arða skulda­bréfa­flokki að sam­þykkt verði að engar greiðslur ber­ist vegna skulda­bréf­anna fyrr en seinni hluta árs 2021.

Grand hótel í Reykjavík er eitt hótela Íslandshótela hf.
Grand hótel í Reykja­vík er eitt hót­ela Íslands­hót­ela hf.

Íslands­hótel hf., sem rekur meðal ann­ars Grand hótel, hefur lagt til breyt­ingar á greiðslu­ferli og skil­málum við þá sem eiga skulda­bréf í hót­el­keðj­unni, en breyt­ing­arnar fela meðal í sér greiðslu­fryst­ingu næstu fjóra gjald­daga, eða þar til á síð­ari hluta árs 2021. Um er að ræða skulda­bréfa­flokk upp á tæp­lega 2,9 millj­arða króna.

Hót­el­keðjan, sem er sú stærsta á Íslandi með hátt í 2.000 hót­el­her­bergi til umráða, leggur til að loka­gjald­dagi skulda­bréf­anna verði færður aftur um eitt ár, eða til árs­ins 2048 og að vikið verði tíma­bundið frá fjár­hags­legum skil­yrðum varð­andi tak­mark­aða skuld­setn­ingu og 20 pró­senta eig­in­fjár­kvöð.

Í grein­ar­gerð með til­lögu Íslands­hót­ela segir að með þessu sé verið að biðja skulda­bréfa­eig­endur að veita félag­inu sam­bæri­legar til­slak­anir og við­skipta­banki þess hefur þegar gert og að COVID-19 heims­far­ald­ur­inn hafi haft veru­leg áhrif á ferða­þjón­ust­una um heim allan.

„Ferða­tak­mark­anir og aðrar tak­mark­anir eru enn í gildi í ákveðnum löndum sem eru mik­il­væg fyrir ferða­þjón­ust­una á Íslandi. Ekki er hægt að sjá hvenær eft­ir­spurn eftir ferða­lögum mun kom­ast aftur á eðli­legt stig,“ segir jafn­framt í grein­ar­gerð hót­el­keðj­unnar.

[adspot]

Íslands­hótel segj­ast hafa brugð­ist við hrap­andi eft­ir­spurn eftir gist­ingu með því meðal ann­ars að loka hót­elum, bjóða sértil­boð mark­aðs­sett fyrir inn­an­lands­markað, með víð­tækum upp­sögnum starfs­manna og almennri end­ur­skipu­lagn­ingu rekstr­ar­ins.

„Rekstur félags­ins hefur verið aðlag­aður að fram­boði ferða­manna og miðar stefna félags­ins að því að tryggja rekst­ur­inn og skapa sveigj­an­leika þannig að hægt verði að grípa skjótt til aðgerða um leið og ferða­þjón­ustan tekur við sér á nýjan leik,“ segir í grein­ar­gerð með til­lög­unni.

Skulda­bréfa­eig­endur hafa verið boð­aðir á fund á Grand hótel 28. ágúst þar sem þessar skil­mála­breyt­ingar verða lagðar fyrir og þarf sam­þykki frá 90 pró­sent þeirra skulda­bréfa­eig­enda sem til fund­ar­ins mæta til þess að til­lagan telj­ist sam­þykkt, en atkvæð­is­réttur mið­ast við fjár­hæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár